Smore logo
remove_red_eye 221
page background

Fréttabréf Engidalsskóla nóv. 2025

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

FréttabréfEngidalsskóla nóv. 2025Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Nóvember er genginn í garð og alltaf nóg að gerast í Engidalsskóla. Hrekkjavakan var hrikaleg og hrollvekjandi. Lið úr Engidalsskóla tók þátt í handboltamóti sem einkenndist af sigrum og sterkum liðsanda. Vinavikan var sérlega vinalega og fyrsta snjónum var vel fagnað. Við höfum minnkað umfjöllun um einstaka viðburði í þessum mánaðarlegu fréttabréfum en gerum þeim betur skil á facebook og Instagram og hvetjum ykkur til að fylgja okkur þar. Þá læðist ein og ein frétt inn á heimasíðuna en það er þá það sama og er á facebook og Instagram. Skólastjórnendur hafa það að markmiði að senda ykkur sem fæsta pósta og ef við þurfum að koma skilaboðum til ykkar látum við umsjónarkennara setja það í föstudagspóstana. Þannig teljum við okkur vera að minnka áreitið á foreldra eins og við getum. Það er því þeim mun mikilvægara að lesa föstudagspóstana frá umsjónakennurum. Þessir póstar eru mjög fræðandi og skemmtilegir og gefur foreldrum tækifæri á að átta sig á því hvað barnið þeirra er að læra og spyrja það út úr og fylgjast þannig betur með náminu. Umræða um heimanám skýtur reglulega upp kollinum og er umfjöllun um það sérstaklega hér neðar í fréttabréfinu.


Við vorum afskaplega ánægð með mætinguna á líðanfundina í október og þann samtakamátt sem við upplifðum í þessu flotta foreldrasamfélagi sem er hér í norðurbænum. Gerðir voru farsældarsáttmálar í öllum árgöngum sem er frábært. Það er trú okkar að sameinuð getum við gert mjög góða hluti fyrir börnin ,,okkar" allra. Nýjustu niðurstöður skólapúlsins segja okkur líka að við erum á réttri leið því þær eru mjög góðar. Nánari umfjöllun um niðurstöðurnar eru hér fyrir neðan. Fyrir þá sem ekki þekkja til Skólapúlsins þá er hann það tæki sem Hafnarfjörður nýtir hvað mest til ytra mats skólanna sinna. Skólapúlsinn sendir bæði nemendum, foreldrum (á tveggja ára fresti) og starfsmönnum kannanir, misjafntt er hvort það er árlega eða annað hvert ár. Á hverju ári (meira að segja tvisvar á ári) eru nemendur í 6.-10. bekk látnir svara spurningum um líðan í skóla, áhuga á náminu, samskipti við aðra nemendur og kennara og ýmislegt fleira.


Strax eftir vetrarfrí byrjuðum við að bjóða aftur upp á hafragraut og er hann í boði alla daga frá kl. 8:00-8:15. Það voru margir sem söknuðu grautsins og voru mjög ánægðir þegar hann var aftur í boði.


Vinavikan gekk mjög vel og í lok hennar fengu allir starfsmenn og nemendur vinaband sem á að minna þá á mikilvægi vináttunnar og þá ábyrgð og virðingu sem við berum gagnvart náunganum. Vináttu þarf að rækta og hugsa um líkt og allt sem er verðmætt. Við vitum að við erum eina manneskjan sem við getum stjórnað og verðum að ákveða hvernig við viljum koma fram við vini og samferðafólk og hvernig við viljum láta muna eftir okkur sem vini og/eða samferðamanni.


Þessi vika er styttri nemendavika en oft áður. það er foreldrasamráð 13. nóvember og þá mæta nemendur með foreldrum/forsjáraðilum til samtals við umsjónarkennara. Margir árgangar ætla að prófa nemendastýrð samtöl og verður spennandi að sjá hvernig það gengur. Við höfum haft það fyrir reglu að setja alla óskilamuni upp í andyri skólans á foreldrasamráðsdögum og biðjum við ykkur um að líta þar við og taka það sem tilheyrir ykkar barni. Fyrir okkur er þetta stór þáttur í umhverfismálum þar sem skólinn er Grænfánaskóli og mikilvægt að allar flíkur finni sinn eiganda. Við gerum okkar besta til að koma öllu því sem er merkt á rétta eigendur og því mikilvægt að merkja fatnað vel. Þann 14. nóvember er svo starfsdagur og eiga nemendur frí þann dag.


Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember og þann dag ætlum við að halda lýðræðisþing með nemendum á miðstigi.


Engidalsskóli er heilsueflandi grunnskóli, við leggjum mikla áherslu á hollt nesti, aukna hreyfingu og líðan nemenda. Við ræðum líka um svefn og mikilvægi hans. Á vefsvæði Embætti Landlæknis, sem hýsir verkefnið Heilsueflandi grunnskóli og Heilsuveru er að finna allskyns ráðleggingar og látum við þær fljóta hér með.

  • Ráðleggingar sem stuðla að betri svefni
  • Æskilegur svefntími fyrir hvert aldursskeið
  • https://island.is/svefn-og-hvild
  • Ýmislegt um svefn á heilsuveru https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/svefn-og-hvild/


Við vekjum líka athygli foreldra/forsjáraðila á glærum, sem fengnar eru frá Heimili og skóla, um miðlanotkun og er að finna hér neðar í fréttabréfinu. Þær eru bæði fróðlegar og geta verið leiðbeinandi, hvetjum ykkur til að skoða þær.


Á líðanfundunum núna í október var örlítið komið inn á stoðþjónustu skóla og hvað væri undir henni. Á heimasíðu skólans undir Nám og kennsla, stuðningur er að finna mikið af upplýsingum, s.s. hver sér námsráðgjafi, tengiliður farsældar, deildarstjóri stoðþjónustu og fleira. Þar er líka farið yfir hlutverk hvers og eins. Eins og staðan er núna er ekki starfandi skólahjúkrunarfræðingur við skólann, en okkur hefur verið tjáð að öllum skoðunum og bólusetningum verði sinnt.


Lítilsháttar breyting hefur verið gerð á skóladagatali Engidalsskóla og snýr hún að skólaslitunum sem verða síðdegis sama dag og íþróttadagurinn, eins og síðasta vor. Uppfært skóladagatal er að finna á heimasíðunni.


Með bestu kveðju,

Skólastjórnendur Engidalsskóla.

Niðurstöður skólapúlssins

Nýjar niðurstöður Skólapúlssins segja okkur að við erum á góðri leið og höldum áfram að hækka okkur og klífa yfir landsmeðaltal. Allir þættir nema einn (eða 16 af 17 þáttum) er á eða yfir landsmeðaltali og margir þættir vel yfir landsmeðaltali. Ánægðust erum við með vellíðanina sem er nú komin 0,7 yfir landsmeðaltali. Trú nemenda á eigin getu og ánægja af náminu hefur líka aukist verulega.

Einelti mælist undir landsmeðaltali en það er þáttur sem við viljum auðvitað útrýma alveg. Góður skóla- og bekkjarandi hefur vaxið mikið og virk þátttaka nemenda í tímum og tíðni leiðsanarmats einnig. Sá þáttur sem er 0,2 undir landsmeðaltali (telst ekki mælanlegt) er stjórn nemenda á eigin lífi. Við erum himinsæl með þessar niðurstöður en höldu ótrauð áfram með það að markmiði að gera enn betur.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Heimanám

Reglulega kemur upp umræða um heimanám hvort það eigi að vera og hvernig það eigi að vera. Í Engidalsskóla er eina heimanámið lestur og orðaskrift sem styður við lestranámið. Við leggjum áherslu á að það sé hóflegt, markvisst og í anda þeirrar sýnar að nám fari víða fram – ekki aðeins innan skólastofunnar. Með daglegum lestri styrkja börn málskilning, orðaforða og einbeitingu – og ekki síst verður lesturinn dýrmæt stund samveru milli foreldra og barna.


Í grein Jóhönnu Karlsdóttur (2021), „Ávinningur eða ánauð? Heimanám nemenda í grunnskólum“, er fjallað um að heimanám geti haft jákvæð áhrif ef það er skýrt, viðeigandi og í samræmi við þroska og áhuga barna. Rannsóknir sýna að gæði verkefna skipta meira máli en magn þeirra, og að of mikið heimanám geti gengið á leik- og frítíma barna. Þar kemur einnig fram að í dag taki flest börn virkan þátt í íþrótta- og tómstundastarfi, og að slíkt starf sé í raun mikilvægur þáttur í námi og þroska hvers barns. Í leik, hreyfingu, listum og félagsstarfi læra börn að vinna með öðrum, setja sér markmið, sýna sjálfstæði og ábyrgð. Þetta er allt hluti af þeirri hæfni sem grunnskólinn vinnur að – þó að um sé að ræða óhefðbundið nám. Nám á sér nefnilega stað alls staðar þar sem börn takast á við nýjar áskoranir, spyrja spurninga og læra af reynslu.


Við hvetjum foreldrar/forsjáraðila til að skapa góða og innihaldsríka samveru heima. Hvort sem það er við lestur, í eldhúsinu, á gönguferð eða í leik, við þessar aðstæður læra börn mikið í samskiptum, í umræðum og í því að prófa sig áfram. Það er dýrmætasta heimanámið. Við höfum of oft heyrt af því að heimanám frá skóla sé ágreiningsefni milli foreldra og nemenda og valdi þess vegna oft neikvæðum samskiptum á heimilum. Því geti verið heppilegra að verja fyrrnefndum gæðatíma í jákvæða samveru fjölskyldunnar. Markmið okkar er að styðja við lestrarþróun og læsi barna með jákvæðni og ánægju – án þess að fórna frítíma eða leik. Með samstilltu átaki heimilis og skóla getum við tryggt að börnin okkar upplifi bæði nám og hvíld sem eðlilegan hluta af góðu lífi.

Rannsóknir sýna að heimanám hafi takmörkuð áhrif á námsárangur nemenda á yngsta- og miðstigi, heimanám nýtist nemendum ekki fyrr en á unglingastigi og þá til dæmis sem undirbúningur frekara náms.


(Byggt á Jóhanna Karlsdóttir, 2021: „Ávinningur eða ánauð? Heimanám nemenda í grunnskólum“. Skólaþræðir, 23. mars 2021. https://skolathraedir.is/2021/03/23/avinningur-eda-anaud-heimanam-nemenda-i-grunnskolum/)

Mentor leiðbeiningar fyrir foreldra
Á blaðsíðu tvö er að finna leiðbeiningar er varða póst stillingar - Persónuvernd - stillingar
Samvinna um læsi
Gagnlegar upplýsingar um læsi

Jákvæð miðlanotkun Jákvæð miðlanotkun

pdf
insert_drive_file
jákvæð miðlanotkun-bæklingur.pdf
Download
1.8 MB
User uploaded image
zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar, Skýru mörkin

Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is


Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Bæklingur - Ráðleggingar um matarræði

Útivistarreglur barna Útivistarreglur barna

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Phone Álfakot: 555 4434

Engidalsskóli Hafnarfirði
Engidalsskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter