Smore logo
remove_red_eye 168
page background

DJÚPAVOGSSKÓLI

FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI

DJÚPAVOGSSKÓLI FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI

JÓLADAGATALIÐ OKKAR

Í næstu viku er nokkuð hefðbundin vika hjá okkur. Nemendur í tónlistarskólanum halda tónfund í Djúpavogskirkju og Berglind tónlistarkennari verður í sambandi við nemendur og foreldra í tengslum við það.

Á föstudaginn næsta ætlum við að hafa jólafatadag. Umsjónarkennarar upplýsa betur um það þegar nær dregur.

NÆSTA VIKA

Mánudagur 06.desember

  • Mætum hress og kát eftir gott helgarfrí

Þriðjudagur 07.desember

  • 14:40 Starfsmannafundur (gæti haft áhrif á opnunartíma í viðveru)

Miðvikudagur 08.desember

  • Góður dagur til að lesa jólabók

Fimmtudagur 09.desember

  • 14:40 Fagfundur
  • 16:30 Tónfundur nemenda tónlistarskólans

Föstudagur 10.desember

  • Jólafatadagur

MATSEÐILL Í DESEMBER

BOOTCAMP-HEIMSMARKMIÐA-SMIÐJUR

Já það kom að því, við náðum að klára Bootcamp smiðjurnar. Signý kom til okkar á mánudaginn, Lilja og Karen voru búnar að skipta í hópa, undirbúa og nemendur mættu hressir.

Nemendur unnu saman í hópunum sínum og kynntu svo verkefnin í lokin. Verkefni tveggja hópa voru valin sem framlag Djúpavogsskóla.

Nú hafa allir skólar í Múlaþingi lokið sínum smiðjum og dómnefnd mun velja þrjú bestu verkefnin.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

LÖGREGLAN Í HEIMSÓKN

Í gær kom lögreglumaður í heimsókn til okkar. Hann heitir Björn Emil og er varðstjóri á Fáskrúðsfirði. Bjössi lögga, eins og hann kynnti sig, fræddi nemendur um ábyrga netnotkun og birtingamyndir starfræns ofbeldis. Þetta var frábær fyrirlestur og mikilvæg fræðsla.

GUNNAR HELGASON Í HEIMSÓKN


Gunnar Helgason rithöfundur og leikari kom til okkar í dag. Það er óhætt að segja að hann hafi farið á kostum :)

Gunnar sagði krökkunum að góð barnabók yrði að vera fyndin og spennandi en best væri ef hún væri bæði.

Það var mikið hlegið og Gunnar fékk margar góðar spurningar. Í lokinn fór hann í alla bekki og gaf nemendum bókamerki og margir vildu hafa það áritað.


Reynt var að virða allar Covid reglur. Það var stólað upp í nýju stofunum (50 stóla hámark) og Gunnar var í miðjunni og talaði til beggja hópa. Hann var alltaf með grímu nema þegar hann stóð á milli hópa í öruggri fjarlægð, auk þess sem hann tók hraðpróf í morgun.


Gunnar hefur komið til okkar áður og það var vel merkjanlegur aukinn áhugi á lestri eftir þá heimsókn. Það er mjög mikilvægur þáttur í skólastarfinu að fá svona heimsóknir og við reynum að gera okkar besta til að láta það ganga upp við þessar aðstæður.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

JÓLASKREYTINGAR OG STEMMING

í dag var skólinn skreyttur og hellingur af jólaálfum voru á sveimi. Nemendur í listgreinum hjá Mörtu hafa útbúið stór skemmtilegar jóla-álfamyndir og fóru um húsið og skreyttu. Þetta eru ótrúlega litríkar og flottar myndir sem hressa heldur betur upp á stemminguna. Skólastjórinn er komin með dyravörð en þar er flottur álfur sem passar vel upp á allt :)


Á miðstigi var jólatónlist og nemendur upp um alla veggi við að skreyta.


Í listgreinum hjá Hildi hafa nemendur verið að útbúa jólakransa og fleira skemmtilegt.


Nemendur í tónmennt sungu jólalög og allir nemendur skólans fengu piparkökur og mandarínur í boði Múlaþings.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

MARTA YFIRJÓLAÁLFUR

LANDNÁMSMATUR

Í samfélagsfræði hjá Unni var nemendum boðið að smakka mysu og söl.

Meðfylgjandi eru tvær myndir...önnur er leikin...hin ekki.

Það má giska :)

zoom_out_map
zoom_out_map

Á síðustu dögum hefur skýjafarið verið skrautlegt. Falleg glitský og rauður himinn.

Margir nemendur héldu t.d. að það væri komið eldgos á Bónavörðunni...sem betur fer var það ekki :)

Bestu kveðjur og góða helgi.

Starfsfólk Djúpavogsskóla

zoom_out_map

DJÚPAVOGSSKÓLI

HUGREKKI-VIRÐING-SAMVINNA

Email: skolastjori.djupivogur@mulathing.is
Website: https://www.djupavogsskoli.is/
Location: Varda 6, Djúpivogur, Iceland

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter