Smore logo
remove_red_eye 905
page background

Fréttabréf mars

3. tbl. 17. árg. mars 2026

Fréttabréf  mars 3. tbl. 17. árg. mars 2026
Fréttabréf mars3. tbl. 17. árg. mars 2026

Námsaðlögun - Athvarf - Umhyggja - Námsaðlögun - Athvarf - Umhyggja -

Samvinna - Táp og fjör - Allir með Samvinna - Táp og fjör - Allir með

Á döfinni

10. mars Upphátt upplestrarkeppnin haldin í Brekkuskóla

14. mars Dagur stærðfræðinnar

24. mars Uppbrotsdagur

25. mars Uppbrotsdagur

26. mars Árshátíð

27. mars Kósýdagur

30. mars - 6. apríl páskafrí.

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Undirbúningur fyrir árshátíð nemenda er í fullum gangi og fer árshátíðin fram 26. mars. Þátttaka nemenda gefur þeim einstakt tækifæri til að stíga út fyrir þægindarammann og vinna persónulega sigra. Í tengslum við hátíðina hefur 10. bekkur og foreldrar þeirra séð um kaffihlaðborðið.

Þetta er mikilvægur liður í fjáröflun bekkjarins, en jafnframt er þessi dagur tilvalin fjölskylduskemmtun. Við hvetjum ykkur til að nýta tækifærið eftir sýninguna til að njóta samveru, gæða ykkur á góðum veitingum og skapa dýrmætar minningar með börnunum ykkar og öðrum fjölskyldum í skólasamfélaginu.

Verð á kaffihlaðborðið er:

  • Fullorðnir: 1.000 krónur.
  • Grunnskólanemendur: 500 krónur.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á þessari glæsilegu árshátíð.


Kær kveðja

Bryndís, Helga Ósk og Þuríður

Kaffibrauð á árshátíðardaginn Kaffibrauð á árshátíðardaginn

User uploaded image
zoom_out_map

Sú hefð hefur skapast í Naustaskóla að hvert heimili kemur með einn rétt eða eina köku á kaffihlaðborðið (sem foreldrar nemenda í 10.bekk sjá um). Búið er að setja upp skipulag yfir hvað ætlast er til að hver árgangur komi með. Ef í skólanum eru fleira en eitt barn frá sama heimili má velja hvorn réttinn það kemur með. Við tökum á móti veitingum í heimilisfræðistofunni á milli kl. 8:10 - 9:00 á árshátíðardaginn. Hefð er komin fyrir þessu fyrikomulagi í tengslum við árshátíð skólans og hefur það gengið vel hingað til og vonum við að svo verði áfram. Við biðjum ykkur að merkja ílát vel með nafni barns ykkar svo það skili sér aftur heim.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Skipulag á sýningum Skipulag á sýningum

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Skólasókn Skólasókn

Góð skólasókn getur stutt við farsæld

Nú þegar aðeins 1/3 er eftir af skólaárinu er ágætt að íhuga mikilvægi skólasóknar fyrir barnið sjálft. Hver skóladagur er mikilvægur fyrir barnið og námslega stöðu þess. Að missa úr skóla, ítrekaðar seinkomur eða að mæta óreglulega í skólann getur ýtt undir óöryggi hjá barninu þínu og búið til vítahring sem erfitt er að rjúfa. Þegar barn er fjarverandi getur það dregist aftur úr námi sem erfitt er að vinna upp. Eins missir það af tækifærum til að skapa minningar með skólafélögunum og upplifa sig sem hluta af heild.


Í einu skólaári eru 180 virkir skóladagar hjá barninu. Ef barn er 8 -10% frá skóla hvert ár af sinni tíu ára skólagöngu getur það samsvarað því að barn sé u.þ.b. eitt á frá skóla og er þá aðeins níu ár í grunnskóla. Einhver börn eru minna frá skóla en það eru fleiri á þessu bili eða með meiri fjarveru.


Sumu getum við haft stjórn á í lífinu en öðru ekki. Fjarvera getur komið til vegna veikinda, íþróttaþjálfunar eða frí vegna ferðalaga. En það er mikilvægt að foreldrar velti þessu fyrir sér, því þegar upp er staðið er það barnið sjálft sem þarf að vinna aukavinnuna til að bæta sér upp fjarveru frá námi. Það er mjög mikilvægt að hafa samband við skólann ef barnið sýnir merki um að vilja ekki mæta í skólann í stað þess að tilkynna barnið veikt.

  • Góð skólasókn styður við jákvæða sjálfsmynd í skólanum.
  • Getur verið einn af grundvallarþáttum í vellíðunar í skólanum.
  • Getur stutt við farsæld í framtíðinni.
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Upphátt

Tveir fulltrúar nemenda úr 7.bekk taka þátt fyrir hönd Naustaskóla í sjálfri Upphátt keppninni, það eru þau Hrafnhildur Guðný Karlsdóttir og Gísli Örn Ólafsson. Í ár verður lokahátíð Upphátt haldinn í Brekkuskóla þann 10.mars kl 15:00.

Úrræði og bjargir Úrræði og bjargir

Farsæld barna Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.


FLIKK er internetmeðferð fyrir foreldra og aðra umönnunaraðila barna með kvíðavanda á aldrinum 5-12 ára. https://www.heilsugaeslan.is/serthjonusta/namskeid/flikk/


Samvinna eftir skilnað barnanna vegna, SES.

https://www.akureyri.is/velferd-og-samfelag/velferdarthjonusta/samvinna-eftir-skilnad-ses

SES family er fyrir okkur öll, börn, unglinga, fullorðna og fagaðila.https://www.sesfamily.com/is/is


HSN Akureyri Sálfélagsleg þjónusta fyrir börn og fullorðna.


112 Ofbeldi Ofbeldi er þegar einhver gerir eitthvað sem viljandi meiðir þig eða lætur þér oft líða illa.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Naustaskóli

Tölvupóstur: naustaskoli@akureyri.is

Heimasíða: www.naustaskoli.is

Hólmatún, Akureyri, Iceland

Sími 460 4100

Stjórnendur Naustaskóla
Þuríður is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter