Smore logo
remove_red_eye 452
page background

Fréttamolar úr MS

16. febrúar 2024

Fréttamolar úr MS16. febrúar 2024

Mikilvægar dagsetningar á annarskilum Mikilvægar dagsetningar á annarskilum

Kæru nemendur. Nú er síðasta kennsludegi vetrarannar lokið en næstu dagar skipta þó líka miklu máli. Mánudag og þriðjudag 19.-20. febrúar verða síðustu matsdagar annarinnar og afar mikilvægt að nýta þá vel. Hér má svo sjá dagsetningar framundan:

Dagskrá matsdaga Dagskrá matsdaga

Nemendur bera ábyrgð á því að vera í samskiptum við kennara og mæta í sín próf/verkefni á réttum stað og stund!

Góðgerðarvika SMS Góðgerðarvika SMS

Fyrstu viku vorannar mun SMS standa fyrir góðgerðarviku sem verður skemmtilegt uppbrot á skólastarfinu. Skólafélagið mun auglýsa viðburði vikunnar á sínum miðlum og vonandi taka sem flestir þátt.

Uppskerutími hjá nemendum í lokaverkefni í félagsfræði Uppskerutími hjá nemendum í lokaverkefni í félagsfræði

Það var af nógu að taka þegar nemendur í félagsfræði kynntu verkefni sín á veggjum og gluggum Langholts í gær. Samfélagsmiðlar, farsæld ungs fólks og afbrotafræðin komu mikið við sögu og greinilegt að það eru upprennandi samfélagsrýnar í þessum hópi sem munu án efa láta að sér kveða í framtíðinni.

Brautskráning úr MS 2. mars Brautskráning úr MS 2. mars

zoom_out_map

Útskrift vetrarannar fer fram við hátíðlega athöfn í Holti, sal skólans, laugardaginn 2. mars kl. 11:00. Útskriftarefni hafa fengið póst með nánari upplýsingum og fá formlegt boðskort á útskrift þegar allar einkunnir eru í höfn í næstu viku.

Lífshlaupið Lífshlaupið

zoom_out_map

Við hvetjum nemendur til að skrá sig til leiks á lifshlaupid.is í Nemendalið Menntaskólans við Sund og fá stig og mögulega verðlaun fyrir sína hreyfingu! 🏃🚴🚶

Njótið helgarinnar og annarskilanna 🥰 Njótið helgarinnar og annarskilanna 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter