Tæknótíðindi
7. september 2026
Dagsetningar framundan
- 9. september - Klúbbakvöld á Háteigsvegi kl.17-21
- 10. september - Nýnemaball í Iðnó
- 16. september - Klúbbakvöld á Háteigsvegi kl. 17-21
- 23. september - Klúbbakvöld á Háteigsvegi kl. 17-21
- 24. september - Tækniskóladagurinn
Stuðningur í kjölfar áfalla - hugleiðingar sálfræðings
Þegar erfiðir atburðir eiga sér stað
Kæru nemendur.
Nýlegt bílslys þar sem þrjú ungmenni létust hefur snert marga og hugur okkar er hjá þeim sem eiga um sárt að binda.
Þegar svona hörmulegir atburðir verða geta áhrifin náð víða. Sum ykkar þekktuð þau sem létust, önnur þekkja vini þeirra eða fjölskyldur, voru vitni að slysinu eða tengjast því með öðrum hætti. Hjá öðrum geta fréttir af slysi sem þessu vakið upp erfiðar minningar eða tilfinningar sem tengjast allt öðrum atburðum.
Á svona stundum skiptir máli að við sýnum hvert öðru tillitssemi, stuðning og umhyggju. Við vitum ekki alltaf hvað fólkið í kringum okkur er að takast á við eða hvaða tengsl það hefur við atburðinn. Gott er að hafa það í huga í samtölum okkar og gæta að því hvernig við tölum um atburðinn, enda getur umtal, vangaveltur eða óvarleg orð valdið öðrum vanlíðan.
Ef þér líður illa, ert með erfiðar hugsanir eða tilfinningar, eða langar einfaldlega að tala við einhvern, þá er þér velkomið að leita til okkar í stoðþjónustu skólans. Hægt er að panta tíma í gegnum Innu eða hafa samband með tölvupósti.
F.h. stoðteymis Tækniskólans
Benedikt Bragi Sigurðsson
Stoðþjónusta Tækniskólans
Tækniskólinn leggur mikið upp úr öflugri stoðþjónustu sem ætlað er að styðja við nemendur og starfsfólk skólans.
Hjá stoðþjónustunni starfa meðal annars námsráðgjafar, hjúkrunarfræðingur og sálfræðingur. Hægt er að panta tíma í gegnum Innu eða í tölvupósti.
Treyjudagur
Við erum öll í sama liði!
Föstudaginn 4. september mættu nemendur og starfsfólk Tækniskólans í sínum uppáhaldstreyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Styrktarfélagið Börn með krabbamein stendur fyrir treyjudeginum en félagið veitir fjölbreyttan stuðning og stendur að úrræðum sem styðja börn og aðstandendur þeirra meðan á krabbameinsmeðferð stendur og eftir hana.
Nýnemaball
Disco í Iðnó
Nýnemaball nemendafélags Tækniskólans, NST, verður haldið fimmtudaginn 10. september í Iðnó. Húsið opnar kl. 22:00.
Þema ballsins í ár er Disco og munu Izleifur, Ragga Hólm, Aron Kristinn og Issi stíga svið og halda uppi stuðinu fram eftir kvöldi.
Miðasalan er á nst.is
Athugið að ölvun ógildir miðann
Vel heppnað nýnemaklúbbakvöld
Miðvikudaginn 2. september var haldið sérstakt klúbbakvöld fyrir nýnema. Þar fengu nemendur að kynnast fjölbreyttri starfsemi og klúbbum Nemendasambands Tækniskólans.
Klúbbakvöldin eru haldin alla miðvikudaga frá kl. 17:00-21:00 í Tækniskólanum á Háteigsvegi. Þau sem misstu af nýnemakynningunni eru hvött til þess að líta við á miðvikudögum og kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi sem er í boði.
Eftirfarandi klúbbar hafa þegar verið stofnaðir/gangsettir á þessari önn:
- Leikfélagið Mars
- Video Game Fighting Club
- D&D
- Spilafélagið
- Karíokí
- Warhammer
- Tónlistarklúbbur
- Furry Klúbbur
- Anime
- Minecraft
- Nördaklúbburinn
- Teikniklúbburinn
- Geimklúbburinn
Við hvetjum nemendur til þess að kynna sér klúbbakvöldin og taka þátt í skemmtilegu félagslífi skólans.
Gulur september
Sýnum hvert öðru umhyggju
Septembermánuður er iðulega tileinkaður geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.
Forvarnarátakið Gulur september minnir okkur á mikilvægi þess að sýna hvert öðru kærleika, aðgát og umhyggju.
Átakið vekur athygli á því að alltaf sé hjálp í boði fyrir þau sem glíma við mikla vanlíðan, sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða. Það getur verið erfitt að stíga fyrsta skrefið og því getur samtal og stuðningur skipt sköpum.
Á vefsíðunni gulurseptember.is má finna nánari upplýsingar, hjálparúrræði og dagskrá viðburða sem haldnir eru í tengslum við átakið.