Smore logo
remove_red_eye 808
page background

Fréttamolar úr MS

16. september 2024

Fréttamolar úrMS16. september 2024
zoom_out_map

Haustönn í MS fer vel af stað. Nýnemadagar og nýnemaball fór vel fram og mikið fjör hjá nemendum. Samstarf við foreldra hefur gengið mjög vel og var metþátttaka á foreldraröltinu við nýnemaballið, takk foreldrar! Það var frábær þátttaka í edrúpotti á nýnemaballinu og styrkti foreldraráð edrúpottinn með peningagjöfum. Upplýsingafundur fyrir foreldra nýnema fór fram þann 4. september og eru glærur frá þeim fundi aðgengilegar á heimasíðu skólans.



Á döfinni eru matsdagar 18.-19. september, haustfrí á föstudaginn 20. september og svo íþróttavika Evrópu sem við fögnum í skólanum í næstu viku.

Matsdagar og haustfrí framundan 📆 Matsdagar og haustfrí framundan 📆

Miðvikudagurinn 18. september og fimmtudagurinn 19. september eru fyrstu matsdagar haustannar. Dagskrá matsdaga er birt á heimasíðu skólans á morgun, þriðjudag. Föstudagurinn 20. september er haustfrísdagur og þá er skólinn lokaður. Mikilvægt er að nemendur séu í góðu sambandi við sína kennara varðandi verkefni á matsdögum.

open_in_new zoom_out_map

Skóladagatal 2024-2025 Skóladagatal 2024-2025

Smellið á myndina til að sjá hana í betri upplausn

Íþróttavika Evrópu #beactive Íþróttavika Evrópu #beactive

Íþróttavika Evrópu verður haldin í skólanum 23.-26. september. Dagskrá er í höndum íþróttakennara í samstarfi við stjórnendur og nemendafélagið. Nánari dagskrá birtist á næstu dögum.

Skólahjúkrunarfræðingur 🏥 Skólahjúkrunarfræðingur 🏥

zoom_out_map

Skólahjúkrunarfræðingur Menntaskólans við Sund er Berglind Guðmundsdóttir. Nemendur geta komið við, bókað tíma rafrænt eða sent tölvupóst. Fyrirspurnir mega vera nafnlausar. Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.


Viðverutími og staðsetning

  • Viðvera: Þriðjudaga kl 9-15 og miðvikudaga kl 8-11
  • Staðsetning: Undraland (innst til vinstri í Jarðsteini, við hliðina á Björk náms- og starfsráðgjafa)

Hlutverk

Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:

  • Meiðsli og sjúkdóma
  • Áfengis- og eiturlyfjaneyslu
  • Reykingar
  • Kynheilbrigði
  • Tilfinningaleg og geðræn vandamál
  • Verki eða vanlíðan
  • Mataræði og hreyfing
  • Sjálfsmynd og líkamsímynd

Auk viðtalstíma fyrir nemendur mun skólahjúkrunarfræðingur


  • vera með fræðslu í skólanum sem tengist heilbrigðismálum
  • vera í samstarfi við forvarnarfulltrúa skólans við vinnu að forvörnum
  • vera innanhandar með ráðgjöf til kennara og starfsfólks
  • sjá um eftirfylgni nemenda sem eiga við veikindi eða önnur vandamál að stríða
  • finna meðferðarúrræði fyrir nemendur sem á því þurfa að halda.
➡️ Smelltu hér til að bóka tíma hjá Berglindi ⬅️

Stoðtímar í stærðfræði Stoðtímar í stærðfræði

zoom_out_map

Boðið verður uppá stoðtíma í stærðfræði á haustönn 2024.


Tímarnir verða á þriðjudögum kl. 14:40-15:40 og á fimmtudögum kl 15-16 í stofu AÐA21.


Athugið að skráning er nauðsynleg - skráning á skrifstofu skólans.


Tímarnir eru fyrir alla nemendur í stærðfræði og eru sérstaklega hugsaðir fyrir þau sem þurfa aukinn stuðning. Ef spurningar vakna getið þið haft samband við ykkar stærðfræðikennara eða námsráðgjafa.


Hvetjum ykkur til að nýta ykkur stærðfræðiaðstoð!

Ert þú í tæknivandræðum? 💻🖨️ Ert þú í tæknivandræðum? 💻🖨️

zoom_out_map

Ert þú í tæknivandræðum? Á heimasíðu skólans má finna lausn á ýmsum tæknivandamálum með ítarlegum leiðbeiningum um kerfin sem við notum í MS. Endilega skoðið leiðbeiningarnar vel og vandlega og svo er hægt að leita til Jóhanns tölvuumsjónarmanns á bókasafninu ef frekari aðstoðar er þörf.

💻🖨️ ➡️ Smelltu hér fyrir heimasíðu tölvuumsjónar ⬅️ 💻🖨️

Náms- og starfsráðgjöf Náms- og starfsráðgjöf

Í MS starfa þrír námsráðgjafar sem aðstoða nemendur við ýmis mál. Á heimasíðunni má lesa meira um þjónustuna.

➡️ Smelltu hér til að bóka tíma hjá námsráðgjafa ⬅️

Göngum betur um skólann okkar! Göngum betur um skólann okkar!

TikTok - Make Your Day

TikTok - Make Your Day

launch tiktok.com

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter