Smore logo
remove_red_eye 192
page background

Fréttabréf Engidalsskóla sept. 2025

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

FréttabréfEngidalsskóla sept. 2025Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
Mentor leiðbeiningar fyrir foreldra
Á blaðsíðu tvö er að finna leiðbeiningar er varða póst stillingar - Persónuvernd - stillingar

Fréttabréf Engidalsskóla

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Skólaárið fer vel af stað og er veðrið örugglega að hjálpa okkur eitthvað. Það er mikil gleði og gaman í allri útiveru. Það virðist líka vera góð stemming í skólanum með að leggja áherslu á lestur og læsi og gaman að ganga um skólann snemma á morgnanna og sjá alla á kafi í lestri.


Í umræðunni síðustu misseri um skólamál hefur innra mat grunnskóla borið oft á góma og vil ég upplýsa um að í Engidalsskóla erum við stolt að þeirri vinnu sem unnin er þar. Innra mat skólans fer fram með ýmsu móti og höldum við utan um það með forritinu Bravolesson. Kennarar ígrunda í litlum hópum eigin kennslu, námskrána, vinnulag stjórnenda og fleira. Stjórnendur sitja kennslustundir hjá kennurum og skoða ákveðna þætti í kennslunni, allt eftir ákveðinni forskrift, og gefa svo endurgjöf. Þá eru litlir rýnihópar, kannanir og starfsmannasamtöl. Ytra matið fer í gegnum þriðja aðila, Skólapúlsinn, MMS (Lesferill), Rannskóknir og greiningu og íslenskar æskulýðsrannsóknir. Í framhaldi af þessu er svo gerð umbótaáætlun sem birtist í starfsáætlun skólans en ný áætlun mun birtast innan tíðar á heimasíðu skólans.


Þegar kemur að upplýsingagjöf frá skólanum þá förum við ýmsar leiðir svo við náum til sem flestra. Á heimasíðu skólans er að finna alls kyns gagnlegar upplýsingar um skólastarfið og hvet ég ykkur til að skoða hana vel.Við sendum fréttabréf, eins og þetta, mánaðarlega þar sem fram koma ýmsar leiðbeiningar og upplýsingar um það sem er á döfinni eða hefur á daga okkar drifið. Umsjónarkennarar senda vikupóst og á síðasta ári byrjuðum við með Facebook og Instagram síðu þar sem birtar eru myndir frá skólastarfinu í rauntíma og myndir af verkum nemenda, ég vona að þið fylgið okkur á þessum miðlum.


Það er mikill kostur að það er töluverður stöðuleiki starfsmanna hjá okkur. Ekki er neinn nýr kennari hjá okkur í vetur. Við fengum nýjan skrifstofustjóra Ingu Rakel Einasrsdóttur og nokkra nýja starfsmenn í frístund. Gabriella Ósk Egilsdóttir var ráðinn aðstoðar deildarstjóri, Birta Lind Hallgrímsdóttir (sem líka er í stuðningi á skólatíma), Eyvör Pálsdóttir, Heiða Karen Fylkisdóttir og í dag byrjaði Auður Eygló Andrésdóttir. Við erum meðvituð um að það eru tækifæri til bætinga í frístundastarfinu og höfum við sett kraft í það. Við vorum með námskeið fyrir alla starfsmenn í vor um starf frístundaheimila og svo aftur í ágúst þá með áherslu á útinám og útileiki. Við erum líka að taka í gagnið gæðakerfi fyrir frístundaheimilið og ætlum okkur að meta starfið þar á svipaðan hátt og við gerum við kennsluna í skólanum. Við munum örugglega senda út einhverjar kannanir og fá ykkar viðhorf og vonum að þið takið því vel.


Síðustu ár höfum við lagt mikla áherslu á lestur og læsi og erum að byrja lesturinn af krafti. Við erum búin að skrá skólann í lestrakeppni (sjá nánar hér fyrir neðan) og erum líka að skoða heimalesturinn með nemendum en við eigum auðvelt með að taka út úr Læsi alskyns tölfræðigögn. Í vetur munum við líka auka áherslu á stærðfræði. Stefnt er á aukna hlutbindingu og fleiri verkefni út fyrir bókina. Markmiðið er að enn fleiri hafi gaman af stærðfærðinni og við vonum að við hjálpumst öll að við að gera þetta skemmtilegt.


Í Engidalsskóla eru eina heimanámið lestur og orðaskrift í yngri bekkjum. Alltaf eru einhverjir sem vilja meira heimanám en lestur en samkvæmt þeim könnunum sem við höfum gert er það mikill minnihluti foreldra. Við bendum reglulega á efni til að auka lestrafærni, sjá fréttabréfin okkar, auk þess höfum við bent foreldrum á ýmsar síður á netinu þar sem bæði er hægt að prenta allskyns dót út eða vinna í tölvu eða spjaldtölvu. Þá er mikill lærdómur falinn í að spila með börnunum allskyns skemmtileg spil sem þjálfa lestur, stærðfræði og félagsfærni og út úr því fæst líka góð samvera. Göngutúrar úti í náttúrunni og hafa með bækur um plöntur og jurtir, fugla og steina. Lesa á skilti, skoða form í umhverfinu, telja bíla, leysa þrautir og svo framvegis. Ég vona að þessi upptalning gefi hugmyndir, sem þið vissu auðvitað af, en maður á það til að gleyma góðum hugmyndum í erli dagsins.


Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn mánudaginn 15. september kl. 17:30. Við hvetjum ykkur til að mæta og taka virkan þátt í þessu þarfa starfi. Þetta er mjög gott tækifæri til að kynnast öðrum foreldrum, stækka tengslanetið og hafa áhrif til góðs á það samfélag sem börnin ykkar eru að alast upp í. Það verður seint of sagt að allar rannsóknir sína mikilvægi þess í allri forvarnarvinnu að foreldrar barna þekkist, tali sama og að foreldrar sýni því umhverfi sem barnið er í áhuga.


Með bestu kveðju,

Skólastjórnendur Engidalsskóla.

Samvinna um læsi
Gagnlegar upplýsingar um læsi
User uploaded image
zoom_out_map

Lestrarkeppni 15. sept - 15. okt 2025

Nú setjum við kraft í heimalestur.


Við í Engidlsskóla erum búin að skrá alla árganga í Svakalegu Lestrarkeppnina. Allar upplýsingar um keppnina er að finna hér. Það er von okkar að foreldrar/forsjáraðilar haldi vel utanum heimalesturinn og ekki gleyma að skrá heimalesturinn í læsir.


Þeir sem ekki eru búnir að skár nemendur inn í læsir endilega drífið í að gera það.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar, Skýru mörkin

Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is


Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Útivistarreglur barna Útivistarreglur barna

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Engidalsskóli Hafnarfirði
Engidalsskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter