Tæknótíðindi
28. ágúst 2026
Dagsetningar framundan
- 2. september - Nýnemaklúbbakvöld kl. 17-19 á Háteigsvegi
- 9. september - Klúbbakvöld á Háteigsvegi kl.17-21
- 10. september - Nýnemaball í Iðnó
Velkomin í Tækniskólann
Vel heppnuð nýnemavika og nýnemaferðir
Það var virkilega ánægjulegt að taka á móti glæsilegum hópi nýnema sem hefur heldur betur staðið sig með stakri prýði í upphafi skólaársins.
Á fyrsta kennsludegi haustannar bauð Tækniskólinn nýnemum upp á ís sem markaði upphafið að líflegri nýnemaviku. Alla nýmavikuna var boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá í hádegishléum, svo sem pizzuveislu, bingó og Kahoot.
Nýnemaferðir NST voru farnar dagana 26. og 27. ágúst og heppnuðust sérlega vel. Þar gafst nýnemum gott tækifæri til að kynnast samnemendum sínum betur, eiga skemmtilegan dag saman í upphafi skólaársins og skapa góðar minningar. Farið var með rútu á Stokkseyri þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá í frábæru veðri. Nemendur nutu sín vel í kajaksiglingu og ýmsum leikjum auk þess sem boðið var upp á grillaðar pylsur.
Hér má sjá nokkrar úr nýnemavikunni og nýnemaferðunum. Fleiri myndir úr nýnemaferðunum koma á flickr síðu Tækniskólans í næstu viku.
Stoðþjónusta við nemendur
Sýnum alúð í verki
Tækniskólinn leggur mikið upp úr öflugri stoðþjónustu sem ætlað er að styðja við nemendur og starfsfólk skólans. Þjónustan er fjölbreytt og nær meðal annars yfir aðstoð í námi, sérkennslu, náms- og starfsráðgjöf, sálfræðiaðstoð, forvarnarstarf og aðstoð með félagsmál.
HÉR má finna hlekk á upplýsingasíðu náms- og starfsráðgjafa og HÉR er hlekkur á upplýsingasíðu sálfræðings skólans.
Tölvuþjónusta
Á vefsíðu skólans má finna gagnlegar upplýsingar um tölvuþjónustu og kennslukerfin Canvas og Innu.
Á síðu tölvuþjónustunnar má finna leiðbeiningar og upplýsingar um helstu kerfi og forrit sem notuð eru við kennslu. Einnig má nálgast helstu upplýsingar og leiðbeiningar um kennslukerfi skólans, Canvas og Innu.
Tölvuþjónusta Tækniskólans er opin vika daga frá klukkan 8:00-16:00. Nemendur geta óskað eftir aðstoð með því að senda póst á Tolvuthjonusta@tskoli.is.
Geymsluskápar
Í Tækniskólanum eru geymsluskápar til afnota fyrir nemendur án endurgjalds.
Reglurnar eru einfaldar:
- Fyrstur kemur, fyrstur fær. Ef skápur er opinn er hann laus til notkunar.
- Nota skal eigin lás.
- Skápar skulu tæmdir og skildir eftir opnir í lok skólaárs.
- Þann 1. júní ár hvert ár verður klippt á lása á lokuðum skápum og þeir tæmdir.
Nýnemaklúbbakvöld
Fyrsta klúbbakvöld hautsins verður næstkomandi miðvikudag klukkan 17-19 í húsnæði Tækniskólans á Háteigsvegi. Þar verður lögð sérstök áhersla á kynningu fyrir nýnema. Nýnemar fá sérstakan póst um nýnemaklúbbakvöldið eftir helgi. Hvetjum öll til að mæta!