Smore logo
remove_red_eye 733
page background

Fréttabréf Síðuskóla

10. bréf - júní- skólaárið 2024-2025

FréttabréfSíðuskóla10. bréf - júní- skólaárið 2024-2025
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

Núna eru síðustu skóladagarnir framundan og styttist í sumarfrí nemenda.

Að venju verðum við með umhverfisdaga og skipulag þeirra er að finna hér neðar í bréfinu. Gott er að skoða það skipulag vel. Þessa daga munum við fara um okkar nærumhverfi, læra og leika okkur.

Síðasta skóladaginn munum við svo enda á grilli í útigarðinum.

Skólaslit verða 5. júní og tímasetningar má sjá hér neðar í bréfinu.

Við þökkum kærlega fyrir samstarfið á þessu skólaári og bjóðum tilvonandi nemendur velkomna í skólann. Þetta fréttabréf er einnig sent á verðandi foreldra í 1. bekk.

Í haust munu 32 nemendur hefja skólagöngu í Síðuskóla. Í ár útskrifast 38 nemendur og mun því fækka lítillega í skólanum frá og með hausti. Við óskum útskriftarnemendum alls hins besta og þökkum og foreldrum/forráðamönnum kærlega fyrir samstarfið sl. 10 ár.

Skólasetning næsta skólaárs er föstudaginn 22. ágúst og verða sendar nánari upplýsingar í ágúst auk þess sem þær verða settar á heimasíðuna.

Marías deildarstjóri verður í námsleyfi á næsta skólaári og í hans stað verður Anna María Þórhallsdóttir.


Megið þið eiga ljúfa og góða daga í sumarleyfinu!

Bestu kveðjur úr skólanum!

Ólöf, Malli og Helga

zoom_out_map

Skólaslit Síðuskóla vorið 2025

Skólaslit Síðuskóla verða fimmtudaginn 5. júní.

Árgangar mæta í heimastofur og fara saman í sal. Þar kveður skólastjórinn fyrir hönd skólans og síðan fara nemendur í sínar heimastofur þar sem hópurinn er kvaddur. Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir með sínum börnum. Við miðum við að skólinn sé í eina klukkustund.

  • Klukkan 9:00 1.-5. bekkur
  • Klukkan 10:00 6.-9. bekkur

Útskrift 10. bekkjar kl. 15:00 í Glerárkirkju og kaffi í skólanum á eftir fyrir nemendur, fjölskyldur þeirra og starfsfólk.

Söngsalur á yngsta stigi

Fjör á síðasta söngsal vetrarins hjá yngsta stigi eins og sjá má á myndum hér.

1. bekkur fékk að opna stundina með tveimur lögum sem þau hafa verið að æfa. Heimir tók svo við með vinsælustu lög vetrarins og allir tóku vel undir. Alltaf gaman að syngja svolítið.

Óskilamunir

Mikið er af óskilamunum í skólanum og biðjum við foreldra að koma við hjá okkur þessa síðustu daga og athuga hvort eitthvað hefur orðið eftir.

Umsjónarkennarar 2025-2026

1. bekkur - Alda Ýr Guðmundsdóttir og Lilja Þorkelsdóttir

2. bekkur - Gréta Björk Halldórsdóttir og Sigríður Jóna Ingólfsdóttir

3. bekkur - Fríða Kristín Hreiðarsdóttir og Kristín Dögg Jónsdóttir

4. bekkur - Fríða Rún Guðjónsdóttir og Magnea Guðrún Gróa Karlsdóttir

5. bekkur - Matthildur Stefánsdóttir og Melkorka Mjöll Kristinsdóttir

6. bekkur - Arna Valgerður Erlingsdóttir og Rannveig Heimisdóttir

7. bekkur - Hafdís María Tryggvadóttir og Kolbrún Sveinsdóttir

8. bekkur - Ólafur Haukur Tómasson og Sigríður Jóhannsdóttir

9. bekkur - Heiða Björg Guðjónsdóttir og Sonja Björk Dagsdóttir

10. bekkur - Hulda Guðný Jónsdóttir, Katrín María Hjartardóttir og Þröstur Már Pálmason

zoom_out_map

Á döfinni

29. maí

Uppstigningardagur - frídagur

2. júní

Vímuefnafræðsla í 10. bekk

3. júní

Umhverfisdagur - allur skólinn í gönguferð

4. júní

Umhverfisdagur
5. júní

Skólaslit

Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter