Smore logo
remove_red_eye 236
page background
Logo

Tæknótíðindi

9. apríl 2025

Tæknótíðindi9. apríl 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 9. apríl - Foreldraráð býður til fræðslu
  • 15. apríl - Páskafrí
  • 23. apríl - Námsmat - skóli lokaður
  • 24. apríl - Sumardagurinn fyrsti
  • 25. apríl - Vorfrí
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Fræðslukvöld fyrir foreldra Fræðslukvöld fyrir foreldra

Foreldraráð Tækniskólans býður foreldrum nemenda skólans í fræðslu um kynferðisleg áreitni og ofbeldi milli unglinga miðvikudaginn 9. apríl.


Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, heldur fræðsluna.


Við hvetjum alla foreldra til að mæta og taka þátt í mikilvægu samtali um velferð og öryggi ungmenna.

open_in_new zoom_out_map

Miðspannarmat Miðspannarmat

Miðspannarmat áfanga á seinni spönn hefur nú verið birt í Innu. Við hvetjum nemendur og foreldra til þess að skoða miðspannarmatið.
Nánari upplýsingar

Brynja stígur á stóra sviðið! Brynja stígur á stóra sviðið!

zoom_out_map

Brynja Gísladóttir, nemandi í málaraiðn við Tækniskólann, tekur þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna næstkomandi laugardag, 12. apríl. Hún flytur lagið Strange eftir Celeste og lofar að heilla áhorfendur með kraftmikilli túlkun sinni.

Keppnin fer fram í Háskólabíó og verður í beinni útsendingu á RÚV. Miðar eru fáanlegir á Tix.is.


Við óskum Brynju innilega góðs gengis og hvetjum öll til að fylgjast með!

Tækniskólinn í úrslit FRÍS Tækniskólinn í úrslit FRÍS

zoom_out_map

Tækniskólinn á leið í toppslaginn í FRÍS!

Rafíþróttalið Tækniskólans tryggði sér sæti í úrslitum FRÍS eftir glæsilegan sigur á liði Fjölbrautaskólans við Ármúla í undanúrslitum.


Í úrslitum mætir okkar fólk annaðhvort FG eða FB. Úrslitaleikurinn fer fram, miðvikudaginn 16. apríl kl.19:00 og verður í beinni útsendingu á: www.twitch.tv/rafithrottir


Við hvetjum öll til að fylgjast með og styðja okkar lið í baráttunni um titilinn.

Vel heppnað White on white ball Vel heppnað White on white ball

Miðvikudaginn 2. apríl stóð Nemendasamband Tækniskólans fyrir balli í Gamla bíó ásamt FMOS, FB og Borgó.


Ballið var virkilega vel heppnað og nemendur skemmtu sér vel en það voru Blazroca, DJ Gugga, Nussun, Ingi Bauer & Big Sexy, Issi og Sjarminn sem héldu uppi stemningunni.

Skrúfudagur í rjómablíðu Skrúfudagur í rjómablíðu

Skrúfu­dag­urinn 2025 var haldinn með pompi og prakt síðastliðinn laug­ardag. Dag­urinn var vel heppnaður í alla staði og ekki spillti veðrið sem lék við gesti og gang­andi.


Frú Halla Tóm­as­dóttir og maður hennar Björn Skúla­son komu í heim­sókn og fengu leiðsögn um skólann í föru­neyti nem­enda og starfs­fólks.


Tækni­skólinn sendir sam­starfsaðilum og þátt­tak­endum í Skrúfu­deg­inum 2025 bestu þakkir fyrir sam­starfið. Gestum þökkum við kær­lega fyrir komuna.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter