Smore logo
remove_red_eye 1.1K
page background
Logo

Tæknótíðindi

27. september 2024

Tæknótíðindi27. september 2024

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 23. september - 11. október - Kennslumat í Innu
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Vel heppnaður Tækniskóladagur 🥳 Vel heppnaður Tækniskóladagur 🥳

Tækniskóladagurinn var haldinn í vikunni og er óhætt að segja að hann hafi lukkast afar vel 👏


Yfir 50 viðburðir þar sem nemendur og starfsfólk gat valið um áhugaverða fyrirlestra í húsi eða farið í heimsókn til fjölbreyttra fyrirtækja í atvinnulífinu 👌 Nemendur voru að vanda til mikillar fyrirmyndar.

open_in_new zoom_out_map

Kennslumat og ábendingakerfi Kennslumat og ábendingakerfi

Kennslumat fyrir fyrri spönn haustannar er nú opið í Innu. Nemendur nálgast kennslumatið á forsíðu Innu.


Kennslumat er lagt fyrir hjá úrtaki kennara / áfanga og er þátttaka nemenda mjög mikilvæg. Með kennslumati gefst nemendum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hjálpa okkur við að gera góðan skóla enn betri. Nemendur sem eru í áföngum þar sem kennslumat er lagt fyrir þessu sinni hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um kennslumatið.


Nemendur og aðrir hagsmunaaðilar geta einnig komið ábendingum, kvörtunum og hrósi á framfæri í gegnum ábendingakerfi á vefsíðu skólans.

Ábendingakerfi á vefsíðu skólans

Klúbbakvöld á miðvikudögum Klúbbakvöld á miðvikudögum

ENIAC, skólafélagið á Háteigsvegi, heldur klúbbakvöld þar sem klúbbar skólans hittast á sama tíma. Alla miðvikudaga kl. 17:00 á Háteigsvegi - nema þegar það er ekki skóli. Klúbbar vikunnar eru auglýstir á Discord server ENIAC.


Allir nemendur Tækniskólans geta stofnað klúbb. Stjórn ENIAC aðstoðar t.d. við að finna aðstöðu í skólanum, fá spil og þess háttar.


Á klúbbakvöldum er starfsfólk skólans til staðar til að aðstoða nemendur - hvort sem er til að leiðbeina um þá klúbba sem eru í gangi eða til að leiðbeina um stofnun klúbba.

Klúbbar vikunnar - sjá hér

Tónlistarklúbbur

Hittast í hátíðarsalnum á Háteigsvegi og spila á hljóðfæri saman.

Anime klúbbur

Hittingar, spjall, horft á anime seríur ( myndir og þættir í japönskum stíl).

Fighting Game klúbbur

Leikir eins og t.d Smash, Tekken 8 og Mortal Kombat eru spilaðir og myndast oft mikil stemming í kringum það.

Furry klúbbur

Hittingar, spjall, búa til fursuit hausa.

Dungeons & Dragons klúbbar

Það er 5 hópar og er spilað í 5th edition kerfinu. Hver hópur er með sinn Dungeon Master og sitt ævintýri í gangi.

Minecraft klúbbur

Eniac er með Minecraft server þar sem hægt er að spila saman og eru oft viðburðir í gangi á servernum.

Magic the Gathering (Magic ... MTG)

Magic the Gathering er kortaspil og ætlar klúbburinn að spila útgáfu af leiknum sem kallast ,,commander."

Böllin Böllin

Stjórn NST er þessa dagana að undirbúa Tækniskólaball sem fyrirhugað er í október. Á vefsíðu Tækniskólans eru nánari upplýsingar um skóladansleiki nemenda.
Allt um skólaböll

Mars - leikfélag Tækniskólans Mars - leikfélag Tækniskólans

Hjá leikfélaginu eru viðfangsefnin af ýmsum toga svo sem að leika, hanna leikmynd, læra á leikhúsljós, sjá um hár og förðun o.s.frv. Nú styttist í að leiklistarnámskeið hefjist. Öll geta tekið þátt án skuldbindingar. Skráning hér.

Á myndinni má sjá leikfélagið á fyrsta fundi skólaársins

Gettu betur Gettu betur

Nemendur Tækniskólans taka þátt í Gettu Betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Inntökuprófum fyrir þátttöku í liðinu í ár lauk nú í vikunni.

Heiður, hinsegin félag Tækniskólans Heiður, hinsegin félag Tækniskólans

zoom_out_map

Heiður er félag hinsegin nemenda í Tækniskólanum. Félagið er hagsmuna- og skemmtifélag og sér meðal annars um hittinga og viðburði í öruggu umhverfi.


Hinsegin félagið hittist á mánudögum á Skólavörðuholti í stofu 400 frá kl. 17 - 21.


Netfang: heidur@tskoli.is

Instagram

Rafíþróttalið Tækniskólans Rafíþróttalið Tækniskólans

FRÍS, eða Framhaldsskólaleikar RÍSÍ, er rafíþróttakeppni íslenskra framhaldsskóla sem haldin var í fyrsta sinn vorið 2021. Tækniskólinn er tvöfaldur sigurvegari FRÍS, 2021 og 2022.


Æfingar eru í umsjón Vigfúsar Karls Steinssonar (vks@tskoli.is) en lið skólans æfir reglulega og hittist vikulega á fundum.

Njótið helgarinnar 🥰 Njótið helgarinnar 🥰

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter