Fréttabréf mars
3. tbl. 17. árg. mars 2026
Námsaðlögun - Athvarf - Umhyggja -
Samvinna - Táp og fjör - Allir með
Á döfinni
10. mars Upphátt upplestrarkeppnin haldin í Brekkuskóla
14. mars Dagur stærðfræðinnar
24. mars Uppbrotsdagur
25. mars Uppbrotsdagur
26. mars Árshátíð
27. mars Kósýdagur
30. mars - 6. apríl páskafrí.
Kæra skólasamfélag
Undirbúningur fyrir árshátíð nemenda er í fullum gangi og fer árshátíðin fram 26. mars. Þátttaka nemenda gefur þeim einstakt tækifæri til að stíga út fyrir þægindarammann og vinna persónulega sigra. Í tengslum við hátíðina hefur 10. bekkur og foreldrar þeirra séð um kaffihlaðborðið.
Þetta er mikilvægur liður í fjáröflun bekkjarins, en jafnframt er þessi dagur tilvalin fjölskylduskemmtun. Við hvetjum ykkur til að nýta tækifærið eftir sýninguna til að njóta samveru, gæða ykkur á góðum veitingum og skapa dýrmætar minningar með börnunum ykkar og öðrum fjölskyldum í skólasamfélaginu.
Verð á kaffihlaðborðið er:
- Fullorðnir: 1.000 krónur.
- Grunnskólanemendur: 500 krónur.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á þessari glæsilegu árshátíð.
Kær kveðja
Bryndís, Helga Ósk og Þuríður
Kaffibrauð á árshátíðardaginn
Sú hefð hefur skapast í Naustaskóla að hvert heimili kemur með einn rétt eða eina köku á kaffihlaðborðið (sem foreldrar nemenda í 10.bekk sjá um). Búið er að setja upp skipulag yfir hvað ætlast er til að hver árgangur komi með. Ef í skólanum eru fleira en eitt barn frá sama heimili má velja hvorn réttinn það kemur með. Við tökum á móti veitingum í heimilisfræðistofunni á milli kl. 8:10 - 9:00 á árshátíðardaginn. Hefð er komin fyrir þessu fyrikomulagi í tengslum við árshátíð skólans og hefur það gengið vel hingað til og vonum við að svo verði áfram. Við biðjum ykkur að merkja ílát vel með nafni barns ykkar svo það skili sér aftur heim.
Skipulag á sýningum
Skólasókn
Góð skólasókn getur stutt við farsæld
Nú þegar aðeins 1/3 er eftir af skólaárinu er ágætt að íhuga mikilvægi skólasóknar fyrir barnið sjálft. Hver skóladagur er mikilvægur fyrir barnið og námslega stöðu þess. Að missa úr skóla, ítrekaðar seinkomur eða að mæta óreglulega í skólann getur ýtt undir óöryggi hjá barninu þínu og búið til vítahring sem erfitt er að rjúfa. Þegar barn er fjarverandi getur það dregist aftur úr námi sem erfitt er að vinna upp. Eins missir það af tækifærum til að skapa minningar með skólafélögunum og upplifa sig sem hluta af heild.
Í einu skólaári eru 180 virkir skóladagar hjá barninu. Ef barn er 8 -10% frá skóla hvert ár af sinni tíu ára skólagöngu getur það samsvarað því að barn sé u.þ.b. eitt á frá skóla og er þá aðeins níu ár í grunnskóla. Einhver börn eru minna frá skóla en það eru fleiri á þessu bili eða með meiri fjarveru.
Sumu getum við haft stjórn á í lífinu en öðru ekki. Fjarvera getur komið til vegna veikinda, íþróttaþjálfunar eða frí vegna ferðalaga. En það er mikilvægt að foreldrar velti þessu fyrir sér, því þegar upp er staðið er það barnið sjálft sem þarf að vinna aukavinnuna til að bæta sér upp fjarveru frá námi. Það er mjög mikilvægt að hafa samband við skólann ef barnið sýnir merki um að vilja ekki mæta í skólann í stað þess að tilkynna barnið veikt.
- Góð skólasókn styður við jákvæða sjálfsmynd í skólanum.
- Getur verið einn af grundvallarþáttum í vellíðunar í skólanum.
- Getur stutt við farsæld í framtíðinni.
Upphátt
Tveir fulltrúar nemenda úr 7.bekk taka þátt fyrir hönd Naustaskóla í sjálfri Upphátt keppninni, það eru þau Hrafnhildur Guðný Karlsdóttir og Gísli Örn Ólafsson. Í ár verður lokahátíð Upphátt haldinn í Brekkuskóla þann 10.mars kl 15:00.
Úrræði og bjargir
Farsæld barna Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.
FLIKK er internetmeðferð fyrir foreldra og aðra umönnunaraðila barna með kvíðavanda á aldrinum 5-12 ára. https://www.heilsugaeslan.is/serthjonusta/namskeid/flikk/
Samvinna eftir skilnað barnanna vegna, SES.
https://www.akureyri.is/velferd-og-samfelag/velferdarthjonusta/samvinna-eftir-skilnad-ses
SES family er fyrir okkur öll, börn, unglinga, fullorðna og fagaðila.https://www.sesfamily.com/is/is
HSN Akureyri Sálfélagsleg þjónusta fyrir börn og fullorðna.
112 Ofbeldi Ofbeldi er þegar einhver gerir eitthvað sem viljandi meiðir þig eða lætur þér oft líða illa.