Smore logo
remove_red_eye 364
page background
Logo

Tæknótíðindi

4. desember 2024

Tæknótíðindi4. desember 2024

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 5. desember - Jólapeysudagur í Tækniskólanum
  • 5. desember - Upplýsingafundur útskriftarnema
  • 6. desember - Útskriftarsýning í grafískri miðlun og prentun
  • 7. desember - Kynningar á lokaverkefnum vélfræðinema
  • 12. og 13. desember - Húsgagna- og húsasmíðasýning
  • 12. og 13. desember - Námsmat
  • 16. desember - Birting lokaeinkunna
  • 18. desember - Útskrift Tækniskólans
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Jólapeysudagur Jólapeysudagur

zoom_out_map

Jólapeysudagur verður í Tækniskólanum fimmtudaginn 5. desember.


Gerum okkur glaðan dag og mætum í jólapeysu eða öðrum jólalegum fötum í tilefni dagsins 🎅

Upplýsingafundur vegna útskriftar Upplýsingafundur vegna útskriftar

zoom_out_map
Útskriftarnemendum er boðið á upplýsingafund vegna útskriftar Tækniskólans.


Fundurinn verður haldinn á Teams fimmtudaginn 5. desember kl. 12:30 og hvetjum við nem­endur sem eru að útskrifast til þess að mæta.


Hægt er að smella á hlekkinn hér að neðan til að tengjast fundinum.

Upplýsingafundur útskriftarnema

Útskriftarsýning í grafískri miðlun og prentun Útskriftarsýning í grafískri miðlun og prentun

Útskriftarsýning í grafískri miðlun og prentun
zoom_out_map

Föstu­daginn 6. des­ember kl. 15:00–17:00 verður útskriftarsýning og opnunarhóf í nýju húsnæði sérsviða Upp­lýs­inga­tækni­skólans í graf­ískri miðlun, prentun, bók­bandi og ljós­myndun.


Þar munu útskrift­ar­nem­endur í graf­ískri miðlun og prentun sýna loka­verk­efni ásamt öðrum verkum úr náminu.


Hér má sjá nánari upplýsingar um viðburðinn og við hvetjum ykkur til að líta við og fagna deginum með nemendum.

Birting lokaeinkunna Birting lokaeinkunna

Snjór í Tækniskólanum
zoom_out_map

Loka­ein­kunnir verða birtar í Innu mánudaginn 16. des­ember.


Þá eru nem­endur hvattir til að skoða námsmat og fara yfir ein­kunnir en kenn­arar verða til viðtals í sínum deildum kl. 10:00–12:00 þennan sama dag.


Nánari upplýsingar um annarlok má finna á vefsíðu skólans.

Útskrift Tækniskólans Útskrift Tækniskólans

zoom_out_map

Útskrift Tækni­skólans á haustönn fer fram í Eld­borg­arsal Hörpu, miðvikudaginn 18. desember.


Athöfnin hefst stund­vís­lega kl. 13:00 og nem­endur eru beðnir um að mæta klukku­stund áður en athöfn hefst, nánar tiltekið kl. 12:00 í Eldborgarsal.


Útskrift­ar­nem­endum er úthlutað sæti við athöfnina og hver skóli útskrifar eina náms­braut í einu. Frjálst sætaval er fyrir gesti en hver og einn nem­and má bjóða allt að fjórum gestum með á útskriftina.


Nánari upplýsingar um útskriftina má finna á vefsíðu skólans.

Skólareglur Tækniskólans Skólareglur Tækniskólans

Við viljum benda á að nokkrar breytingar hafa orðið á skólareglum Tækniskólans.


Breytingarnar snúa m.a. að notkun snjalltækja, aðgangskortum og ýmsu sem tengist agamálum.


Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur reglur skólans vel með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Skólareglur Tækniskólans

Lýðræðið heiðrað Lýðræðið heiðrað

zoom_out_map
Á undanförnum tveimur vikum hefur lýðræðið svo sannarlega verið heiðrað hér í Tækniskólanum.


Eins og kom fram í síðustu Tæknótíðindum var vel heppnaður skólafundur haldinn þriðjudaginn 19. nóvember þar sem fjöldi nemenda og starfsfólks ræddi m.a. um draumaskólaumhverfið.


Skuggakosningar fóru svo fram í Tækniskólanum fimmtudaginn 21. nóvember þar sem settar voru upp kjördeildir á Háteigsvegi, í Hafnarfirði og á Skólavörðuholti.


Í tilefni Alþingiskosninganna bauð Tækni­skólinn til pallborðsumræðna með full­trúum stjórn­mála­flokk­anna dagana 26. og 27. nóv­ember. Þar svöruðu fulltrúar stjórnmálaflokkanna spurningum frá nemendum og sýndu á sér skrautlegar hliðar er þau þreyttu meistaraprófið.


Þá var nemendum og starfsfólki boðið í hátíðarkaffi föstudaginn 29. nóvember í tilefni fullveldisdagsins. Þjóðlegar veitingar voru á boðstólum og fjölmörg mættu spariklædd í skólann í tilefni dagsins.


Hér að neðan má sjá nokkrar svipmyndir frá þessum skemmtilegu og vel heppnuðu viðburðum.

Skuggakosningar á Skólavörðuholti
zoom_out_map
Skuggakosningar á Skólavörðuholti
zoom_out_map
Skuggakosningar á Háteigsvegi
zoom_out_map
Pælum í pólitík
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Framsækni - Alúð - Fjölbreytileiki Framsækni - Alúð - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter