Smore logo
remove_red_eye 998
page background
https://tskoli.is/

Tæknótíðindi

28. ágúst 2026

Tæknótíðindi28. ágúst 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 2. september - Nýnemaklúbbakvöld kl. 17-19 á Háteigsvegi
  • 9. september - Klúbbakvöld á Háteigsvegi kl.17-21
  • 10. september - Nýnemaball í Iðnó
Skóladagatal Tækniskólans

Velkomin í Tækniskólann Velkomin í Tækniskólann

User uploaded image
zoom_out_map

Vel heppnuð nýnemavika og nýnemaferðir

Það var virkilega ánægjulegt að taka á móti glæsilegum hópi nýnema sem hefur heldur betur staðið sig með stakri prýði í upphafi skólaársins.


Á fyrsta kennsludegi haustannar bauð Tækniskólinn nýnemum upp á ís sem markaði upphafið að líflegri nýnemaviku. Alla nýmavikuna var boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá í hádegishléum, svo sem pizzuveislu, bingó og Kahoot.


Nýnemaferðir NST voru farnar dagana 26. og 27. ágúst og heppnuðust sérlega vel. Þar gafst nýnemum gott tækifæri til að kynnast samnemendum sínum betur, eiga skemmtilegan dag saman í upphafi skólaársins og skapa góðar minningar. Farið var með rútu á Stokks­eyri þar sem boðið var upp á fjöl­breytta dag­skrá í frábæru veðri. Nemendur nutu sín vel í kaj­ak­sigl­ingu og ýmsum leikjum auk þess sem boðið var upp á grillaðar pylsur.


Hér má sjá nokkrar úr nýnemavikunni og nýnemaferðunum. Fleiri myndir úr nýnemaferðunum koma á flickr síðu Tækniskólans í næstu viku.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Stoðþjónusta við nemendur Stoðþjónusta við nemendur

User uploaded image
zoom_out_map

Sýnum alúð í verki

Tækni­skólinn leggur mikið upp úr öfl­ugri stoðþjón­ustu sem ætlað er að styðja við nem­endur og starfs­fólk skólans. Þjón­ustan er fjöl­breytt og nær meðal annars yfir aðstoð í námi, sér­kennslu, náms- og starfsráðgjöf, sálfræðiaðstoð, for­varnarstarf og aðstoð með félagsmál.

HÉR má finna hlekk á upplýsingasíðu náms- og starfsráðgjafa og HÉR er hlekkur á upplýsingasíðu sálfræðings skólans.

Tölvuþjónusta Tölvuþjónusta

User uploaded image
zoom_out_map

Á vefsíðu skólans má finna gagnlegar upplýsingar um tölvuþjónustu og kennslukerfin Canvas og Innu.


Á síðu tölvuþjónustunnar má finna leiðbeiningar og upplýsingar um helstu kerfi og forrit sem notuð eru við kennslu. Einnig má nálgast helstu upplýsingar og leiðbeiningar um kennslukerfi skólans, Canvas og Innu.

Tölvuþjónusta Tækniskólans er opin vika daga frá klukkan 8:00-16:00. Nemendur geta óskað eftir aðstoð með því að senda póst á Tolvuthjonusta@tskoli.is.

Geymsluskápar Geymsluskápar

User uploaded image
zoom_out_map

Í Tækniskólanum eru geymslu­skápar til afnota fyrir nem­endur án end­ur­gjalds.

Regl­urnar eru ein­faldar:


  • Fyrstur kemur, fyrstur fær. Ef skápur er opinn er hann laus til notkunar.
  • Nota skal eigin lás.
  • Skápar skulu tæmdir og skildir eftir opnir í lok skólaárs.
  • Þann 1. júní ár hvert ár verður klippt á lása á lokuðum skápum og þeir tæmdir.

Nýnemaklúbbakvöld Nýnemaklúbbakvöld

User uploaded image
zoom_out_map

Fyrsta klúbbakvöld hautsins verður næstkomandi miðvikudag klukkan 17-19 í húsnæði Tækniskólans á Háteigsvegi. Þar verður lögð sérstök áhersla á kynningu fyrir nýnema. Nýnemar fá sérstakan póst um nýnemaklúbbakvöldið eftir helgi. Hvetjum öll til að mæta!

Bókasafn Tækniskólans

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter