Smore logo
remove_red_eye 362
page background

Fréttabréf Síðuskóla

7. bréf - febrúar - skólaárið 2024-2025

FréttabréfSíðuskóla7. bréf - febrúar - skólaárið 2024-2025
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

Þá er janúar að baki og alltaf hækkar sólin á lofti. Í næstu viku eru samtalsdagar hér í skólanum og þá gefst tækifæri til að ræða nám og líðan nemenda. Við höfum gert margt skemmtilegt í skólanum síðan við komum inn úr jólafríi eins og sést í fréttabréfinu. Það var t.d. gaman að sjá í flokkunarkeppninni hversu klárir nemendur eru í að flokka og hversu samofið þetta er orðið öllu starfi í skólanum. Starfsfólk fékk fræðslu og upprifjun varðandi flokkun frá Terra á starfsmannafundi í byrjun janúar því nauðsynlegt er að halda þessu við og miðla þeirri þekkingu áfram til nemenda. Búið er að gera drög að skóladagatali næsta árs og verður það kynnt í fræðslu- og lýðheilsuráði sem og skólaráði á næstunni. Þegar búið er að samþykkja það verður það kynnt á heimasíðunni.

Við viljum minna á það að ef nemendur eru keyrðir í skólann þá á að nýta sleppisvæðið nema sérstakar ástæður kalli á annað.

Við minnum svo á að klæða sig vel eftir veðri ekki þar sem það er kalt þessa dagana. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir þá sem fara út í frímínútur.


Bestu kveðjur úr skólanum,

Ólöf, Malli og Helga

1. bekkur - 100 daga hátíð 1. bekkur - 100 daga hátíð

Í dag var haldin 100 daga hátíð í 1. bekk í tilefni þess að nemendur hafa verið 100 daga í skólanum. Dagurinn var fullur af gleði og fjöri, en nemendur marseruðu um skólann og unnu ýmis skapandi 100 daga verkefni. Nemendur völdu einnig góðgæti í tilefni dagsins – 100 talsins. Hátíðinni lauk svo með fjörugu balli þar sem nemendur dönsuðu og skemmtu sér saman.

Til hamingju með fyrstu 100 dagana í skólanum 1. bekkingar!

Hér má sjá fleiri myndir frá hátíðinni.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Leiðsagnarnám í Síðuskóla

Á þessu skólaári höldum við áfram að innleiða leiðsagnarnám, okkur til ráðgjafar er Miðstöð skólaþróunar HA. Í leiðsagnarnámi er lögð áhersla á að nemendur velti reglulega fyrir sér námi sínu með kennurum sínum til að nálgast eigin markmið í náminu og ákveða hvert skuli stefna. Markmið með innleiðingunni er að starfsfólk fái í hendur verkfæri til að þróa og efla kennslu, gera kennslustundir enn markvissari, efla virkni nemenda í kennslustundum, fá þá til að bera meiri ábyrgð á eigin námi, að þeir sjái framvinduna o.s.frv.

Megintilgangur leiðsagnarnáms er að er að auka hlutdeild og ábyrgð nemenda á eigin námi og stuðla þannig að bættum árangri. Nemendur eiga alltaf að vita hvert þeir stefna í námi sínu og hafa viðmið um árangur. Þeir þurfa að vita hvar þeir eru staddir á leið sinni og fá leiðsögn sem hjálpar þeim til að brúa bilið þar á milli.

Nemendur í miðstigsvali undirbúa Barnamenningarhátíðina

Í miðstigsvali í Síðuskóla í dag eru nemendur að undirbúa Barnamenningarhátíðina sem haldin verður vítt og breytt um Akureyri dagana 1.-27. apríl. Þetta er í annað sinn sem nemendur miðstigs í Síðuskóla taka þátt með formlegum hætti og búa til muni sem þau selja til styrktar góðs málefnis. Í ár á ágóðinn að renna til barnadeildar Sjúkrahússins á Akureyri.

Sjá myndir hér.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Krufning í 9. bekk - verkleg kennsla

Nemendur í 9. bekk fengu einstakt tækifæri til að skoða og rannsaka brjóstholslíffæri úr svíni í tengslum við námsefnið sitt í náttúrufræði. Í litlum hópum krufðu þau lungu og hjarta, og skoðuðu byggingu og starfsemi þeirra í samhengi við mannslíkamann, sem þau hafa verið að læra um í vetur.

Þessi verklega nálgun hjálpar nemendum að tengja fræðilega þekkingu við raunverulega upplifun. Það var bæði fræðandi og áhugavert að fá að vinna með raunveruleg líffæri og sjá hvernig þau eru í alvörunni!

Hér eru fleiri myndir.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Á döfinni

6. febrúar

Þorgrímur Þráinsson heimsækir miðstig og 10. bekk

10. og 11. febrúar

Samtalsdagar

26. febrúar

Opið hús vegna innritunar í 1. bekk

28. febrúar

Dagur einstakra barna

Flokkunarkeppni Síðuskóla

Í síðustu viku var hin árlega flokkunarkeppni haldin. Þá keppa bekkirnir milli sín um að flokka sem réttast og á tíma. Gaman að sjá hvað krakkarnir okkar hafa gaman af því að taka þátt í þessari keppni og þetta er að sjálfsögðu lærdómur í leiðinni. Að þessu sinni sigraði 9. bekkur en 1. og 7. bekkur unnu á sínu stigi. Árgangurinn fær köku í lok skóladagsins. Sjá myndir frá keppninni hér.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter