Smore logo
remove_red_eye 130
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

4. tbl. 6. árg. - apríl 2025

FréttabréfGrenivíkurskóla4. tbl. 6. árg. - apríl 2025

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

zoom_out_map

Þá er mars þotinn hjá á ógnarhraða og apríl heilsar okkur með vor í lofti.


Það var ýmislegt á dagskránni í mars. Mánuðurinn hófst á vetrarfríi sem starfsfólk nýtti í áhugaverða og skemmtilega námsferð til Frakklands og að fríinu loknu hófust stífar æfingar fyrir Vorskemmtun. Nemendur í 10. bekk þreyttu PISA próf, fóru í leikhús og á Starfamessu og þá hélt allur skólinn í árlega skíðaferð í Hlíðarfjall. Slík ferð hefur verið á dagskránni síðustu 10-12 árin og gengið slysalaust fyrir sig, þar til nú! Hvorki fleiri né færri en þrír nemendur enduðu ferðina uppi á slysadeild, en sem betur fer reyndust meiðslin ekki mjög alvarleg og allir eru á góðum batavegi. Sannkölluð óhappaferð og við treystum á að næstu 10-12 árin verði slysalaus!


Annars er Vorskemmtun framundan, og að þessu sinni er komið að sýningunni um Emil í Kattholti. Síðasta vikan fyrir páskafrí verður svo vel nýtt í hefðbundnu námi, en svo verður haldið í frí þann 11. apríl næstkomandi.


Með hækkandi sól fer að fjölga nemendum sem koma hjólandi í skólann sem er hið besta mál. Við viljum minna á að ávallt þarf að nota hjálm þegar hjólað er, og á það við jafnt um hefðbundin hjól sem hlaupahjól og rafhjól.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Starfamessa og leiksýning Starfamessa og leiksýning

zoom_out_map
Það var nóg um að vera hjá nemendum á unglingastigi í liðnum mánuði. Fimmtudaginn 13. mars sóttu nemendur í 9.-10. bekk Starfamessa í Háskólanum á Akureyri, en þar gefst þeim kostur á að kynna sér nám og störf innan fjölbreyttra fyrirtækja og stofnana á svæðinu. Heimsóknin var vel heppnuð og fengu nemendur að prófa ýmislegt, meðal annars að taka á móti barni hjá sérstakri námsdúkku sem notuð er í ljósmæðranámi.


Sama kvöld fóru svo nemendur í 8.-10. bekk í góða ferð til Akureyrar að sjá general-prufu á leiksýningunni Galdrakarlinn í OZ sem leikfélag Menntaskólans á Akureyri setti á svið. Frábær sýning og ekki skemmdi fyrir að farið var á pizzuhlaðborð fyrir sýningu og í ísbíltúr að sýningu lokinni!

Grænfáninn Grænfáninn

zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins í vetur verður sjónum meðal annars beint að hinum ýmsu hugtökum sem varða umhverfisnefnd.


Hugtak febrúarmánaðar er örfoka land. Örfoka land er skemmt vistkerfi á landi sem hefur misst gróður og jarðveg, og virkar ekki lengur til að viðhalda gróðri og dýralífi, geyma vatn, búa til súrefni og binda kolefni. Land í svona slæmu ástandi kallast sem sagt örfoka land og þar veita vistkerfin afar takmarkaða þjónustu. Slíkt ástand lands er lokastigið á alvarlegri gróður- og jarðvegseyðingu. Með vistheimt / endurheimt vistkerfa er hægt að endurheimt vistkerfið sem var en slíkt tekur mjög langan tíma.


Hér má lesa meira um örfoka land.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "virkur apríl". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Starfamessa og leiksýning - 13. mars 2025
  • Skíðadagur - 19. mars 2025
  • Hljóðfærakynning - 25. mars 2025

Á döfinni í apríl Á döfinni í apríl

  • 2. apríl: Vorskemmtun - fyrri sýning.
  • 3. apríl: Vorskemmtun - síðari sýning.
  • 12.-21. apríl: Páskafrí!
  • 13. apríl: Pálmasunnudagur.
  • 17. apríl: Skírdagur.
  • 18. apríl: Föstudagurinn langi.
  • 20. apríl: Páskadagur.
  • 21. apríl: Annar í pákkum.
  • 24. apríl: Sumardagurinn fyrsti.

Matseðill Matseðill

zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter