Fréttabréf Engidalsskóla júní 2026
Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
Kæru foreldrar/forsjáraðilar.
Nú fer skólaárinu 2025-2026 senn að ljúka. Núna í maí höfum við verið að fá niðurstöður úr alskyns könnunum og prófum sem við gerum hér stuttlega grein fyrir.
Við erum afar ánægð með niðurstöður Skólapúlsins í ár. Niðurstöður nemendakönnunar eru mjög góðar og sýna meðal annars að nemendum líður vel í skólanum og að vel hefur tekist til í vinnu gegn einelti. Þó markmiðið sé ávallt að útrýma einelti alveg er ánægjulegt að sjá þann góða árangur sem náðst hefur. Nánari upplýsingar um niðurstöðurnar má sjá á heimasíðu skólans.
Niðurstöður kennarakönnunar Skólapúlsins eru einnig mjög jákvæðar. Starfsánægja meðal kennara er mikil og 100% ánægja mælist með kennarastarfið. Það er því óhætt að segja að börnin ykkar séu í höndum öflugra og metnaðarfullra fagmanna. Menntunarstig starfsfólks hefur einnig hækkað mikið á síðustu árum, leiðbeinendum fækkar jafnt og þétt og margir kennarar eru að bæta við sig sérhæfingu. Má þar nefna að flestir list- og verkgreinakennarar hafa verið að sækja sér frekari menntun við Háskóla Íslands til að efla þannig sérþekkingu sína enn frekar.
Niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófum í stærðfræði og lesskilningi komu einnig vel út. Foreldrar geta nú skoðað niðurstöður síns barns á island.is. Landsmeðaltal mælitölu í bæði stærðfræði og lesskilningi er 10. Nemendur í 4. og 5. bekk náðu mælitölunni 11 í báðum greinum, 6. bekkur var með mælitöluna 10 í báðum greinum og 7. bekkur með mælitöluna 9 í báðum greinum. Mikilvægt er líka við greiningu þessara gagna að skoða sérstaklega dreifingu nemenda á efstu og neðstu hæfniviðmiðum.
Lesfimin kemur ágætlega út í flestum árgöngum tveir árgangar eru þó rétt undir landsmeðaltalinu (mælitölu 10) með mælitöluna 9, tveir með mælitöluna 10 og þrír með mælitöluna 11. Þegar gögnin eru rýnd þá verður því miður að segjast að almennt eru þeir sem æfa sig lítið heima að koma verr út en þeir sem æfa sig reglulega heima. Við vonum að þið foreldrar/forsjáraðilar sjáið til þess að nemendur æfi sig í sumar á einhverskonar lestri til að viðhalda þeirri færni og hraða við umskráningu sem náðst hefur og jafnvel bæta í. Nánari greiningu á niðurstöðunum er að finna hér neðar í fréttabréfinu.
Af starfsmannamálum er það helst að frétta að Emilía Þorsteinsdóttir kemur ekki til starfa hjá okkur eins og áður hafði verið greint frá. Í hennar stað höfum við ráðið Valborgu Ragnarsdóttur, reynslumikinn og öflugan kennara, og bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.
Einnig hefur Dagný Gréta Hermannsdóttir verið ráðin í ársafleysingu vegna fæðingarorlofs og nú stendur yfir ráðning á kennara til að fylla skarð Sunnu Dísar sem hefur tekið við starfi deildarstjóra yngsta stigs. Við þurfum ekki að auglýsa eftir skóla- og frístundaliðum og verður frábært að fara inn í næsta vetur með flottu fólki sem allt þekkir Engidalsskóla vel.
Allir árgangar fara í vorferðir á næstu dögum og munu foreldrar fá nánari upplýsingar í föstudagspóstum frá umsjónarkennurum.
Nemendur miðstigi tóku þátt í Krakkakosningum í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí síðastliðinn. Fyrir kosningarnar fengu nemendur að horfa á stutt myndband þar sem fulltrúar ungmennaráðs Hafnarfjarðar ræddu við fulltrúa allra framboða og lögðu fyrir þau spurningar sem snerta ungt fólk í bænum. Niðurstöður Krakkakosninga í Hafnarfirði má finna hér.
Skólaslit verða haldin 9. júní og verða þau, líkt og í fyrra, utandyra. Dagskráin hefst klukkan 16:30 með ávarpi skólastjóra, við fáum tónlistaratriði frá nemendum og svo verður formleg útskrift 7. bekkjar og aðrir bekkir fá sinn vitnisburð afhentan. Að því loknu mun Páll Óskar gleðja okkur með nokkrum lögum. Við hlökkum til að eiga saman skemmtilega stund og fagna góðum vetri.
Skólastarf hefst aftur að loknu sumarfríi með foreldrasamtölum þriðjudaginn 25. ágúst.
Með bestu kveðju,
Skólastjórnendur Engidalsskóla.
Lesfimi vor 2026
Fjólubláu súlurnar sýna hlutfall nemenda í neðsta-, mið- og efsta þrepi. Sveru súlurnar eru Engidalsskóli og þær grennri landið. Við sjáum sem dæmi að í flestu árgöngum erum við með færri nemendur í neðsta þrepi en landi (sem er gott) og mjög mikill munur er bæði í 5. og 4. bekk á Engidalsskóla og landinu. Við viljum líka sjá efsta þrepið breiðara en landsmeðaltalið og það sjáum við í 2., 4. og 5. bekk. Í blá súluritinu sést að þátttaka í Engidalsskóla er mjög mikil sem skiptir auðvitað miklu máli þegar verið er að bera skólann saman við landsmeðaltal.
Árangur einstaka bekkja
1. bekkur – Allir nemendur tóku prófið og geta lesið þó mishratt. Mælitala árgangsins er rétt fyrir ofan 10 (var rétt undir 10 í janúar). Engin er í neðsta fjórðungi, fjórir nemendur ofarlega næst neðsta fjórðungi og þrír í efsta fjórðungi með mælitöluna 13-19. Aðrir nemendur eru í flokknum meðallag en flest ofarlega í þeim hópi.
2. bekkur – Mælitala árgangsins er 11. Einungis tveir nemendur í neðsta fjórðungi (ofarlega þar) og þrír ofarlega í þeim næsta. Hér eru átta nemendur í efsta fjórðungi með mælitöluna 13-19.
3. bekkur – Mælitala árgangsins er 9. Sex nemendur eru í tveimur neðsta fjórðungunum. (ofarlega þar) og þrír ofarlega í þeim næsta. Stærsti hlutinn hér er í meðallagi en fjórir nemendur eru í efsta fjórðungi með mælitöluna 13-19.
4. bekkur – Mælitala árgangsins er 11. Einungis einn nemandi er í neðsta fjórðungi (ofarlega þar) og þrír í þeim næsta. Hér eru átta nemendur í efsta fjórðungi með mælitöluna 13-19.
5. bekkur – Mælitala árgangsins er 11. Enginn nemandi er í neðsta fjórðungi og einungis einn í þeim næsta. Hér eru sjö nemendur í efsta fjórðungi með mælitöluna 13-19.
6. bekkur – Mælitala árgangsins er 9. Einungis einn nemandi er í neðsta fjórðungi (ofarlega þar) en sex í þeim næsta. Hér eru einungis tveir nemendur í efsta fjórðungi með mælitöluna 13-19.
7. bekkur – Mælitala árgangsins er 10. Einungis tveir nemendur í neðsta fjórðungi (ofarlega þar) og fjórir ofarlega í þeim næsta. Hér eru einungis fjórir nemendur í efsta fjórðungi með mælitöluna 13-19.
Maí - lestrarsprettur
Maí - lestrarspretti lauk 17. maí. Keppni var á milli árganga innan stiga á yngsta stigi var það 4. bekkur sem vann og lásu nemendur í þeim árgangi samtals 6.801 mínútur. Í heildina las allt yngsta stig19.151 mínútur.
Á miðstigi var það 5. bekkur sem vann og lásu nemendur í þeim árgangi samtals 2.951 mínútur. Í heildina las miðstigið í 8.379 mínútur.
Lestrarþjálfun í skóla og heima
Það er samstarfsverkefni heimilis og skóla að tryggja börnum farsælt lestrarnám og góða lestrarfærni.
Lestur er undirstaða alls náms og því mikilvægt að þjálfun hans fari jafnt fram í skóla og heima. Heimaþjálfunin eykur líkur á árangri. Hér til hliðar eru tillögur að heimaþjálfun sem FLÍS félag læsisfræðinga á Íslandi tók saman
Uppeldi til ábyrgðar - Skýr mörk Engidalsskóla
Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is
Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.
Hollt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka
Útivistarreglur barna
Engidalsskóli
Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433