Smore logo
remove_red_eye 71
page background

Fréttabréf Flóaskóla

nóvember 2026

FréttabréfFlóaskólanóvember 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Starfið í skólanum gengur vel, allt er með nokkuð hefðbundnu sniði og gott að geta einbeitt sér að náminu þó uppbrot í skólastarfinu sé vissulega skemmtilegt og lærdómsríkt.


Nemendastýrð viðtöl voru í skólanum um miðjan október. Þetta er þriðja árið sem við í Flóaskóla höfum þennan háttinn á í haustviðtölum skólans og það er einstaklega ánægjulegt að sjá hversu mikinn metnað mörg barnanna leggja í kynningar sínar. Við þökkum öllum foreldrum og forsjáraðilum sem komu til okkar kærlega fyrir komuna og vonum að heimsóknin hafi gefið góða innsýn í skólastarfið hjá börnunum ykkar.


8. nóvember alþjóðlegur dagur gegn einelti ber upp á sunnudag að þessu sinni. Hefð er fyrir því í Flóaskóla að vera með Vinaleika í tengslum við þennan dag. Vinaleikarnir verða að þessu sinni haldnir 9. nóvember. Í skólanum eru vinabekkir sem haldast milli ára, 1. og 6. bekkur eru vinabekkir, 2. og 7. bekkur, 3. og 8. bekkur, 4. og 9. bekkur og síðan 5. og 10.bekkur. Á vinaleikunum hittast þessir bekkir og vinna saman í ýmsum skemmtilegum verkefnum má þar nefna forritun, félagsvist, ratleik, þrautalausnir og heimilisfræði. Þessi samvinna skiptir miklu fyrir samskipti eldri og yngri nemenda og skapar góða heild í skólasamfélaginu.


Fyrirhugað var að elsta stig skólans myndi vera með leiksýningu upp úr miðjum nóvember, tekin hefur verið ákvörðun um að fresta henni fram yfir áramót til að hægt sé að undirbúa sýninguna nægilega vel. Stefnt er að sýningu í lok janúar en það verður nánar auglýst þegar nær dregur.


Það fer að styttast í aðventuna með sínum hefðbundnu viðfangsefnum en nemendur á öllum stigum eru þessa dagana að sinna fjölbreyttum verkefnum bæði tengdum hefðbundnum námsgreinum en líka út frá þemanu læsi sem er sá grunnþáttur sem unnið er með þessa dagana í skólanum.


Bestu kveðjur úr Flóaskóla

Þórunn Jónasdóttir

Dansinn dunar

Jón Pétur kom með sína árlegu danskennslu til okkar seinni hluta október. Líkt og áður er þetta dýrmæt og skemmtileg viðbót við starfið okkar. Honum er einstaklega lagið að ná öllum nemendum með sér og skapa skemmtilega stemming kringum dansinn. Aðstandendum var svo boðið að koma og fylgjast með og taka þátt í síðasta danstímanum sem var sameiginlegur fyrir allan skólann og það var gaman að sjá hversu margir tóku þátt í lokadansinum með krökkunum.
User uploaded image
zoom_out_map

yngsta stig

User uploaded image
zoom_out_map

miðstig

User uploaded image
zoom_out_map

elsta stig

Kynningarferð í ML

Hefð er fyrir því að nemendur í 10. bekk fari í heimsókn á kynningardag í Menntaskólann að Laugarvatni. Kynningardagur var haldinn fimmtudaginn 29. október. Nemendum í efstu bekkjum grunnskóla á Suðurlandi er boðið. Nemendur og kennarar ML kynntu gestum staðinn, húsakynni, námsgreinar, aðbúnað og félagslíf. Eftir síðdegisverð í boði skólans var nemendum og starfsmönnum grunnskólanna boðið á söngkeppni skólans, Blítt og létt. Þetta er alltaf skemmtilegur viðburður og bæði fróðlegt og skemmtilegt fyrir krakkana að fá svona góða innsýn í starf Menntaskólans.


User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Menningarferð 8.-10. bekkja

Nemendur á elsta stigi fóru í Menningarferð til Reykjavíkur ásamt samstarfsskólum okkar í Uppsveitum Árnessýslu 4.11. Þegar til Reykjavíkur var komið fóru nemendur í 8. bekk í heimsókn á Bessastaði og síðan á Sjónminjasafnið, 9. bekkur fór á Hönnunarsafn Íslands og í Elliðaárstöð, 10. bekkur fór í Hörpuna og Álverið í Straumsvík. Dagskránni lauk svo með því að allir fóru saman í Þjóðleikhúsið á sýninguna Ormstungu en það er söngleikur byggður á Íslendingasögunni Gunnlaugs sögu ormstungu. Sagan fjallar um tvö íslensk skáld, þá Gunnlaug ormstungu og Hrafn Önundarson og keppni þeirra um ástir Helgu fögru sem var barnabarn Egils Skallagrímssonar. Barátta ungu skáldanna birtist hér á nýjan og ferskan hátt, þar sem hljóðnemar koma í stað sverða. Ekki var annað heyra en ánægja væri með ferðina og fararstjórarnir fjórir sögðu að nemendur skólans hefðu verið til fyrirmyndar í hvívetna, það er alltaf dýrmætt þegar farið er í ferðir utan skólans.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Hvað er á döfinni næstu vikur

  • Sunnudaginn 15. nóvember er skákmót Þjótanda í Flóaskóla, sjá auglýsingu þess efnis.
  • Mánudaginn 30. nóvember er starfsdagur í skólanum, þann dag er ekki kennsla en frístund er opin frá kl 8:00 til 16:30.
  • Þriðjudaginn 1. desember er svo kyndlaganga og skreytingadagur í skólanum. Við hefjum daginn á að ganga hring um skólalóðina, elstu nemendur skólans bera kyndla og aðrir mega vera með vasaljós í göngunni. Að göngu lokinni er boðið upp á kakó og jólasmákökur. Eftir frímínútur hittast allir í skólanum við stigann og syngja saman nokkur jólalög. Eftir það er hefðbundin kennsla en hver bekkur nýtir amk eina til tvær kennslustundir til að skreyta sína heimastofu. Hefð er fyrir því að vinabekkirnir 1. og 6. bekkur skreyti jólatréð í Þjórsárveri.
  • Miðvikudaginn 2. desember er generalprufa fyrir Aðventuhátíð Flóahrepps kl 16:00 í Þingborg
  • Fimmtudaginn 3. desember er Aðventuhátíðin kl 18:30 í Þingborg.
  • Sunnudaginn 6. desember er stefnt að Aðventukaffihúsi foreldrafélags skólans í Flóaskóla ca 15:00-17:00.
  • Miðvikudaginn 9. desember er svo stefnt að jólasýningu 1.-7. bekkja en það verður auglýst betur þegar nær dregur.
Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter