Smore logo
remove_red_eye 396
page background

Fréttamolar úr MS

10. janúar 2023

Fréttamolar úr MS 10. janúar 2023

🎆 Gleðilegt nýtt ár! 🎆 🎆 Gleðilegt nýtt ár! 🎆

Gleðilegt nýtt ár kæru nemendur og aðstandendur!


Það er alltaf ánægjulegt að koma aftur í skólann á nýju ári, hitta skólafélagana og dusta rykið af námsbókunum. Vetrarönn er nú hálfnuð og miðannarmat birtist nemendum og forsjárfólki í Innu fimmtudaginn 12. janúar kl. 20. Miðannarmatið gefur vísbendingar um stöðu nemenda í áföngum og mikilvægt að skoða það vel og bregðast við eftir þörfum.


Það er ýmislegt á döfinni í MS á næstunni. MS mætir FVA í 1. umferð Gettu betur þriðjudaginn 10. janúar, FRÍS (rafíþróttakeppni framhaldsskólanna) hefst seinni hluta janúar og Morfís keppnir í fullum gangi. Nemendum gefst líka kostur á að taka þátt í landskeppnum í líffræði og efnafræði í janúar og febrúar (nánari upplýsingar hjá líffræði- og efnafræðikennurum).


Við vekjum athygli á því að stöðupróf í spænsku, ensku, rússnesku og þýsku verða haldin í MS miðvikudaginn 25. janúar á matsdegi og stöðupróf í albönsku verður haldið á matsdegi 20. febrúar. Stöðuprófin eru ætluð bæði nemendum okkar sem og öðrum nemum. Nánari upplýsingar um skráningu og verð má finna hér að neðan.

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 10. janúar - þriðjudagur - MS mætir FVA í 1. umferð Gettu betur í útvarpinu kl. 21
  • 12. janúar - fimmtudagur - Miðannarmat birtist í Innu kl. 20
  • 16.-20. janúar - Valvika hjá 1. ári - nánar kynnt í Krossgötutímum vikunnar
  • 25. janúar - miðvikudagur - Matsdagur
  • 26. janúar - fimmtudagur - Matsdagur

MS mætir FVA í 1. umferð Gettu betur 2023 MS mætir FVA í 1. umferð Gettu betur 2023

Þriðjudaginn 10. janúar mætir Gettu betur lið MS liði Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.

Sjá nánari upplýsingar hér!

Að gefnu tilefni Að gefnu tilefni

Skólinn hefur haft fregnir af því að nemendur MS ætli að hópast saman á skíði á Akureyri í lok janúar. Við leggjum áherslu á að svona ferð er ekki á vegum skólans eða skólafélagsins og engin skipulögð hópferð í gangi. Ef hópar nemenda úr MS fjölmenna á Akureyri hvetjum við foreldra til að vera vakandi yfir sínum börnum, hvort sem leiðin liggur á skíði eða annað. Loks ítrekum við að það er hefðbundinn skóladagur föstudaginn 27. janúar þrátt fyrir matsdaga dagana á undan og helgarfrí dagana á eftir.


Stjórnendur.

Stöðupróf framundan - smellið á myndirnar fyrir nánari upplýsingar Stöðupróf framundan - smellið á myndirnar fyrir nánari upplýsingar

zoom_out_map open_in_new
zoom_out_map open_in_new

Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla

zoom_out_map

Í MS er nú hægt að hlaða rafmagnsbíla með hleðslustöðvum Ísorku. Við bendum á að hleðslustæðin eru eingöngu ætluð bílum í hleðslu - aðrir eiga á hættu að vera dregnir í burtu. Þá má benda á að vanda sig við að leggja bílum í nágrenni við skólann, sérstaklega í þessari færð.

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter