Smore logo
remove_red_eye 109
page background

Fréttabréf Flóaskóla

júní 2025

FréttabréfFlóaskólajúní 2025

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Fréttabréf júnímánaðar er seint á ferðinni í þetta sinn en í því er að finna umfjöllun um fjölmarga viðburði frá annasömum maímánuði ásamt upplýsingum um skólabyrjun í haust.

Annan júní var hinn árlegi íþróttadagur haldinn þar sem nemendur í 7.-10. bekk öttu kappi í ýmiskonar óhefðbundnum keppnisgreinum má þar nefna, pönnukökubakstur, þrautalausnir, hraðaþrautir, kappát of fleira. Að þessu sinni stóðu 9. bekkingar uppi sem sigurvegarar. Í lok dags var svo fótboltamót sem endaði á keppni starfsmanna við 10. bekk. Þetta er afar skemmtileg hefð og gaman að enda skólaárið á þessum nótum. Síðar þennan sama dag færðum við okkur svo yfir í hátíðlegra verkefni og útskrifuðum nemendur 10. bekkjar úr Flóaskóla. Daginn eftir voru svo skólaslit í 1.-9. bekk. Við tóku svo nokkrir starfsdagar þar sem unnið var að frágangi og undirbúningi komandi skólaárs.


Mánudaginn 18. ágúst opnar skólavist fyrir nemendur í 1.-4. bekk, mikilvægt er að skrá nemendur í vistunina fyrir 12. ágúst með því að senda póst á floaskoli@floaskoli.is. Þetta er einstaklega góð aðlögun fyrir nemendur sem eru að hefja skólagöngu í Flóaskóla og hvetjum við foreldra þeirra barna til að skrá börn sín þessa daga, alla eða að hluta. Opið er í skólavistinni frá 8:00-16:00 þessa viku.

Mánudaginn 25. ágúst er skólasetning í Þjórsárveri kl 10:00 og skóli hefst síðan samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 26. Skólaakstur hefst líka þann dag.


Nemendur spurðu töluvert um það í vor hvort ekki yrði endurtekið að koma mætti á hestum í skólann. Eftir að hafa skoðað bestu tímasetningu á því töldum við fyrstu vikuna í september hentugasta, þá eru hestar í góðu formi eftir sumarið, stutt í fjallferðir og réttir og hugsanlega minna álag á heimilum en á sauðburðartíma að vori. Við stefnum því á að endurtaka leikinn í haust.


Þrátt fyrir að skóla sé lokið er líf og fjör á skólalóðinni, þessa vikuna eru ríflega 30 börn á leikjanámskeiði og svo er fjöldi eldri nemenda í vinnuskólanum. Framkvæmdir standa yfir í Þjórsárveri þar sem verið er að skipta út salernum og bæta aðstöðu og aðgengi að þeim.


Bestu sumarkveðjur úr Flóaskóla

Þórunn Jónasdóttir

Skólahreysti 2025

Þessi frábæri keppnishópur stóð sig með stakri prýði í úrslitum Skólahreysti og landaði 3. sæti eftir æsispennandi keppni í hraðaþrautinni í lokin. Þau leiðu mistök urðu við skráningu tíma í hraðaþrautinni að rangur tími var skráður á okkar fólk. Í fyrstu leit því út fyrir að liðið hefði lent í 6. sæti en ekki því þriðja. Þetta leiðréttist fljótlega, en þó ekki fyrr en beinni útsendingu var lokið á RUV. Fulltrúar Skólahreysti komu svo til okkar í Flóaskóla þann 2.6. síðastliðinn með ávísunina stóru, verðlaun og verðlaunapeninga fyrir keppendur. Það sem var eftirtektarvert í þessu ferli var hversu keppendurnir okkar tóku þessum mistökum með einstöku jafnaðargeði, sannarlega til fyrirmyndar.

Það sem einkennir keppnislið Flóaskóla, ekki bara núna heldur undanfarin ár, er liðsheildin og hugarfarið og það skilar okkur alltaf einstökum árangri. Liðstjóri hópsins og þjálfari hann Örvar á heiðurinn að því að skapa þá liðsheild. Hamingjuóskir til þín Örvar og hamingjuóskir til okkar öfluga Skólahreystiliðs.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Langspilsvaka

Langspilsvaka var haldin í Þjórsárveri 20. maí þar spiluðu nemendur í 5. og 6. bekk undir stjórn Eyjólfs Eyjólfssonar. Einnig komu til okkar góðir gestir, Ingibjörg Fríða Helgadóttir, söngkona og dagskrárgerðarkona á KrakkaRÚV og eiginmaður hennar Sigurður Ingi gítarleikari. Þetta var mjög vel heppnuð kvöldstund og gaman að sjá langspilsvökuna sem einn af föstum liðum í starfi skólans.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Smiðjur, lestrarhátíðir, vorskóli, Roylakvöld og vorferðir

Dagana 8.-9. maí voru smiðjur í 8.-10. bekk haldnar með skólunum í uppsveitum Árnesþings. Í þetta sinn voru þær haldnar í Flóaskóla og í samstarfi við Listaháskóla Íslands tengt verkefninu List fyrir alla. Smiðjurnar heppnuðust afar vel og enduðu á að haldin var Listsýning í Félagslundi.


Uppskeruhátíðir tengdar lestri voru í 4. og 7. bekk, Litla upplestrarhátíðin í 4. bekk og Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk, úrslit hennar fóru fram í Flúðaskóla og þar áttum við tvo fulltrúa.


Vorskólavika var 12.-16. maí þar sem nemendur í verðandi 1. bekk komu í Flóaskóla og kynntust flestum innviðum hans í leik og starfi. Níu nemendur eru væntanlegir í fyrsta bekk í haust.


Hið árlega Royalkvöld var haldið fyrir 7.-10. bekk. Nemendur mættu prúðbúnir til veislunnar, borðuðu fínan mat, fóru í samkvæmisleiki og skemmtu sér saman.


Nemendur í 10. bekk fóru í útskriftarferð á Bakkaflöt í Skagafirði í afar vel heppnaða för í yndislegu veðri. Síðasta skóladag maímánaðar var svo úti- og grenndarnámsdagur, nemendur á yngsta stigi fóru í Skagás, miðstig í Alviðru og elsta stig nýtti skólann og skólalóðina til ýmiskonar leikja.

Útskrift 10. bekkjar 3.6.2025

Þennan glæsilega hóp ungmenna útskrifuðum við úr Flóaskólaskóla 3. júní síðastliðinn. Við sendum þau með okkar bestu kveðjur á vit framtíðarinnar.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Brauðtertu- og ostakökukeppni Konungskaffis og Kaffi Krúsar

Þessar girnilegu ostakökur gerðu nemendur á elsta stigi í vali hjá Iðunni og þær fóru í Brauðtertu- og ostakökukeppni Konungskaffis og Kaffi Krúsar síðasta sunnudag í maí. Það er svo gaman að sjá hvað krakkarnir okkar eru öflugir, fjölhæfir og framtaksamir.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Þemaverkefni frá skólaárinu 2024-2025

Skólaárið 2024-2025 var tekin upp sú nýbreytni í skólastarfinu að vinna þemaverkefni í u.þ.b. sex vikna lotum. Unnið var út frá grunnþáttum menntunar en menntastefna aðalnámskrár er reist á þessum sex grunnþáttum sem varða starfshætti, inntak og umhverfi náms á öllum skólastigum. Þeir eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Unnin voru samþætt verkefni í aldursblönduðum nemendahópum þar sem 1.-4. bekkur vann saman, 5.-7. saman og 8.-10. bekkur saman. Skólinn fékk styrk frá Sprotasjóði til að þróa þetta verklag.

Í lok skólaárs kynntu kennarateymi skólans eitt þemaverkefni af hverju stigi. Ef þið smellið á kynningarnar hér fyrir neðan getið þið séð þessi metnaðarfullu og glæsilegu verkefni.

Þema á yngsta stigi

launch canva.com

STEAM þema þar sem unnið var með vísindi, tækni, verkfræði og listir í aldursblönduðum nemendahópum í 1.-4. bekk. Verkefnin voru unnin út frá grunnþættinum læsi.

Afmælisveislan mín - kynning á þema.pptx

AFMÆLISVEISLAN MÍN Miðstig

launch docs.google.com

Þemað Afmælisveislan mín - grænu skrefin. Lögð var áhersla á að samþætta námsgreinarnar: íslensku, náttúrufræði, samfélagsfræði, heimilisfræði, stærðfræði, upplýsinga og tæknimennt. Unnið var í aldursblönduðum hópum í 5.-7. bekk. Verkefnin voru unnin út frá grunnþættinum sköpun.

pdf
insert_drive_file
Stella í orlofi - kynning.pptx_20250623_123121_0000.pdf
Download
9.2 MB

Leikritið Stella í orlofi var unnið í aldursblönduðum hópum í 8.-10. bekk. Unnið var út frá grunnþættinum sköpun. Auk leikritavinnunnar voru ýmis smærri hliðarverkefni unnin á tímabilinu.

Skólaþing í 1.-5. bekk

Skólaþing 1.-5. bekkja var haldið síðari hluta maímánaðar og voru nemendur mjög áhugasamir og duglegir við að koma hugmyndum sínum á framfæri. Unnið var með þrjú viðfangsefni: umgengni, samskipti og skipulag á skólalóð. Nemendur kusu m.a. um fjóra leiki sem málaðir verða á malbikið fyrir utan skólann í sumar.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Námsferð til Brighton

Starfsmenn Flóaskóla fóru í námsferð til Brighton 30.4.-4.5. Ferðin gekk í alla staði mjög vel. Við áttum góðan dag á útikennslunámskeiði þar sem við lærðum fjölmargt, m.a. að kveikja upp eld með neista og bómull, útbúa viðarkol og gera ýmiskonar handverk úti í náttúrunni. Seinni daginn var farið í skólaheimsóknir í tvo skóla, í öðrum var áherslan á upplýsingatækni og í hinum á leiðsagnarnám. Í báðum heimsóknum fékk fólk gagnlegar upplýsingar og þær gáfu fólki líka margar góðar hugmyndir um útfærslu náms og kennslu. Kennarar voru svo duglegir við að nýta sólríkan maímánuð til að sinna ýmiskonar útikennslu.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter