Smore logo
remove_red_eye 1.2K
page background
page background

Hvalrekinn

7. desember 2023

Hvalrekinn 7. desember 2023

Jólakveðja frá starfsfólki Jólakveðja frá starfsfólki

zoom_out_map

Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleði- og hamingjuríkra jóla.


Megi gæfa og góð heilsa umvefja ykkur um hátíðina og á nýju ári.


Með kærleikskveðju,

stjórnendur og starfsfólk Hvaleyrarskóla.

zoom_out_map

Miðvikudagurinn 13. desember

  • Jólapeysudagur - bæði starfsmenn og nemendur eru hvattir til að koma í jólapeysu.
  • Jólamatur hjá Skólamat verður einnig þennan dag.
zoom_out_map

Litlu-jólin miðvikudaginn 20. desember

Nemendur mæta sem hér segir:

  • Kl. 8:20 - 10:30, nemendur í 1. og 2. bekk
  • Kl. 9:00 - 11:00, nemendur í 3. og 4. bekk
  • Kl. 9:50 - 11:50 nemendur í 5., 6. og 7. bekk
  • Kl. 9:15 - 11:15 nemendur í 8., 9. og 10. bekk
  • Gæsla verður fyrir þá nemendur í 3. og 4. bekk sem þurfa frá kl. 8:20 - 9:00.
  • Umsjónarkennarar munu fylgja þeim nemendum sem skráðir eru í Holtasel þangað að litlu jólum loknum.
  • Athugið að það er ekki hádegismatur þennan dag og mikilvægt að nemendur er fara í Holtasel komi með hádegisnesti. Það verður síðan síðdegishressing.
zoom_out_map

Öðruvísi jóladagatal hjá nemendum í yngstu deild

Nemendur í yngstu deild taka þátt í „Öðruvísi jóladagatali“ sem er á vegum SOS barnaþorpa. Þetta er sjötta árið í röð sem við tökum þátt í verkefninu. Í fyrra söfnuðust 100 þúsund krónur sem fóru í að styrkja nýtt fjölskyldueflingarverkefni SOS barnaþorpana í Malaví og í ár verður áfram safnað í fjölskylduverkefnið. Tilgangurinn með fjölskyldueflingunni er að hjálpa sárafátækum barnafjölskyldum að standa á eigin fötum.

Jóladagatalið gengur út á það að á hverjum degi sjá nemendur myndbönd frá ólíkum löndum í heiminum.

Í ár ætl­um við meðal annars að heimsækja Jórdaníu, Eþíópíu, Líbanon, Keníu, Bosníu Hersegóvínu, Kólumbíu, Mósamík og Nepal.

Hverj­um degi fylgja um­ræðupunkt­ar til að nem­end­ur geti rætt sam­an um efni dags­ins og einnig verð­ur hægt að vinna ýmis verk­efni í tengsl­um við hvern dag.

Kennsla hefst að loknu jólafríi samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 4. janúar 2024 Kennsla hefst að loknu jólafríi samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 4. janúar 2024

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Á döfinni í janúar 2024

  • Kennsla hefst fimmtudaginn 4. janúar

  • Lesferill – allir nemendur prófaðir í 1. – 10. bekk

  • Orðarún – nemendur í 3. – 8. bekk prófaðir

  • Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk

  • Valgreinar vorannar hefjast 15. janúar

  • Námsviðtöl þriðjudaginn 6. febrúar

zoom_out_map

Slökkviliðið í heimsókn

Þriðjudaginn 28. nóvember kom slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í heimsókn til okkar í Hvaleyrarskóla. Þetta er árviss heimsókn slökkviliðsins í grunnskóla höfuðborgarsvæðisins í þeirra eldvarnarátaki. Nemendur fengu fræðslu á sal og síðan var haldið út þar sem sjúkrabíll og slökkviliðsbíll voru skoðaðir.

Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni.

zoom_out_map

Lestrarsprettur í nóvember

Lestrarsprettii 2023 „Lestur er líkamsrækt heilans“ lauk þann 1.des. og stóðu krakkarnir sig mjög vel. Í tilefni þess var haldin uppskeruhátíð hér í skólanum. Allir nemendur fengu mjólk og kleinu.


Við þökkum ykkur góðan lestrarsprett og hvetjum ykkur til að halda áfram að lesa með barninu/börnunum ykkar.

Jólabingó Versins Jólabingó Versins

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Piparkökumálun foreldrafélagsins

Sunnudaginn 26. nóvember hélt foreldrafélagið piparkökudag með piparkökumálun á sal skólans. Málunin stóð frá kl. 11:00 til 13:00. Viðburðurinn var fyrir nemendur úr öllum bekkjum skólans ásamt fjölskyldum.

Foreldrafélagið bauð upp á piparkökur og glassúr. Einhverjir mættu með sitt eigið kökuskraut.


Þá var 10. bekkur með fjáröflun fyrir vorferð. Þau seldu kaffi, kakó og vöfflur. Mætingin var mjög góð og það góð að nemendur seldu upp allt það sem þau ætluðu að selja.


Mjög góð mæting var af nemendum og foreldrum.

Dagskrá Versins í desember 2023 Dagskrá Versins í desember 2023

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum

Eins og undanfarin ár hefur Foreldrafélag Hvaleyraskóla ákveðið að styrkja bekkjartengla í 1. - 5. bekk um hámark 10.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig að kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði er send á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Þar sem fram þarf að koma er; nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekknum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjartengils. Foreldrafélagið endurgreiða útlagðan kostnað eftir um viku.

Það er mikilvægt að efla starfið í foreldrafélaginu og í kringum börn okkar.

Skólasöngur Hvaleyrarskóla - Hvaleyrarskóli 30 ára

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter