Dagur íslenskrar tungu
16. nóvember

Dagur íslenskrar tungu í Bergi
Dagur íslenskra tungu var haldinn hátíðlegur á mánudaginn síðasta. Dagur íslenskrar tungu er alltaf haldinn á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar 16.nóvember. Björk Hólm forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs setti hátíðina og var kynnir.
Hún opnaði hátíðina með orðum um lestur:
Í samfélaginu okkar er mikið talað um læsi og í öllu lífinu notum við lestur hvort sem við áttum okkur á því eða ekki, við notum læsi við að lesa skilaboð frá vinum, texta við myndbönd, allskonar leiðbeiningar af spilum, hvernig við setjum hluti saman eða spilum tölvuleiki. Lesum uppskriftir, teiknimyndasögur, bækur og er lestur því stór þáttur í daglegu lífi okkar.
Græn eru laufin
1. - 4. bekkur
Söngnemendur úr 4. og 5. bekk
Dagskráin í ár var tileinkuð Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttur
Lovísa María eða Lóa Maja eins við flest þekkjum hana gaf nýverið út sína fyrstu ljóðabók sem heitir Lóu ljóð. Lóa er Hríseyingar í húð og hár en flutti sig 14 ára gömul yfir jörðin og settist að á Dalvík. Við erum svo sannarlega rík að hafa fengið Lóu í okkar samfélag. Við þekkjum Lóu Maju vel úr Dalvíkurskóla þar sem hún starfaði um árabil.
Lóu Ljóð er einstaklega falleg og skemmtileg ljóðabók, hún varpar ljósi á áhugaverðar upplifanir Lóu og skemmtilega sýn hennar á samfélagið.
Daníel Örn Karlsson
Flutti ljóðið Flórsykur í fjallstoppum eftir Lóu Maju.
Stefanía Lilja Friðriksdóttir
Flutti ljóðið Vinátta eftir Lóu Maju. Bæði þessi ljóð má finna í nýju ljóðabókinni hennar Lóu.
Marcel Úlfur Davíðsson
Flutti lagið Liebestrame eftir Franz Liszt
Lokaorð og Stóra upplestrarkeppnin
Friðrik skólastjóri lauk dagskránni með nokkrum góðum orðum og setti stóru upplestrarkeppnina í 7. bekk sem haldin verður í Bergi 8. apríl næstkomandi.