Fréttamolar úr MS
25.02.2026
Gleðilega vorönn!
Gleðilega vorönn kæru nemendur! Ný önn - ný tækifæri. Í lok maí mun stór hópur útskrifast úr MS með tilheyrandi fagnaðarlátum. Í mars verður árshátíð SMS haldin með pomp og prakt, ný stjórn SMS kosin og svo hefst líka kynningarstarf þar sem við sameinumst um að kynna skólann okkar fyrir nýnemum næsta árs.
Við hlökkum til samstarfs á vorönn og vonum að ykkur gangi vel.
Dagsetningar framundan
Föstudagur 27. febrúar: Engin kennsla þennan dag vegna sameiginlegs starfsþróunardags framhaldsskóla.
Miðvikudagur 4. mars: Síðasti dagur til að skrá sig úr áfanga
Fimmtudagur 5. mars: Stjórnlagaþing SMS
Fimmtudagur 12. mars: Árshátíð SMS
Föstudagur 13. mars: Síðasti dagur til að skila framboðum til stjórnar SMS - nánari upplýsingar væntanlegar
Vikan 16.-19. mars: Kosningavika
Miðvikudagur 18. mars: Opið hús í MS kl. 15-17
Þriðjudagur og miðvikudagur 24.-25. mars: Matsdagar
Föstudagur 27. mars: Miðannarmat vorannar birtist í Innu
30. mars-6. apríl: Páskafrí
🎭 SMS X LEIKFÉLAGIÐ THALÍA KYNNA FÚTLÚS! 🎭
Leikfélagið Thalía sýnir Fútlús í Hlégarði í Mosfellsbæ - frumsýning 1. mars!!
Sýningar eru eftirfarandi:
1. mars kl. 20:00 - frumsýning
2. mars kl. 20:00
3. mars kl. 20:00
4. mars kl. 20.00
Fútlús byggir á kvikmyndinni Footloose sem kom út árið 1984. Myndin er vel þekkt fyrir skemmtilega tónlist, dans og áhrifaríka sögu. Leikfélagið Thalía lagði mikinn metnað í þetta verkefni, látið sýninguna ekki framhjá ykkur fara!
Miðasala á stubb.is
Sundvitinn til bjargar í tæknimálum
Sundvitinn leysir algengustu tæknivandamálin sem upp koma í MS.
Það er vinsamleg ósk frá Gísla tölvumanni að þegar upp koma mál sé fyrst leitað til Sundvitans áður en hann er sjálfur kallaður til. Slóðin er http://hjalp.msund.is/ - virkar aðeins í MS á MS netinu í bili.
Getnaðarvarnarfræðsla í MS 3. mars
Þriðjudaginn 3. mars heldur skólahjúkrunarfræðingurinn Jórunn Oddsdóttur getnaðarvarnarfræðslu fyrir nemendur. Jórunn getur skrifað upp á getnaðarvarnir fyrir þau sem þess óska og er kjörið fyrir nemendur að fá fyrst fræðslu um það sem er í boði. Fræðslan fer fram í Bjarmalandi kl. 12:05, öll velkomin!
Jórunn er með viðveru í MS tvo daga á viku og nemendur geta leitað til hennar með ýmis mál. Skrifstofa Jórunnar er í Rökstólum (innst í Jarðsteini).
Háskóladagurinn 28. febrúar
Á Háskóladeginum kynna allir háskólar landsins fjölbreyttar og spennandi námsleiðir sínar. Háskóladagurinn verður haldinn í Reykjavík laugardaginn 28. febrúar kl. 12:00-15:00. Kynningar verða í HÍ (Háskólatorgi, Öskju og Sögu), HR og Listaháskólanum þennan dag og verður hægt að Hoppa frítt á milli skólanna þennan dag.
Heimildaskráningarkerfi
Í Menntaskólanum við Sund er notast við APA-heimildaskráningarkerfið. Er þetta gert til að nemendur tileinki sér vandlega eitt kerfi og geti svo yfirfært það síðar á önnur kerfi í framtíðinni.
Á heimasíðu Ritvers Háskóla Íslands má finna gagnlegar og aðgengilegar upplýsingar varðandi ritgerðasmíð og heimildanotkun. Athugið að efnið á síðunni getur nýst framhaldsskólanemum afar vel þrátt fyrir að um heimasíðu háskóla sé að ræða.
Á síðunni má til dæmis finna eftirfarandi:
Menntaskólinn við Sund hefur sett reglur er varða heiðarleika í námi sem nálgast má hér.
Nýjungar í viðveruskráningu
Sú nýjung hefur verið gerð á vorönn að kennarar geta nú skráð brot á símareglum (B) og truflun í tíma (T) í viðveruskráningu. Slík skráning gefur ekki fjarvistarstig en auðveldar bæði kennurum, stjórnendum og foreldrum að styðja við nemendur í vanda og bregðast við. Ítrekuð skráning B og T hefur þau áhrif að nemendur verða kallaðir á fund stjórnenda og foreldrar eftir atvikum líka.
Að sjálfsögðu gerum við ráð fyrir að allir nemendur virði skólareglur og verkstjórn kennara.