Smore logo
remove_red_eye 369
page background

Fréttabréf Síðuskóla

8. bréf - apríl - skólaárið 2025-2026

FréttabréfSíðuskóla8. bréf - apríl - skólaárið 2025-2026

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk! Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

User uploaded image
zoom_out_map

Margt hefur drifið á daga okkar hér í Síðuskóla að undanförnu. Hæst ber að skólinn hlaut umhverfisverðlaun Terra, viðurkenning sem við erum ákaflega stolt af og undirstrikar þá góðu vinnu sem við höfum lagt í sem Grænfánaskóli til tuttugu ára. En nú er farið er að síga á seinni hlutann á skólaárinu en enn er ýmislegt er framundan hjá okkur. Við hefjum aprílmánuð á páskafríi en fyrsti skóladagur eftir páska er þriðjudagurinn 7. apríl. Þemadagar verða 21. og 22. apríl þar sem allir árgangar taka þátt með fjölbreyttum hætti. Miðstigið nýtir þemadagana til að undirbúa verkefni í tengslum við Barnamenningarhátíð, sem haldin verður seinni þemadaginn, miðvikudaginn 22. apríl klukkan 14-16.


Þrátt fyrir rysjótt veður að undanförnu vitum við að vorið er handan við hornið og því sendum við sólarkveðjur úr Síðuskóla 🌞


Ólöf, Helga og Anna María

Umhverfisverðlaun Terra 2025 Umhverfisverðlaun Terra 2025

User uploaded image
zoom_out_map

Á dögunum hlaut Síðuskóli umhverfisverðlaun Terra fyrir árið 2025 á landsbyggðinni fyrir framúrskarandi árangur í flokkun úrgangs og markvissa vinnu í þágu sjálfbærni. Í fréttatilkynningu á heimasíðu Terra segir að verðlaunin séu veitt í viðurkenningarskyni fyrir öflugt og samstillt starf nemenda og starfsfólks við að draga úr úrgangi, auka endurvinnslu og efla umhverfisvitund.

Verðlaunin eru svo sannarlega hvatning til áframhaldandi góðra verka og staðfesting á því að markviss umhverfisfræðsla skilar árangri.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Hæfileikakeppni Akureyrar fer fram 22.apríl kl.16 í Hofi. Hæfileikakeppnin er árlegur viðburður fyrir börn í 5. - 10. Bekk í tengslum við Barnamenningarhátið. Eins og orðið hæfileikakeppni gefur til kynna er um að ræða fjölbreytta keppni enda geta hæfileikar verið afar fjölbreyttir. Dæmi um atriði sem gætu skráð sig til leiks geta verið á sviði sönglistar, leiklistar, danslistar, töfrabragða og hljóðlistar svo eitthvað sé nefnt. Atriðin geta verið einstaklingsatriði, paraatriði eða hópatriði. Með viðburðinum viljum við vinna með styrkleika og og hæfileika barna og unglinga. Slíkur viðburður getur verið vettvangur fyrir ungt fólk á Akureyri til þess að koma sér á framfæri en fyrst og fremst er um að ræða mikilvægan stökkpall fyrir einstaklinga til þess að stíga út fyrir þægindarammann sinn. Hægt að skrá sig til leiks til 14. apríl. Hér er hlekkur á skráningu: Hæfileikakeppni Skráning

Frekari upplýsingar veitir hulda.osk.jonsdottir@akureyri.is

Vinningshafar í 100 miða leiknum Vinningshafar í 100 miða leiknum

Þann 12. febrúar sl. hófum við 100 miða leikinn sem er árlegur viðburður í skólastarfinu. Leikurinn stendur yfir í tvær vikur og er markmiðið með honum að hvetja nemendur til að fara eftir SMT skólareglunum. Starfsmenn gefa 10 nemendum á dag sérstaka hrósmiða sem eru settir á spjald með reitum merktum frá 1 til 100. Búið er að velja vinningsröð á spjaldinu og kemur svo í ljós í lok leiks hvaða nemendur eru í vinningsröðinni. Í ár voru 10 heppnir nemendur sem áttu miða í vinningsröðinni og fengu þau að fara saman í 600 klifur og gera sér glaðan dag.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

100 miða leikur, 26. mars 2026 · Friday, Mar 27 📸

Shared album · Tap to view!

launch photos.app.goo.gl

Vinningshafi í teiknisamkeppni MS Vinningshafi í teiknisamkeppni MS

Hvert skólaár heldur Mjólkursamsalan teiknisamkeppni grunnskólanema í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn. Í ár bárust rúmlega 1.300 teikningar frá um 70 skólum um land allt. Að lokum eru tíu myndir valdar til verðlauna.

Eina af þessum verðlaunamyndum á Karen Hannesdóttir, nemandi í 4. bekk í Síðuskóla og hlýtur hún 40.000 króna peningagjöf sem rennur í bekkjarsjóð 4. bekkinga. Við óskum Karen innilega til hamingju með þessa skemmtilegu viðurkenningu.


Hér fyrir neðan má sjá sjálfa verðlaunamyndina.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Barnamenningarhátíð í Síðuskóla

Nemendur á miðstigi eru þessa dagana að undirbúa þátttöku sína í Barnamenningarhátíðinni á Akureyri sem haldin er dagana 1.–27. apríl. Þetta er í þriðja sinn sem nemendur Síðuskóla taka formlega þátt í hátíðinni.

Miðvikudaginn 22. apríl verður Barnamenningarhátíð í Síðuskóla milli kl. 14:00 og 16:00.

Dagskrá hátíðarinnar:

· Listasýning: Sýning á verkum nemenda á miðstigi. Þar fá nemendur að sýna sköpun sína og vinna með fjölbreytt efni og miðla.

· Skemmtiatriði á sviði: Nemendur geta sýnt hæfileika sína í söng, leiklist, dansi eða annars konar sviðslistum.

· Sköpunarsmiðja: Opið rými þar sem allir eru velkomnir til að vinna saman að skapandi verkefnum. Í sameiginlegri listsköpun fá þátttakendur tækifæri til að kynnast hvort öðru á nýjan hátt, deila hugmyndum og upplifa gleði sköpunarinnar saman.

· Kaffihús: Kaffihúsið verður rekið af nemendum sem hluti af viðburðinum.


Markmið Barnamenningarhátíðarinnar er að hvetja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi og efla sköpunarkraft þeirra. Síðuskóli er stoltur þátttakandi í þessu mikilvæga framtaki og hvetur alla til að mæta.

Listsköpun í Síðuskóla Listsköpun í Síðuskóla

Í skólanum leggjum við ríka áherslu á öfluga og fjölbreytta list- og verkgreinakennslu þar sem nemendur fá tækifæri til að njóta sín, skapa og þróa hæfileika sína. Hluti af þeirri vinnu er skemmtileg hefð sem hefur skapast, að setja reglulega upp verk nemenda til sýnis á göngum skólans. Við erum afar stolt af sköpunargleði og metnaði nemenda okkar og hvetjum ykkur til að skoða myndirnar og njóta með okkur ef þið eigið leið um skólann.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Síðuskóli tekur þátt í Fiðringi á Norðurlandi Síðuskóli tekur þátt í Fiðringi á Norðurlandi

User uploaded image
zoom_out_map

Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í anda Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Fiðringur fer fram í Hofi 6. maí. Í Síðuskóla er hópur nemenda að undirbúa þátttöku, leiðbeinandinn er Eden Hróa. Það verður spennandi að sjá afraksturinn í Hofi í maí!

Einstakur apríl Einstakur apríl

User uploaded image
zoom_out_map

Við hvetjum alla til að nota apríl til að kynna sér einhverfu. Á heimasíðu félagsins, https://www.blarapril.is/ er til að mynda að finna frábærar stuttar teiknimyndir sem tilvalið er fyrir foreldra að skoða með börnunum sínum og þannig skapa umræðu um margbreytileikann.

Á döfinni Á döfinni

User uploaded image
zoom_out_map

7. apríl

Kennsla hefst eftir páskafrí

Danskur farkennari hjá okkur í Síðuskóla og verður til 24. apríl

7. apríl

Hinsegin fræðsla frá Samtökunum 78, 9. bekkur kl. 8.10-9.30

8. apríl

Hinsegin fræðsla frá Samtökunum 78, 6. bekkur kl. 10.10-11:15

9. og 10. apríl

Hinsegin fræðsla rá Samtökunum 78, 3. bekkur kl. 12.30-13.10 báða dagana

21.-22. apríl

Þemadagar, skóli frá 8.10-13.00

22. apríl

Söngsalur

Barnamenningarhátíð - góðgerðarhátíð nemenda á miðstigi

23. apríl

Sumardagurinn fyrsti, frídagur

28. eða 30. apríl

Strákar/stálp í hjúkrun í 9. bekk í smiðjutíma

29. apríl

Skólahreysti, Norðurlandsriðill

Skóladagatal 2026-2027 Skóladagatal 2026-2027

Skóladagatal næsta skólaárs liggur ljóst fyrir. Hér má sjá mynd af því, gott fyrir þá sem vilja skipuleggja sig lengra fram í tímann. Það er einnig að finna á heimasíðu skólans.

Skóladagatal 2026-2027

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter