Smore logo
remove_red_eye 874
page background

Fréttabréf

Ágúst 2026

Fréttabréf Ágúst 2026

Kæru foreldrar og forráðamenn

Nú styttist í að skólinn hefjist og samkvæmt venju byrjum við á að kennarar, nemendur og foreldrar hittist og ræði saman um komandi vetur. Þið munið fá tölvupóst frá skólanum með upplýsingum um hvernig þig þið bókið samtal.


Fyrstu skóladagarnir einkennast af hópefli, vinnu við bekkjarsáttmála og útiveru. Þá er nauðsynlegt að rifja upp skólareglur og reglur sem gilda á skólalóðinni á skólatíma. Við þurfum að gera nemendum ljóst að þessar reglur eru settar til þess að auka öryggi allra.


Við skólabyrjun er úthlutað námsgögnum. Við viljum fara vel með gögnin og nýta þau á ábyrgan hátt. Það að útvega nemendum námsgögn stuðlar að jöfnuði, sparnaði og jákvæðum umhverfisáhrifum. Með fræðslu og aukinni meðvitund um umhverfið ættum við í sameiningu, skólinn, foreldrar og nemendur að geta náð árangri í að nýta gögnin vel.


Eins og staðan er núna eru um 418 nemendur í skólanum og um 75 starfsmenn. Við bjóðum nýja nemendur, foreldra og nýtt starfsfólk velkomið í hópinn okkar. Við erum fjölmennt samfélag sem þarf að standa vörð um skólastarfið og það gerum við m.a. með því að hafa einkunnarorð skólans í huga.

MENNTUN - GLEÐI - UMHYGGJA - FRAMFARIR

Með von um gott samstarf í vetur,

Starfsfólk Brekkuskóla

User uploaded image
zoom_out_map

Umferðaröryggi

Þegar skólinn byrjar fjölgar börnunum okkar í umferðinni. Við fullorðna fólkið þurfum að hjálpa þeim að fara varlega og það gerum við bæði með fræðslu og með því að vera góðar fyrirmyndir.

Hér má nálgast upplýsingar og myndbönd sem gott er að skoða með börnunum áður en skólinn byrjar.


Gott að hafa í huga:

# Hjálpum börnunum að velja öruggustu leiðina í skólann og kennum þeim að fara yfir götur, með og án ljósastýringar.

# Notum hjólreiðahjálm, bæði börn og fullorðnir.

# Tökum tillit til annarra vegfarenda, sérstaklega í nánd við skóla.

# Tvímennum ekki á hlaupahjólum.


Brýnum fyrir börnunum að ganga vel og örugglega frá hjólum og hlaupahjólum við skólann.

Við bendum á að á skólatíma má ekki hjóla á skólalóðinni.

Umsjónarkennarar í árgöngum

1. bekkur: Gerður Geirsdóttir og Sólrún Eyfjörð Torfadóttir

2. bekkur: Emilía Jóhanna Guðjónsdóttir og Ólöf María Jóhannesdóttir

3. bekkur: Fríður Gunnarsdóttir og Hjördís Stefánsdóttir

4. bekkur: Rósa Hrefna Gísladóttir og Sara Mist Jóhannsdóttir

5. bekkur: Natalia Wroblewska og Valgerður Húnbogadóttir

6. bekkur: Elva Rún Erlingsdóttir og Stefán Þór Ákason Reykdal

7. bekkur: Elín Auður Ólafsdóttir og Þórkatla Björg Ómarsdóttir

8. bekkur: Berglind Gylfadóttir, Karen Dögg Úlfarsdóttir Brown og Margrét Helgadóttir

9. bekkur: Hanna Dóra Markúsdóttir og Sævar Árnason

10. bekkur: Helgi Viðar Tryggvason og Svanhildur Sæmundsdóttir

Foreldrafundir í öllum árgöngum í haust

Í Brekkuskóla hefur frá árinu 2012 verið þróað verkefni sem kallast Foreldrasamstarf 1-3-5-8 sem byggir á skipulögðum haustfundum með foreldrum í 1., 3., 5. og 8. bekk. Árlega eru haldnir tveir fundir með hverjum árgangi. Markmið verkefnisins er að:

  • Efla tengsl milli foreldra og skóla.

  • Styrkja foreldrahópinn til að vinna saman að lausnum og stuðningi við börnin.

  • Kynna skólastarf, stefnur og áherslur, m.a. uppbyggingarstefnu.

  • Skapa vettvang fyrir samveru og hópefli sem stuðlar að jákvæðum samskiptum og trausti.

Foreldrasamstarf er lykilþáttur í farsælu skólastarfi og velferð barna og því höldum við þessu verkefni ótrauð áfram.


Undanfarið hefur verið umræða meðal foreldra um að það hafi skort foreldrafundi í öðrum árgöngum og nú ætlar skólinn í samvinnu við foreldrafélagið að standa fyrir haustfundum í þeim. Foreldrar nemenda í 2., 4., 6., 7., 9. og 10 bekk munu því fá boð á slíka fundi og hvetjum við alla foreldra til að gefa sér tíma til að mæta, spjalla við kennara og aðra foreldra. Það vakna oft spurningar sem gott er að viðra í þessum hóp, einnig gefst tækifæri fyrir foreldra til að koma með hugmyndir varðandi félagsstarf og ræða ýmis málefni sem tengjast bekkjarstarfi og foreldrasamstarfi.

User uploaded image
zoom_out_map

Á döfinni

  • Samtöl nemenda, foreldra og kennara dagana 24. og 25. ágúst.
  • 9. september hefst verkefnið Göngum í skólann. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
  • 2. september er áætlaður útivistardagur. Nánari upplýsingar koma frá umsjónarkennurum.
  • Nemendur koma á sal næstu daga og farið verður yfir skólastarfið framundan.
  • Lesfimipróf verða lögð fyrir í september í öllum árgöngum.
  • 16. september á degi íslenskrar náttúru verða haldnir Brekkuskólaleikar
  • Foreldrasamstarf 1 - 3 - 5 - 8, fyrri og seinni hluti. Foreldrar fá fundarboð í tölvupósti.
  • Foreldrasamstarf 2., 4., 6, 7., 9., og 10. bekk. Foreldrar fá fundarboð í tölvupósti.
  • 30. september verður skipulagsdagur
User uploaded image
zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar og áætlun gegn einelti

Í Brekkskóla höfum við valið okkur þessar tvær leiðir; Uppeldi til ábyrgðar og áætlun gegn einelti til að stuðla að öryggi og vellíðan nemenda.

Uppeldi til ábyrgðar - Uppbygging sjálfsaga. (Restitution - Self Discipline) Gengur í stuttu máli út á það að kenna börnum og unglingum sjálfsstjórn og sjálfsaga.


Nemendur læra:

  • Að setja sér markmið, gera uppbyggingaráætlanir, stunda sjálfsrannsókn

  • Að rækta og efla sinn innri áhuga

  • Að bera ábyrgð á eigin námi

  • Að læra leiðir til að hafa stjórn á eigin hegðun

  • Aðferðir við lausn ágreiningsefna

  • Að sinna þörfum sínum af ábyrgð gagnvart sjálfum sér og öðrum.(Minni freisting að taka vonbrigði sín út á öðrum eða leggja aðra í einelti)

  • Að mynda tengsl við aðra

  • Að bera ábyrgð á eigin mistökum, leiðrétta þau og bæta fyrir þau

  • Að verða þeir sjálfir - þær manneskjur sem þeir vilja vera

  • Að gera bekkjarsáttmála


Áætlun gegn einelti

Á heimasíðu Brekkuskóla er að finna áætlun gegn einelti sem er hugsuð til að fyrirbyggja einelti, bæta líðan og öryggi nemenda og bregðast við grun um einelti á fullnægjandi hátt. Því miður er einelti til staðar í skólanum og samfélaginu okkar og því verðum við í sameiningu að vinna hörðum höndum að fyrirbyggjandi aðgerðum og bregðast ákveðið við þegar upp kemur einelti.

User uploaded image
zoom_out_map

Verklagsreglur um raunmætingu nemenda í skólann

Skólinn heldur utan um raunmætingu nemenda, en með raunmætingu er átt við að tekið sé tillit til allra fjarvista þar með taldar veikindi og leyfi og þær reiknaðar sem hlutfall af skólasókn yfir árið. Í grunnskólum Akureyrarbæjar eru fjarvistir og seinkomur skráðar í Mentor.

Ef foreldrar gera ekki athugasemd strax við skráðar ástundunarfærslur skoðast þær samþykktar.

• Fyrir seinkomu fær nemandi skráð 1 stig • Fyrir farvist úr kennslustund fær nemandi skráð 2 stig


Viðbragðsáætlun vegna fjarvista:

Þrep 1: Ef nemandi er kominn með 10 stig ræðir umsjónarkennari við nemandann ef hann hefur aldur til og fyllir út áætlun um bætta skólasókn. Í kjölfarið hringir hann heim og upplýsir foreldra/forráðamenn um samtalið við nemandann og gerir áætlun um bætta skólasókn.
Þrep 2: Ef nemandi er kominn með 20 stig og/eða 10 veikinda-/leyfisdaga eru foreldrar boðaðir á fund með umsjónarkennara og stjórnanda þar sem leitað er leiða til úrbóta og áætlun tvö um bætta skólasókn fyllt út. Skólahjúkrunarfræðingur upplýstur um málið.
Þrep 3: Ef nemandi er kominn með 30 stig og eða 15 veikinda-/leyfisdaga eru foreldrar ásamt nemanda (ef hann hefur aldur til) boðaðir á annan fund með umsjónarkennara og stjórnanda, leitað lausna og áætlun þrjú um bætta skólasókn fyllt út. Mælt er með aðkomu skólaþjónustu fræðslu- og lýðheilsusviðs (tilvísun send með samþykki foreldra) og boðið upp á samþætta þjónustu á 1. stigi. Ef um veikindadaga er að ræða er skólahjúkrunarfræðingur boðaður á fundinn.
Þrep 4: Ef nemandi er kominn með 40 stig og eða 20 veikinda-/leyfisdaga er boðað til fundar með foreldrum. Gripið er til úrræða s.s. á vegum heilsugæslu, félagsþjónustu eða annarra þjónustuaðila eftir því sem við á. Samþætting á 2. stigi er kynnt. Áætlun fjögur um bætta skólasókn fyllt út.

Þrep 5: Fari nemandi yfir 60 stig og fyrrgreind úrræði hafa ekki borið árangur er málinu vísað áfram í barnaverndarþjónustu. Unnið áfram þar með málastjóra samþættingar ef verið er að veita samþætta þjónustu.

User uploaded image
zoom_out_map

Námsmat - talnakvarði í 10. bekk vorið 2027

Mennta- og barnamálaráðuneytið hrindir í framkvæmd breytingum á námsmati í grunnskólum með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagið allt. Áformin fela í sér að einkunnir verði birtar í tölum í stað bókstafa, en samkvæmt gildandi aðalnámskrá byggir námsmat í grunnskóla á bókstafakvarða sem tengdur er hæfni- og matsviðmiðum við lok 4., 7. og 10. bekkjar.


Breytingarnar verða innleiddar í tveimur áföngum. Fyrsti áfangi tekur formlega gildi vorið 2027 og nær til lokamats í 10. bekk. Þá verða einkunnir við lok grunnskóla hjá 10. bekk gefnar í heilum tölum.

User uploaded image
zoom_out_map

Mentor

Skólinn notar samskipta- og upplýsingakerfið Mentor. Þar er m.a. að finna bekkjarlista og hægt að senda tölvupósta. Á hæfnikortum birtist námsframvinda nemenda. Skólinn notar dagbók í Mentor til að skrá ýmsar upplýsingar og fundargerðir þegar það á við.

Foreldrar geta sjálfir skráð börnin veik í gegnum Mentor. Ef sækja þarf um leyfi fyrir nemendur þá er það gert með því að fara á heimasíðu skólans og óska þar eftir leyfi. Alltaf skal hafa samráð við umsjónarkennara þegar óskað er eftir leyfi.

Á heimasíðu Mentors er m.a. handbók fyrir aðstandendur þar sem hægt er að nálgast ýmsar gagnlegar upplýsingar og notkunarleiðbeiningar. Athugið að ekki er víst að skólinn nýti alla möguleika sem Mentor býður upp á - það er valkvætt hvernig skólar ákveða að nota kerfið.

User uploaded image
zoom_out_map

Símareglur

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum.

Markmiðið með reglugerðinni er að takmarka notkun síma og snjalltækja barna og ungmenna í grunnskólum ásamt því að samræma og setja skýrari reglur um notkunina. Um leið er markmið hennar að styðja við faglegt skólastarf og að búa nemendum náms- og félagsumhverfi sem styður við farsælt nám þeirra og vellíðan.

Þangað til reglur um takmörkun notkunar síma og snjalltækja í grunnskólum á Íslandi taka gildi munum við halda áfram að styðjast við samræmdar reglur um símanotkun nemenda í grunnskólum Akureyrarbæjar. Hér má kynna sér þær. Það skiptir miklu máli að við fullorðna fólkið stöndum saman og sýnum gott fordæmi hvað varðar símanotkun.

User uploaded image
zoom_out_map

Brekkuskóli er hnetulaus skóli

Við minnum á að Brekkuskóli er hnetulaus skóli. Það gildir bæði fyrir nemendur og starfsfólk.

User uploaded image
zoom_out_map

Hafðu samband

Ábyrgðarmenn: Stjórnendur Brekkuskóla

Email: brekkuskoli@brekkuskoli.is
Website: brekkuskoli.is
Location: v. Skólastíg
Phone: +354 414-7900
Facebook: https://www.facebook.com/brekkuskoli.is/

Brekkuskóli Brekkuskóli
Brekkuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter