Smore logo
remove_red_eye 115
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

9. tbl. 6. árg. - nóvember 2025

FréttabréfGrenivíkurskóla9. tbl. 6. árg. - nóvember 2025

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Áfram flýgur tíminn og nóvember handan við hornið! Framundan er myrkasti tími ársins og þá er um að gera að leita allra leiða til að létta lundina og lýsa upp skammdegið. Við minnum á að gott er að skoða fatnað og töskur barnanna með tilliti til endurskinsmerkja, þau gera gæfumun.


Október var fjölbreyttur og skemmtilegur hjá okkur. Á dagskrá voru t.d. tónleikar hjá Tónlistarskóla Eyjafjarðar, Reykjaferð hjá 7. og 8. bekk, skólaheimsóknir í framhaldsskólana á Akureyri hjá 9.-10. bekk, hrekkjavaka og ótalmargt fleira. Myndir frá völdum viðburðum og almennt úr skólalífinu má nálgast neðar í fréttabréfinu.


Nóvember verður að sama skapi viðburðaríkur. Ber fyrst að nefna foreldraviðtöl, en þau fara fram fimmtudaginn 13. nóvember. Miðvikudaginn 12. nóvember er starfsdagur og frí hjá nemendum. Frekari upplýsingar og skráning í foreldraviðtöl berast ykkur í tölvupósti á næstunni.


Að lokum bendi ég á þetta skemmtilega viðtal við rithöfundinn Brynhildi Þórarinsdóttur um barna- og ungmennabókmenntir og mikilvægi þess að hefja lestraruppeldi strax í fæðingarorlofi. Hvet ykkur til að kíkja á það!


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Nemendaráð 2025-2026 Nemendaráð 2025-2026

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendur á unglingastigi og miðstigi kusu fulltrúa í nemendaráð fyrir skólaárið 2025-2026 um daginn. Á unglingastigi voru kosnir þrír fulltrúar, en tveir á miðstigi. Nemendaráðið er að þessu sinni skipað eftirtöldum nemendum:


Katla Eyfjörð Þorgeirsdóttir - 10. bekkur

Ágúst Hrafn Guðjónsson - 9. bekkur

Sindri Páll Ragnarsson - 9. bekkur

Lilja Katrín Harðardóttir - 5. bekkur

Páll Þórir Þorkelsson - 5. bekkur


Við óskum þeim til hamingju með kjörið og höfum fulla trú á því að þau sinni störfum sínum af krafti í vetur.

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins í vetur verður sjónum meðal annars beint að hinum ýmsu hugtökum sem varða umhverfisnefnd.


Hugtak nóvembermánaðar er hringrás kolefnis. Í náttúrunni eru margir ferlar samtímis í gangi. Vistkerfi í góðu ástandi eru með virkar hringrásir kolefnis, vatns, næringarefna og kolefnis og súrefnis.


Hér má nálgast frekari upplýsingar um hringrás kolefnis.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "nýjar leiðir í nóvember". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • 8.-10. bekkur á SAM-skóladegi í Stórutjarnaskóla - 23. september
  • 7. og 8. bekkur á Reykjum - 6.-9. október
  • Tónleikar hjá Tónlistarskóla Eyjafjarðar - 15. október 2025
  • 9. og 10. bekkur í heimsókn í MA, VMA og á heimavistinni - 8. október
  • 1.-4. bekkur á sýningunni Jazz-hrekkur - 27. október
  • Ýmsar myndir af yngsta stigi - október
  • Hrekkjavaka - 31. október

Á döfinni í nóvember Á döfinni í nóvember

  • 3. nóvember: Skáld í skólum.
  • 7. nóvember: Danssýning kl. 13:00.
  • 8. nóvember: Baráttudagur gegn einelti.
  • 12. nóvember: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
  • 13. nóvember: Viðtalsdagur.
  • 16. nóvember: Dagur íslenskrar tungu.
  • 19. nóvember: Valgreinar - 2. lota hefst.
  • 20. nóvember: Dagur mannréttinda barna.
  • 30. nóvember: Fyrsti sunnudagur í aðventu.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter