Fréttabréf Síðuskóla
8. bréf - apríl - skólaárið 2024-2025
Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!
Farið er að síga á seinni hlutann á skólaárinu og ýmislegt er framundan hjá okkur. Þemadagar verða í næstu viku og taka allir árgangar þátt með fjölbreyttum hætti. Miðstigið undirbýr góðgerðarhátíð í tengslum við Barnamenningarhátíð, sem haldin verður fimmtudaginn 10. apríl klukkan 16-18.
Í apríl eru fáir skóladagar þar sem inn kemur páskafrí og sumardagurinn fyrsti.
Vorið er handan við hornið og ekki ástæða til annars en að horfa bjartsýn fram á veginn.
Bestu kveðjur úr skólanum,
Ólöf, Malli og Helga
Útivistardagurinn verður fimmtudaginn 3. apríl
Góður árangur í Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri
Upphátt - upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri fór fram þann 19. mars í Háskólanum á Akureyri. Fulltrúar Síðuskóla stóðu sig framúrskarandi og negldu báðar sinn lestur. Katrín Birta náði 2. sæti og óskum við henni til hamingju með árangurinn. Sóley stóð sig einnig frábærlega í afar harðri keppni.
Gaman var að sjá hve mörg bekkjarsystkini þeirra Katrínar og Sóleyjar sátu á áhorfendabekkjunum og studdu okkar fulltrúa. Það er ekki síður svona samstaða og liðsandi sem gefur keppni sem þessari gildi. Fyrir utan gildi keppninnar í heild sinni þar sem allir nemendur 7. bekkjar taka þátt í ræktunarhluta hennar þar sem gildi tungumálsins og upplesturs er gert hátt undir höfði í námi og lífi nemendanna.
Þemadagar í Síðuskóla
Í næstu viku verða þemadagar hjá okkur í Síðuskóla. Dagarnir verða 8. – 10. apríl og verða stigin með sitthvor þemun. Á yngsta stigi verður þemað Heimabærinn minn þar sem unnið verður hverfin í bænum, innbæinn, þorpið, brekkuna og eyrina. Sérkenni hvers hverfis fyrir sig verða skoðuð ásamt fleiri verkefnum sem unnin verða.
Miðstig verður í vinnu við Barnamenningarhátíðina sem sjá má frekari upplýsingar um hér að neðan og unglingastigið verður með þemað skipt eftir dögum. Fyrsta daginn verður unnið með Hnattrænt jafnrétti, á öðrum degi verða fjölgreindaleikar og þriðja daginn verður hraðmót í ýmsum íþróttagreinum eða stöðvavinna þar sem unnið er með sköpun og spil. Tímasetningar á mat og frímínútum munu halda sér þessa daga. Á þemadögum lýkur skóladegi kl. 13 og frístund er opin fyrir þá sem eru skráðir.
Lestrarátaki Síðuskóla er nú lokið og það má með sanni segja að það hafi gengið framar öllum vonum! Frá því við hófum átakið þann 12. febrúar hafa bæði nemendur og starfsfólk lagt sig fram við að lesa og skrá lestur sinn – og það hefur sannarlega skilað sér.
Markmiðið var að ná 200 metra löngum lestrarormi og náðist það markmið og gott betur.
Ormurinn teygði sig að lokum yfir 253 metra og samanstendur af 3159 litríkum miðum, þar sem hver árgangur hafði sinn lit og starfsfólkið sinn eigin. Það er þvi litskrúðugur ormur sem hlykkjast um ganga skólans.
Það skapaðist mikil stemming í kringum átakið og var það mikil hvatning fyrir nemendur sem og starfsfólk til að lesa meira og erum við ótrúlega stolt af árangrinum.
Barnamenningarhátíð - Saman til gleði og góðra verka - góðgerðarhátíð nemenda á miðstigi
Nemendur á miðstigi eru þessa dagana að undirbúa þátttöku sína í Barnamenningarhátíðinni á Akureyri sem haldin er dagana 1.–27. apríl. Þetta er í annað sinn sem nemendur Síðuskóla taka formlega þátt í hátíðinni, en þeir leggja hart að sér við að búa til ýmsa listmuni sem verða seldir til styrktar Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Fimmtudaginn 10. apríl verður góðgerðarhátíð í Síðuskóla milli kl. 16:00 og 18:00. Þar verður hægt að kaupa listmuni sem nemendur hafa búið til.
Markmið Barnamenningarhátíðarinnar er að hvetja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi og efla sköpunarkraft þeirra. Síðuskóli er stoltur þátttakandi í þessu mikilvæga framtaki og hvetur alla til að mæta og styðja við gott málefni.
Gleði og góðar kræsingar í síðasta heimilisfræðitíma
Á dögunum var hópur nemenda í 10. bekk í síðasta heimilisfræðitímanum sínum í Síðuskóla.
Það var slegið upp veislu og hér má sjá myndir úr tímanum.
Síðuskóli tekur þátt í Fiðringi á Norðurlandi
Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í anda Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Fiðringur fer fram í Hofi 7. maí. Í Síðuskóla er hópur nemenda að undirbúa þátttöku undir leiðsögn Jónínu Bjartar Gunnarsdóttur. Það verður spennandi að sjá afraksturinn í Hofi í maí!
Einstakur apríl
Við hvetjum alla til að nota apríl til að kynna sér einhverfu. Á heimasíðu félagsins, https://einstakurapril.is/ er til að mynda að finna frábærar stuttar teiknimyndir sem tilvalið er fyrir foreldra að skoða með börnunum sínum og þannig skapa umræðu um margbreytileikann.
Á döfinni
8.-10. apríl
Þemadagar, skóli frá 8.10-13.00
10. apríl
Barnamenningarhátíð - Saman til gleði og góðra verka - góðgerðarhátíð nemenda á miðstigi
11. apríl
Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí nemenda
22. apríl
Kennsla hefst eftir páskafrí
Danskur farkennari kemur til okkar í Síðuskóla og verður til 28. maí
24. apríl
Sumardagurinn fyrsti, frídagur
28. apríl
Sjúk ást, fræðsla í 10. bekk
29. apríl
Kynning á MA fyrir nemendur í 9. bekk
30. apríl
Skólahreysti, Norðurlandsriðill
Skóladagatal 2025-2026
Skóladagatal næsta skólaárs liggur ljóst fyrir. Hér má sjá mynd af því, gott fyrir þá sem vilja skipuleggja sig lengra fram í tímann.