Smore logo
remove_red_eye 409
page background

Fréttabréf Síðuskóla

8. bréf - mars - skólaárið 2024-2025

FréttabréfSíðuskóla8. bréf - mars - skólaárið 2024-2025
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

Við njótum þess nú að dagarnir lengjast og sólin hækkar á lofti. Dagur einstakra barna var haldinn hátíðlegur í dag og frábært að sjá hve margir mættu glitrandi fínir.

Þann 17. febrúar hófum við 100 miða leikinn sem er árlegur viðburður í skólastarfinu. Leikurinn stendur yfir í tvær vikur og er markmiðið með honum að hvetja nemendur til að fara eftir SMT skólareglunum. Starfsmenn gefa 10 nemendum á dag sérstaka hrósmiða sem eru settir á spjald með reitum merktum frá 1 til 100. Búið er að velja vinningsröð á spjaldinu og kemur svo í ljós í lok leiks hvaða nemendur eru í vinningsröðinni. Úrslit leiksins verða tilkynnt á íþróttasal skólans þriðjudaginn 4. mars kl. 9:15, þar sem við uppljóstum hvaða röð vann og hver verðlaunin verða.

Vetrarfrí grunnskólanna á Akureyri er framundan og því engin kennsla dagana 5., 6. og 7. mars. Frístund verður lokuð á öskudaginn, miðvikudaginn 5. mars, en verður opin 6. og 7. mars frá kl. 13 fyrir þá sem þar eru skráðir.

Útivistardagur skólans er ráðgerður mánudaginn 24. mars og stefnum við að fara með alla nemendur skólans í Hlíðarfjall. Við vonumst til að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir svo við getum notið útivitar í fjallinu. Nánari upplýsingar verða sendar heim þegar nær dregur.

Bestu kveðjur úr skólanum,

Ólöf, Malli og Helga

zoom_out_map

Viðurkenningar fræðslu- og lýðheilsusviðs

Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar veitti í gær viðurkenningar fyrir framúrskarandi starf í skólum bæjarins. Markmiðið með viðurkenningunum er að benda á og lyfta upp því frábæra starfi sem fram fer í skólunum og hvetja til góðra verka.
Frá okkur í Síðuskóla hlutu þær Ólöf Inga skólastjóri og Victoria Irkha nemandi í 9. bekk viðurkenningu. Meðal þess sem nefnt var um Ólöfu er að gott sé að leita til hennar, hún hafi skapað notalegt umhverfi fyrir nemendur og starfsfólk og byggt upp á faglegan og metnaðarfullan hátt sérdeild skólans með sínu starfsfólki. Í umsögn Victoriu sem kom í skólann frá Úkraínu haustið 2023 kom fram að hún sé dugleg, sýni mikinn metnað í námi, sá ávallt jákvæð og hafi lagt sig fram og sýnt mikinn áhuga á íslenskunámi og hafi á stuttum tíma náð afar góðum tökum á íslensku.
Við óskum þeim til hamingju og erum afskaplega stolt af því að hafa þær í okkar frábæra hópi.
zoom_out_map

Viðurkenning í eldvarnargetraun í 3. bekk

Í gær fengu krakkarnir í 3. bekk góða heimsókn en þá kom Jóhann frá slökkviliðinu til að afhenda verðlaun í eldvarnargetraun sem 3. bekkur tekur þátt í árlega. Karen Birna var svo heppin að vera dregin út. Hún fékk viðurkenningarskjal og gjafabréf í Spilavinum. Hér með fréttinni má sjá mynd sem var tekin við þetta tækifæri. Til hamingju Karen Birna!

zoom_out_map

Upphátt

Næstkomandi mánudag, 3. mars, verður Upphátt sem er upplestrarkeppni 7. bekkja á Akureyri haldin hér í Síðuskóla. Þar munu 12 nemendur úr 7. bekk lesa sem komust áfram eftir bekkjarkeppnina. Þar verða tveir nemendur valdir áfram til að keppa fyrir hönd skólans í lokakeppninni sem haldin verður 18. mars næstkomandi í Hofi. Við bjóðum foreldra og forráðamenn hjartanlega velkomna til að fylgjast með keppninni þennan dag milli klukkan 10 og 11.

Myndina sem fylgir gerði Soffía Margrét Sveinsdóttir nemandi í 7. bekk.

Nemendur á miðstigi taka þátt í Barnamenningarhátíð

Fimmtudaginn 10. apríl munu nemendur á miðstigi í Síðuskóla standa fyrir Góðgerðarkaffihúsi hér í Síðuskóla milli klukkan 16 og 18.

Nemendur ætla að bjóða upp á kaffi og djús ásamt dans- og tónlistaratriðum. Hægt verður að kaupa meðlæti með kaffinu á vægu verði auk listmuna sem nemendur eru að gera þessa dagana í vali á miðstigi. Einnig verða seldar forræktaðar plöntur sem nemendur eru að rækta í náttúrufræði. Nemendur munu síðan afhenda Barnadeild SAK ágóðann af sölunni.

Hér eru nokkar myndir úr miðstigsvalinu þar sem mikil framleiðsla og sköpun fer fram.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Lestrarormur Síðuskóla

Við í Síðuskóla erum öll að taka þátt í lestrarátaki þessa dagana, nemendur og starfsfólk. Við erum að keppast við að lengja lestrarorminn okkar og markmiðið er að ná yfir 200 metra og láta hann hlykkjast um sem flesta ganga skólans. Við byrjuðum 12. febrúar og ætlum að halda áfram til 31. mars. Ormurinn er nú þegar orðinn 93 metrar og samanstendur af 1155 miðum. Það verður spennandi að sjá hve langan orm okkur tekst að búa til í sameiningu og hvort við náum jafnvel að hringa hann :) Hver árgangur er með sinn lit þannig að hann verður litríkur fyrir alla árganga skólans og starfsfólkið er með sinn eigin.

Myndband af lestrarormi Síðuskóla

Nemendur í 9. og 10. bekk í heimsókn á Laugum

Fimmtudaginn 27. febrúar bauð framhaldsskólinn á Laugum í Reykjadal 9. og 10.bekkingum Síðuskóla í heimsókn. Markmið heimsóknarinnar var að kynna það nám sem skólinn hefur upp á að bjóða. Nemendur okkar voru upp til hópa ánægðir með ferðina og mörgum fannst lífið á Laugum mjög spennandi. Við þökkum Framhaldsskólanum á Laugum kærlega fyrir góðar móttökur og frábæra kynningu á þeirra góða skóla.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

1. bekkur í heimilisfræði 1. bekkur í heimilisfræði

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Á döfinni

3. mars

Bolludagur

4. mars

Sprengidagur, 100 miða leikurinn í íþróttahúsinu

5.-7. mars

Vetrarfrí grunnskólanna á Akureyri, Frístund opin fimmtudag og föstudag frá kl. 13

13. mars

Starfamessa í HA, 9. og 10. bekkur

17. mars

Grófin, fræðsla í 9. bekk

18. mars

Lokahátíð Upphátt í Hofi kl. 14.30

24. mars

Útivistardagur

Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter