Smore logo
remove_red_eye 413
page background

Fréttabréf Síðuskóla

6. bréf - janúar - skólaárið 2024-2025

FréttabréfSíðuskóla6. bréf - janúar - skólaárið 2024-2025
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

Gleðilegt nýtt ár 2025!


Við höfum nú kvatt árið 2024 og horfum bjartsýn fram á nýtt ár, tilbúin að takast á við ný verkefni og tækifæri sem bíða okkar í skólastarfinu.

Haustið var einstaklega viðburðaríkt í skólanum okkar. Síðuskóli fagnaði 40 ára afmæli sínu með glæsibrag. Í nóvember varð skólinn Réttindaskóli UNICEF við hátíðlega athöfn í íþróttasal skólans. Þetta markar tímamót í starfi okkar og undirstrikar mikilvægi þess að ala upp börn með mannréttindi að leiðarljósi.

Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn sem við höfum fengið frá foreldrum, FOKS og samfélaginu. Á árinu fengum við rausnarlega peningagjöf frá FOKS sem gerði okkur kleift að kaupa nýjar bækur á bókasafnið. Það er mikilvægt að geta boðið nemendum upp á nýjar og áhugaverðar bækur og hvetjum foreldra til að halda áfram að styðja við börnin í lestrinum heima fyrir.

Vinna við skóladagatalið 2025-2026 er að hefjast en það sem vitað er núna og er samræmt milli skólanna á Akureyri, er að skólasetningin næsta skólaár verður föstudaginn 22. ágúst, haustfríið er 20. og 21. október og vetrarfríið 18.- 20. febrúar.

Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að byggja áfram á þeim styrkleikum sem við höfum og ná sem bestum árangri, saman lærum, náum árangri og gleðjumst.

Við þökkum ykkur innilega fyrir gott samstarf á liðnu ári og megi árið 2025 verða okkur gott og árangursríkt.

Með góðri kveðju,

Ólöf, Malli og Helga

zoom_out_map

Á döfinni

13. janúar

Stafrænt ofbeldi, fræðsla í 8. bekk

22. janúar

Fundur í skólaráði

28. janúar

Skipulagsdagur, engin kennsla

30. janúar

AFS, kynning í 9. og 10. bekk

Hin árlega spurningakeppni unglingastigs fór fram 19. desember

Hin árlega spurningakeppni í 8.-10. bekk fór fram þann 19. desember sl.. Allir þátttakendur stóðu sig með prýði en það var lið 8. bekkjar sem stóð uppi sem sigurvegari. Í liðinu voru þau Hlynur Orri, Kern Emilía og Snorri Karl. Hér eru nokkrar myndir frá keppninni.
Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter