Fréttabréf Grenivíkurskóla
8. tbl. 7. árg. - október 2026
Kæra skólasamfélag
Líflegt skólastarf í september
Skólastarfið hefur verið fjölbreytilegt og líflegt í september og tíminn hefur flogið áfram við leik og störf.
Við tókum þátt á margvíslegum verkefnum sem litað hafa skólastarfið.
Verkefnið Göngum í skólann hvatti okkur öll til að ganga eða hjóla í skólann. Þátttaka var mjög góð og veðurguðirnir voru líka með okkur í liði og buðu upp á fallegt haustveður flesta morgna sem átakið stóð yfir. Verkefninu er formlega lokið en við viljum að sjálfsögðu hvetja alla til að halda áfram að ganga/hjóla í skólann. Það er góð byrjun á deginum.
Gulur september er haldinn árlega til að vekja athygli á geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Á gula deginum þann 10. september klæddumst við öll einhverju gulu og var bjart yfir skólann að líta þann daginn. Einnig var gaman að líta yfir hópinn okkar þann 4. september þegar Treyjudagurinn var haldinn til stuðnings barna með krabbamein. Þann dag vorum við öll í sama liði, óháð því hvaða íþróttatreyjum við klæddumst.
Ólympíuhlaupið var hlaupið/gengið 8. september. Nemendur og starfsfólk hljóp 340 km, sem samsvarar vegelengdinni á milli Grenivíkur og Borgarness. Ég notaði tækifærið á samveru eftir hlaupið að fara í ímyndað ferðalag með nemendum til Borgarness og skoða falleg náttúrufyrirbæri á leiðinni. Umfjöllunin tengdist einnig Degi íslenskrar náttúru, þann 16. september. Við skoðuðum m.a. myndir af einum stærsta birkiskógi landsins í Fnjóskadal, fylgdum ofurhugum upp á Hraundranga, vörðumst óvinum í Borgarvirki og athuguðum hvort við gætum talið Vatnsdalshólana. Fjallið Baula kom einnig við sögu og þjóðsagan um óskasteininn sem er þar ofan í tjörn á fjallstoppinum. Það er ástæða til að hvetja okkur öll til að taka eftir og fræðast um umhverfið okkar hvert sem við förum um landið. Náttúra Íslands, fjölbreytt dýralíf og hressandi veðurfar er einstakt.
Haustjafndægur voru á dögunum og brátt heilsar fyrsti vetrardagur. Við förum ekki varhluta af því að daginn er tekið að stytta með örlítið meira myrkri kvölds og morgna. Það gefur tilefni til að minna á að taka fram endurskinsmerkin og hengja þau á fatnað og töskur.
Myndir úr skólastarfinu bera vitni um fjölbreytt og skemmtilegt skólastarf. Það hefur verið mjög gefandi að kynnast skólasamfélaginu það sem af er vetri. Ég vona að með jákvæðu hugarfari og öflugu samstarfi höldum við áfram að byggja upp gott skólastarf þar sem okkur öllum getur liðið vel og finnum að við tilheyrum og skiptum máli.
Góð kveðja úr skólanum,
Aníta Jónsdóttir,
skólastjóri Grenivíkurskóla
Skemmtilegt verkefni um veður á yngsta stigi
Nemendur á yngsta stigi unnu skemmtilegt verkefni um veður og kynntu það fyrir samnemendum á Samveru. Verkefnið tengist orðanotkun um ýmis veðrabrigði. Hvað þýðir t.d. heiðskírt? Eða hvernig veður er þegar það er úrhelli?
Samskóladagur á mið- og unglingastigi
Hluti af skólastarfi hér í Grenivíkurskóla er svokallað samskólasamstarf Þelamerkurskóla, Valsárskóla og Stórutjarnaskóla. Samstarfið felst í því að starfsfólk skólanna hittist að hausti á sameiginlegu námskeiði og nemendur heimsækja skólana og taka þátt í skemmtilegu hópastarfi með öðrum nemendum. Þriðjudaginn 22. september var fyrsti samskóladagur vetrarins. Nemendur á miðstigi fóru í Þelamerkurskóla og unglingastigið fór í Valsárskóla. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtilegt og án efa mynduðust góð tengsl á milli skólanna.
Ævintýraferð í Flateyjardal
Miðvikudaginn 30. september fóru Trausti og Tristan í 8. bekk, ásamt Ingu Rakel kennara sínum í útivistarvali í ævintýraferð í Flateyjardal á hjólum. Þau hjóluðu rúmlega 40 km í nokkuð krefjandi umhverfi og blíðskaparveðri, sjá myndir úr ferðinni.
Heilsueflandi skóli - hreyfing
Myndir úr skólastarfinu
Á döfinni í október
- 9. október - Rithöfundurinn Eygló Svala Arnarsdóttir heimsækir yngsta stig
- 11. október - Fæðingardagur forseta Íslands
- 13. október - Grenivíkurskóli 45 ára
- 24. október - Fyrsti vetrardagur
- 31. október - Hrekkjavaka
Matseðill
Útgefandi: Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is
Sími: 414-5413
Facebook: Grenivíkurskóli