Smore logo
remove_red_eye 585
page background

Fréttabréf Naustaskóla

6. tbl 12. árgangur október 2020

FréttabréfNaustaskóla6. tbl 12. árgangur október 2020

Kæra skólasamfélag

Tíminn æðir áfram og október að hefjast! Eins gott að halda vel á spilum og nýta tímann því fyrr en varir eru komin jól. Eins og jafnan setja frídagar sinn svip á október en þar er um að ræða fasta liði eins og hið hefðbundna vetrarfrí í lok mánaðar. Áhrif Covid 19 eru að einhverju leiti að hafa áhrif á skólastarfið og vegna tilmæla frá Almannavörnum höfum við ekki getað boðið foreldrum á okkar hefðbundnu haustfundi. Þessi í stað verða sendar með vikupósti hvers árgangs kynningarglærur sem við biðjum ykkur að lesa vel yfir. Ætlunin er síðan að bjóða upp á fundi á netinu með foreldrum. Þar geta foreldrar komið með fyrirspurnir til kennara og rætt við aðra foreldra um það sem brennur á þeim. Foreldraviðtölin eru síðan í byrjun nóvember og vonumst við til að þau verði með hefðbundnum hætti. Við minnum á að á heimasíðu skólans má nálgast á næstu dögum starfsáætlanir kennsluteyma, en einnig starfsáætlun skólans í heild þar sem má fræðast um stefnu, starfshætti, helstu áhersluþætti vetrarins o.fl. Þessar upplýsingar er að finna undir hlekknum skólinn / skólanámskrá. Með bestu kveðjum úr skólanum og von um öflugt starf og dásamlegt líf að vanda hjá okkur í október. Bryndís Björnsdóttir, skólastjóri

Frá foreldrafélagi Naustaskóla

Því miður þurfti að fresta fundi foreldrafélagsins sem átti að vera 28. september síðastliðnn. Í staðinn er foreldrafélagið að setja saman glærupakka með upplýsingum um það sem þau vilja koma á framfæri til foreldra fyrir þetta skólaár. Einnig fara upplýsingar um bekkjarfulltrúa sem ætlað er að standa fyrir bekkjarkvöldi einu sinni á haustönn og einu sinni á vorönn fyrir hvern árgang. Við munum senda ykkur þessar upplýsingar á næstu dögum.


Kær kveðja

Foreldrafélag Naustaskóla

zoom_out_map

Á döfinni í október

1. okt - smiðjuskil 2. - 3. bekkur og samræmd próf í stæ. 4.bekkur

5. - 9. okt - 7.bekkur á Reykjum

5. okt - Alþjóðalegi dagur kennara

16. okt. - Bleikur dagur

21. okt - smiðjuskil

22. okt - HAUSTFRÍ - frístund opin allan daginn

23. okt - HAUSTFRÍ - frístund opin allan daginn

Haustkynningar teyma

Á næstu vikum ættu öll teymi í skólanum að vera búin að senda haustkynningu með í vikupóstinum. í framhaldi af haustkynningum munum við gefa foreldrum kost á að koma á teams fjarfund með kennurum hvers bekkjar.

Þetta mun vera í vikunni 12. - 16. október.

Forritið microsoft teams er afskaplega einfalt forrit sem hægt er að setja inn í síma eða tölvu. Þá síðan allir sent fundarboð og ættu að detta beint inn á fundinn.

https://microsoft-teams.en.softonic.com/


Nánari útksýringar koma þegar nær dregur.

zoom_out_map

Símar og snjallúr

Símar eru daglegir fylgifiskar nemenda okkar – við þurfum að taka höndum saman bæði heimili og skóli við að kenna börnunum hvar og hvenær viðeigandi er að nota símana og í hvaða tilgangi. Við biðjum ykkur kæru foreldrar að ræða við börnin ykkar um að símarnir séu geymdir í skólatöskunni á skólatíma, þeir eru ekki teknir með í sund, leikfimi eða frímínútur. Það er einnig mikilvægt að þau læri að vera ekki í símanum á meðan matast er. Með samstilltu átaki getum við kennt þeim þessar einföldu símareglur sem gilda í skólanum. Við mælumst einnig til að snjallúrin séu geymd í skólatöskunni .
zoom_out_map

Alþjóðdagur kennara 5.okt

Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um heim allan 5. október ár hvert. Markmið alþjóðadagsins er að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar inna af hendi á degi hverjum. Við hér í Naustaskóla ætlum að vera spariklædd á mánudeginum 5.okt og spjalla við nemendur um mikilvægi kennarastarfsins og margt fleira.
zoom_out_map

Ólympíuhlaup ÍSÍ 22. september 2020

Hér eru helstu niðurstöður úr skólahlaupinu okkar í ár. Það stóðu sig allir frábærlega vel og gleðin var í fyrirrúmi í þessu flotta hlaupi.


Ólympíuhlaup ÍSÍ 22. september 2020

1. bekkur – 33 nemendur hlupu alls 108km eða 3,27 km að meðaltali á nemanda.

2. bekkur – 31 nemandi hljóp alls 124 km eða 4,0 km að meðaltali á nemanda.

3. bekkur – 29 nemendur hlupu alls 121 km eða 4,2 km að meðaltali á nemanda.

4. bekkur - 32 nemendur hlupu alls 167 km eða 5,2 km að meðaltali á nemanda.

5. bekkur - 43 nemendur hlupu alls 217,2 km eða 5,0 km að meðaltali á nemanda.

6. bekkur – 39 nemendur hlupu alls 200,4 km eða 5,1 km að meðaltali á nemanda.

7. bekkur - 36 nemendur hlupu alls 216 km eða 6,0 km að meðaltali á nemanda.

8. bekkur - 41 nemandi hljóp alls 207,6 km eða 5,1 km að meðaltali á nemanda.

9. bekkur – 45 nemendur hlupu alls 193,2 km eða 4,3 km að meðaltali á nemanda.

10. bekkur – 29 nemendur hlupu alls 115,2 km eða 3,9 km að meðaltali á nemanda.

Nemendur í Naustaskóla hlupu samtals 1669,6 km. Þessi vegalengd í ár skilar okkur að meðaltali 4,7 km á hvern einstakling sem var þátttakandi í Ólympíuhlaupi ÍSÍ 2019.

7. bekkur hljóp að meðaltali flesta km á nemanda eða 6 km (5 hringi) og hlýtur í sigurlaun – auka íþróttatíma við fyrsta tækifæri.

Kveðja íþróttakennarar Naustaskóla.

Um einelti

Í Naustaskóla er unnið samkvæmt ákveðinni áætlun til að fyrirbyggja einelti og til að leysa þau mál sem upp kunna að koma. Eineltisáætlun skólans er birt í starfsáætlun hans en hana er einnig hægt að nálgast beint á heimasíðu skólans á slóðinni: http://www.naustaskoli.is/is/studningur/eineltisaaetlun

Mikilvægt er að við vinnum saman að því að fylgjast með líðan barnanna og meta hvort að þau þurfi á einhverjum tímapunkti aðstoð til að leysa mál sem snúa að samskiptum í skólanum eða vinahópnum. Hins vegar er mikilvægt að hafa í huga að upp geta komið samskiptaerfiðleikar hjá börnunum án þess að um einelti sé að ræða. Við skilgreinum einelti þannig: Einstaklingur er lagður í einelti ef hún eða hann verður fyrir endurteknum neikvæðum verknaði eins eða fleiri einstaklinga yfir ákveðið tímabil.

Þrennt þarf að koma til svo að einelti teljist vera til staðar:


  • Árásarhneigt eða illa meint atferli.
  • Um er að ræða endurtekningu sem stendur yfir ákveðinn tíma.
  • Ójafnvægi afls og valda í samskiptum.


Þegar grunur vaknar um að um einelti geti verið að ræða er fyrsta skrefið hjá okkur að kanna samskipti nemendanna með því að fylgjast með, taka viðtöl og í sumum tilfellum leggja fyrir tengslakannanir. Ef um einelti er að ræða er svo unnið eftir ákveðnu ferli sem byggist að mestu leyti á reglulegum viðtölum við gerendur og þolendur og samstarfi við foreldra. Gott er að foreldrar hafi í huga eftirtalin einkenni sem gætu verið vísbendingar um að einelti eigi sér stað, og hafi samband við skólann ef grunsemdir vakna.


Tilfinningaleg einkenni:


  • Breytingar á skapi.
  • Tíður grátur, þarf lítið til að tárin komi fram.
  • Svefntruflanir, getur ekki sofið, fær martraðir.
  • Matarvenjur breytast, lystarleysi, ofát.
  • Þunglyndi. Líkamleg einkenni:
  • Líkamlegar kvartanir, t.d. höfuðverkur, magaverkur.
  • Kvíðaeinkenni eins og að naga neglur, stama, kækir ýmiss konar.
  • Rifin föt og/eða skemmdar eigur / hvarf á eigum.
  • Líkamlegir áverkar.


Félagsleg einkenni:


  • Lítið sjálfstraust, hræðsla og kvíði.
  • Barnið virðist einangrað, einmana, fær ekki heimsóknir og fer ekki í heimsóknir, forðast t.d. að fara í afmælisboð.


Hegðunarleg einkenni:


  • Óútskýranleg skapofsaköst og/eða grátköst.
  • Hegðunarerfiðleikar.


Skóli - einkenni:


  • Barnið hræðist að fara eitt úr og í skóla, biður um fylgd og/eða fer aðra leið.
  • Leggur fyrr af stað í skólann en venjulega eða fer seinna af stað.
  • Skróp.
  • Barnið mætir iðulega of seint.
  • Forðast ákveðnar aðstæður í skólanum t.d. leikfimi eða sund.
  • Lægri einkunnir, einbeitingarörðugleikar í námi.
  • Einangrun frá skólafélögum.


Heimili - einkenni:


  • Barnið neitar að fara í skólann.
  • Einangrar sig frá öðrum í fjölskyldunni.
  • Aukin peningaþörf hjá barninu.
  • Barnið neitar að leika sér úti eftir skóla.
pdf
insert_drive_file
Október 2020 NS.pdf
Download
70.9 KB
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter