Smore logo
remove_red_eye 521
page background

Fréttabréf VA

Febrúar 2020. 1. tölublað.

Fréttabréf VAFebrúar 2020. 1. tölublað.

Skólastarfið siglir sinn vanagang þrátt fyrir válynt veðurfar

Í febrúar hefur veðrið verið að stríða okkur og þurfti m.a. að blása skóla af einn föstudaginn. Þrátt fyrir það hefur skólastarfið gengið sinn vanagang. Nú eru námsmatsdagar og á þriðjudaginn er önnin hálfnuð sem þýðir að nemendur fá miðannarmat. Einnig hafa nemendur nú tækifæri til að lýsa skoðunum sínum á kennslu í áföngunum í gegnum áfangamat.


Undir lok mánaðarins var jafnlaunakerfi skólans tekið út og innan skamms mun það hljóta vottun sem helst í hendur við áframhaldandi innleiðingu á ISO 9001 staðlinum.


Í febrúar hófust kynningar skólans fyrir grunnskólanemendur. Þau Karen og Birgir fóru um allt Austurland á dögunum með nemendur sé til fulltingis og kynntu skólann. Voru móttökurnar afar góðar og við hlökkum til að taka á móti hluta þeirra nemenda sem við hittum í haust.


Auk þess heldur félagslífið áfram að vaxa og eflast. Í febrúar var haldið spilakvöld og FIFAmót ásamt því sem árshátíðin, kærleiksdagarnir og forvarnamálþing er handan við hornið.


Við tókum á móti ýmsum gestum eins og venjan er, m.a. ráðherra. Meira um þetta allt neðar.


Það er því alltaf nóg um að vera í VA, skólanum okkar!

Áfangamat

Hluti af innra mati skólans er að framkvæma áfangamat. Í áfangamati svara nemendur spurningum um þá áfanga sem þeir eru skráðir í. Áfangamatið er í INNU og þurfa nemendur því að skrá sig þar inn til að geta svarað.


Afar mikilvægt er að við náum góðri svörun, þannig eru niðurstöðurnar marktækar. Einnig er rétt að benda á að ef nemendur svara þá geta þeir fengið miða á árshátíðina. Meira um það hér fyrir ofan.

zoom_out_map

Skólakynningar

Steinunn Dagmar kynnir VA fyrir 10. bekkingum á Reyðarfirði
zoom_out_map

Skólakynningar

Adam Ingi kynnir VA fyrir 10. bekkingum á Eskifirði
zoom_out_map

Skólakynningar

Eysteinn og Ísabella Danía kynntu VA fyrir nemendum á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Djúpavogi

Skólakynningar

Í síðustu viku fóru þau Karen og Birgir um allt Austurland og kynntu VA. Með í för voru nemendur skólans sem báru kynningarnar uppi að miklu leyti. Í kynningum var fjallað um helstu námsleiðir, félagslíf, heimavist o.fl.


Móttökurnar voru alls staðar frábærar og þökkum við innilega fyrir þær. Nemendurnir á stöðunum spurðu mikið og voru á allan hátt til fyrirmyndar. Við hlökkum gríðarlega til að taka á móti sem flestum þeirra næsta haust.


Næst á dagskrá er að 10. bekkingar eru boðnir í heimsókn í VA þegar forvarnamálþingið verður, þann 27. mars. Síðan koma 9. bekkingar í Fjarðabyggð dagana 11.-15. maí og taka þátt í Verknámsviku. Kynningarstarf skólans er því í fullum gangi.

zoom_out_map

Nemendur keppa í FIFA

Fjölmenn FIFA keppni var haldin á heimavistinni
zoom_out_map

Spilakvöld

Nemendur hittust á heimavistarsal og spiluðu fjölbreytt spil
zoom_out_map

Nemendur máta nýja aðstöðu í stýringum

Hluti af námi í vélstjórn eru stýringar og nú er búið að koma upp nýrri aðstöðu fyrir nám í þeim.

Kærleiksdagar 4.-5. mars Kærleiksdagar 4.-5. mars

Kærleiksdagar verða haldnir 4.-5. mars. Rauði þráðurinn í dögunum er að safna fjármunum sem fara til góðgerðamálefnis sem nemendur velja. Auk þess verður ýmis skemmtun fyrir nemendur.
pdf
insert_drive_file
Dagskrá kærleiksdaga
Smellið hér til að sjá dagskránna stærri.
Download
751.6 KB

Molar úr félagslífinu

Ýmislegt var gert í félagslífinu í febrúarmánuði. Nemendafélagið stóð fyrir þremur smærri viðburðum í mánuðinum. Fjölmennt spilakvöld var haldið á heimavistinni og stuttu síðar fór þar fram FIFA mót þar sem FIFA spilarar kepptu frameftir kvöldi.


Á öskudaginn stóð nemendafélagið fyrir búningakeppni og kötturinn var sleginn úr tunnunni. Fjöldi nemenda mætti í búningum og úr varð mjög skemmtileg stund. Meira um þetta má lesa hér fyrir neðan.


Framundan eru kærleiksdagar og í kjölfar þeirra árshátíð. Kærleiksdagarnir eru 4. og 5. mars og síðan er árshátíðin um kvöldið. Þremur vikum síðar verður síðan forvarnamálþing. Það er því nóg um að vera í félagslífi og uppbroti hjá nemendum.

Öskudagurinn

Öskudagurinn

Í dag gerðu nemendur sér glaðan dag í tilefni af öskudeginum.

launch va.is

Umhverfis- og loftslagsstund

Þann 19. febrúar tóku Rótarýklúbbur Neskaupstaðar og Verkmenntaskóli Austurlands höndum saman og héldu umhverfis- og loftslagsstund í húsnæði skólans en umhverfis- og loftslagsmál eru mörgum hugleikin. Meðal framsögumanna voru Guðmundur H. Sigfússon, forseti Rótarýklúbbsins, Gerður Guðmundsdóttir og Ingibjörg Þórðardóttir kennarar við VA og Anna Karen Marinósdóttir nemandi.

Óhætt er að segja að Anna Karen hafi stolið senunni. Hún fjallaði um kolefnisfótspor, veganisma og fleira tengt umhverfismálum. Hún bað ekki um nokkur þúsund jarðarbúa sem væru fullkomnir gagnvart umhverfinu heldur 7 milljarða sem gerðu sitt besta!


Myndband af framsögu hennar má sjá hér fyrir neðan. Sjón er sögu ríkari!

Próftafla

Þann 5. maí hefst námsmatstímabil í skólanum og nú er ekki seinna vænna fyrir nemendur að byrja að skipuleggja sig. Hér fyrir ofan má sjá skipulagið.


Ef einhverjar spurningar vakna eruð þið hvött til að hafa samband við Karen aðstoðarskólameistara í karen@va.is

Adamsfjölskyldan

Undirbúningur fyrir sýningar á Adamsfjölskyldunni stendur yfir. Leikhópurinn slípast betur og betur saman og stefnt er að því að sýningar hefjist í lok mars.


Við hvetjum alla til að láta sjá sig á sýningum. Fylgist með auglýsingum framundan!

Ráðherra í heimsókn

Í febrúarmánuði heimsótti Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, skólann ásamt föruneyti sínu.


Fengu þau kynningu á skólanum og eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan var forsætisráðherra mjög hrifin af fataskiptaslánni okkar.


Meira um heimsókn Katrínar má finna hér fyrir neðan.

Góðir gestir

Góðir gestir

Í dag heimsóttu þær Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og aðstoðarkona hennar Bergþóra Benediktsdóttir skólann.

launch va.is

Erasmus+ fréttir

Nú fer að styttast í næsta hluta verkefnisins Will to MotivatE(U). Við munum taka á móti 20 kennurum frá samstarfslöndum okkar 20.-24. apríl og er skipulagning heimsóknarinnar komin í fullan gang. Verkefnishlutinn mun einkennast af fræðslu um forvarnir og Fab-lab.


Það verður gaman að sýna þeim skólann og austfirskt samfélag í leiðinni og ljóst er að áhuginn er mikill hjá þeim að koma.


Umsóknir um fleiri Erasmus verkefni hafa verið sendar inn auk þess að umsókn um áframhaldandi samstarfsverkefni er í burðarliðnum.


Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um erlent samstarf innan skólans.

Erasmus+ verkefni

Erasmus+ verkefni í VA 2019 - 2021 KA102 - Nám og þjálfun -  Barist gegn brottfalli í VA II Styrkupphæð: 16.740 evrur Verkefnið felst í ferðum

launch va.is

Tæknihornið: Screencastomatic

Í tæknihorninu að þessu sinni ætlum við að kynna fyrir ykkur forrit sem heitir Screencastomatic. Forritið hjálpar ykkur við að búa til myndband, t.d. af skjáum og tekur einnig upp hljóð. Þetta nýtist afar vel þegar gera á kennslumyndbönd eða einhvers konar sýnikennslu. Í forritinu er einnig hægt að klippa myndbönd og nýtist það því vel við alls kyns myndvinnslu.


Við hvetjum ykkur til að prófa. Það er hægt að sækja gjaldfrjálsa útgáfu.


Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar! Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar!

VA á Facebook
VA á Instagram
VA á Twitter

Á döfinni

Kærleiksdagar 4.-6. mars

Árshátíð NIVA 5. mars

Forvarnamálþing 27.-28. mars

Páskafrí: 4.-14. apríl

Verknámsvika 9. bekkjar í Fjarðabyggð: 11.-15. maí

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter