Hvalrekinn
17. febrúar 2026
Þá er vel liðið fram í febrúar og við finnum að daginn er farið að lengja. Námsviðtölum nýlokið en þau fóru fram miðvikudaginn 4. febrúar og það var ánægjulegt að rekast á mörg ykkar á göngum skólans eða við kaffisöluna hjá 6. bekk.
Þá er að líða að vetrarfríi (fimmtudag og föstudag) og síðan er skipulagsdagur hjá okkur á mánudaginn 23.febrúar.
Vonandi njótið þið vetrarfrísins með börnum ykkar og eigið góðar stundir saman.
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.
Öskudagur 18. febrúar
Öskudagurinn er miðvikudaginn 18. febrúar og hvetjum við alla til að koma í búningi þann dag. Nemendur mæta í skólann samkvæmt stundaskrá og eru til hádegis.
Velkomið að mæta með sparinesti í skólann. Athugið að orkudrykkir og sælgæti teljast ekki til sparinestis.
Nemendur sem eru skráðir í Holtaseli geta farið þangað að skóla loknum. Forráðamenn nemenda sem eiga pláss í Holtaseli láti vita ef þeir ætla ekki að nýta það þennan dag.
Breytt dagskrá er hjá nemendum í yngstu- og miðdeild en kennt er samkvæmt stundaskrá hjá nemendum í elstu deild
Vetrarfrí 19. og 20. febrúar
Vetrarfrí verður í grunnskólum Hafnarfjarðar, fimmtudaginn 19. og föstudaginn 20. febrúar. Þá daga er Holtasel lokað.
Frítt er í sund í vetrarfríi grunnskólanna og söfnin bjóða upp á spennandi dagskrá fyrir grunnskólabörn og fjölskyldur þeirra. Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um dagskrána:
Skipulagsdagur mánudaginn 23. febrúar
Mánudaginn 23. febrúar er skipulagsdagur hér í Hvaleyrarskóla. Einnig er skipulagsdagur í Holtaseli þannig að Holtasel verður lokað þennan dag.
Verið - dagskrá fyrir febrúar
9. bekkur í Borgarleikhúsinu
Stjórn foreldrafélagsins
Formaður - Lisa Maríudóttir Mahmic
Netfang: lisa.mahmic@gmail.com
Meðstjórnendur:
Guðvarður Ólafsson - varaformaður
Dagný Rós Stefánsdóttir - ritari
Margrét Fídes Hauksdóttir - gjaldkeri
Fanney Þóra Heimisdóttir
Guðrún Eydís Jónsdóttir
Klara Jóhanna Hlynsdóttir
Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum
Eins og undanfarin ár hefur Foreldrafélag Hvaleyraskóla ákveðið að styrkja bekkjartengla í 1. - 5. bekk um hámark 10.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig að kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði er sendar á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Þar sem fram þarf að koma er; nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekknum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjartengils. Foreldrafélagið endurgreiðir útlagðan kostnað eftir um viku.
Fræðslumyndbönd fyrir foreldra leik- og grunnskólabarna
Fræðslu- og rannsóknastofa um þroska læsi og líðan barna og ungmenna hefur útbúið myndbönd fyrir foreldra barna á Íslandi. Verkefnið var styrkt af samfélagssjóði Háskóla Íslands. Markmiðið er að kynna niðurstöður íslenskra og erlendra hágæðarannsókna á einfaldan og hagnýtan hátt.
Þetta eru tvö myndbönd, annars vegar Málörvun leikskólabarna og hins vegar Fjöltyngd börn í íslenskum leik- og grunnskólum. Síðarnefnda myndbandið er með textum á ýmsum tungumálum. Myndböndin fjalla um það hvernig foreldrar geta stutt við málþroska barna sinna og þar með gengi þeirra í námi.
Myndböndin eru aðgengileg á heimasíðu Rannsóknastofunnar https://menntavisindastofnun.hi.is/is/rannsokna-og-fraedslustofa-um-throska-laesi-og-lidan-barna-og-ungmenna
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/