Smore logo
remove_red_eye 399
page background

Fréttamolar úr MS

5. febrúar 2026

Fréttamolar úrMS5. febrúar 2026

Dagsetningar framundan 📆 Dagsetningar framundan 📆

Vikan 8.-13. febrúar: Jafnréttisvika

Föstudagur 13. febrúar: Síðasti kennsludagur vetrarannar

Mánudagur og þriðjudagur 16.-17. febrúar: Matsdagar

Miðvikudagur 18. febrúar: Lokaeinkunnir birtast í Innu kl. 20:00

Fimmtudagur 19. febrúar: Námsmatssýning kl. 11-12 í MS

Föstudagur 20. febrúar: Stundatöflur vorannar birtast í Innu

Mánudagur 23. febrúar: Upphafsdagur vorannar

Þriðjudagur 24. febrúar: Fyrsti kennsludagur vorannar

24.-26. febrúar: Íþróttavika SMS

Föstudagur 27. febrúar: Sameiginlegur starfsþróunardagur framhaldsskóla - kennsla fellur niður þann dag

Skóladagatal 25-26

Kennslukönnun Kennslukönnun

User uploaded image
zoom_out_map

Á vetrarönn er lögð fyrir kennslukönnun í íþróttum, raungreinum og listgreinum. Könnunin er mikilvægur liður í gæðastarfi skólans. Við hvetjum því alla nemendur til að svara kennslukönnun, þar gefst þeim tækifæri til að láta rödd sína heyrast. Könnunin er nafnlaus. Kennslukönnun er opin í Innu út vikuna.

Nokkur mikilvæg atriði við lok annar: Nokkur mikilvæg atriði við lok annar:

User uploaded image
zoom_out_map
  • Nemendur sem eru með mætingu undir 85% við lok annar (að teknu tilliti til veikinda og leyfa) teljast hafa brotið skólareglur og fá því færri áfanga á næstu önn.
  • Nemendur fá einkunn fyrir raunmætingu (mæting án veikinda og leyfa) í hverjum áfanga í samræmi við raunmætingarkvarða skólans.
  • Nemendur sem eru fjarverandi síðustu daga annar og á matsdögum geta að jafnaði ekki fengið að taka próf eða námsmat sem þau missa af á öðrum tímum og þurfa því að skipuleggja sig í samræmi við það. Matsdagar eru skóladagar skv. skóladagatali og nemendur þurfa alltaf að gera ráð fyrir að námsmat fari fram á þeim tímum.

Lífshlaupið! Lífshlaupið!

User uploaded image
zoom_out_map
Lífshlaupið hófst 1. febrúar og stendur til 28. febrúar. MS er skráður til leiks í framhaldsskólakeppni og þið getið ýmist skráð ykkur í lið eða stofnað lið. Skráning á lifshlaupid.is


Endilega tökum þátt saman, öll hreyfing telur!

Sigurvegari Baulunnar 2026 Sigurvegari Baulunnar 2026

User uploaded image
zoom_out_map

Söngvakeppnin Baulan var haldin í Gamla bíó fimmtudaginn 22. janúar. Í keppnina voru skráð 7 atriði, hvert öðru glæsilegra. Dómnefnd skipuðu Jóna Margrét, Guðjón Smári og Gugga í gúmmíbát og foreldraráð skólans gaf vinninga.



Sigurvegari að þessu sinni var Maja Margrét með lagið Die on this hill með Sienna Spiro. Maja verður því fulltrúi skólans í Söngvakeppni framhaldsskólanna 2026. Í öðru sæti var Ína Andradóttir og í þriðja sæti Arnór Orri. Til hamingju!

Metþátttaka í bólusetningunni Metþátttaka í bólusetningunni

User uploaded image
zoom_out_map

Í síðustu viku náðist að bólusetja 80.7% þeirra sem boðaðir voru í bólusetningu. Þetta er mjög hátt hlutfall og eðlilegt að gera ráð fyrir að langflestir sem voru ekki heima veikir eða vildu ekki, hafi fengið bólusetninguna. Við vorum með næsthæsta hlutfallið á eftir Versló, sem er mjög vel gert fyrir áfangaskóla.

Kosningar SMS í mars og reglur um kjörgengi Kosningar SMS í mars og reglur um kjörgengi

Kosningar til stjórnar SMS 2026-2027 fara fram í mars. Stjórnendur skólans gera eftirfarandi kröfur til nemenda sem hyggjast bjóða sig fram:

User uploaded image
open_in_new zoom_out_map Show in original size

Smelltu á myndina til að lesa í betri upplausn

Símareglur í MS Símareglur í MS

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendur eru minntir á að í skólanum gilda siðareglur um notkun snjalltækja. Þessar reglur eru settar til að bæta námsumhverfi nemenda, draga úr truflunum í kennslustundum og auka vellíðan og námsárangur.


Nemendur mega hafa síma meðferðis í skólanum en tækin þurfa að vera hljóðlaus ofan í vasa eða tösku í kennslustundum. Kennari er verkstjóri í kennslustundum og getur heimilað notkun síma ef svo ber undir.


Ef nemendur taka upp símann án leyfis hafa kennarar fyrirmæli um láta nemendur setja símann í símabox, sem er að finna í hverri kennslustofu, þar til kennslustundinni er lokið. Slík tilfelli eru skráð og send stjórnendum. Gerist það ítrekað að nemandi þurfi að setja símann í boxið eða ef nemandi neitar að setja símann í boxið telst það agabrot og hafa kennarar fyrirmæli um að vísa nemendum til stjórnenda. Ítrekuð brot leiða til íþyngjandi aðgerða af hálfu skólans, sjá nánar í skólareglum.


Foreldrar eru hvattir til að taka umræðu um símanotkun við sín börn.

Jöfnunarstyrkur námsmanna Jöfnunarstyrkur námsmanna

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar á vorönn - sjá nánar hér fyrir neðan:

Jöfnunarstyrkur
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Þann 18. mars verður opið hús í MS þar sem við kynnum skólann okkar fyrir 10. bekkingum. Við óskum eftir liðsinni nemenda við að kynna skólann og munum senda út skráningareyðublað þegar nær dregur.

Gangi ykkur vel á lokasprettinum 🥰 Gangi ykkur vel á lokasprettinum 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter