Fréttamolar úr MS
16.12.2025
Dagsetningar framundan
Miðvikudagur 17. des.: Jólapeysudagur 🎅
Fimmtudagur 18. des.: Matsdagur - sjá dagskrá á msund.is
Föstudagur 19. des.: Matsdagur - sjá dagskrá á msund.is
Föstudagur 19. des.: Brautskráning haustannar kl. 15:00 í MS 🎓
20. des.-4. jan.: Jólafrí 🎄
Mánudagur 5. janúar: Fyrsti kennsludagur á nýju ári og Gettu betur
Þriðjudagur 6. janúar: Miðannarmat vetrarannar birtist í Innu
15. janúar: Baulan - söngvakeppni SMS 🎤
Gettu betur lið MS!
Gettu betur lið skólans í ár skipa þau Oliwia Eva, Hinrik Hugi og Hekla Kristín.
MS mætir VMA í fyrstu umferð Gettu betur á fyrsta skóladegi nýs árs, 5. janúar kl. 18:50. Keppnin fer fram í útvarpshúsinu Efstaleiti og eru nemendur hvattir til að koma og hvetja okkar fólk. Keppnin er einnig send út í beinni útsendingu í útvarpinu.
Áfram MS!
Hinrik Hugi, Oliwia Eva og Hekla Kristín.
📸 Þorsteinn Magnússon, þjálfari liðsins.
Jólapeysudagur miðvikudaginn 17. desember!
Síðasti kennsludagur ársins er miðvikudagurinn 17. desember. Þann dag verður jólapeysudagur í MS og við hvetjum öll til að koma í einhverju jólalegu þann dag.
Miðannarmat vetrarannar
Í fyrstu kennsluvikunni eftir áramót birtist miðannarmat vetrarannar í Innu. Miðannarmat gefur vísbendingar um gengi nemenda í áföngum. Sérstök einkunnagjöf er fyrir stöðumatið þar sem gefið er G, V eða Ó og horft til verkefna, prófa, ástundunar o.fl. á fyrri hluta annarinnar:
- G Gott (frammistaða á bilinu 8 - 10) merkir að með sama áframhaldi mun nemandi ná góðum árangri í áfanganum.
- V Viðunandi (frammistaða á bilinu 5 - 7) merkir að nemandi stendur sig þokkalega og góðar líkur á að með sama áframhaldi muni hann standast lágmarkskröfur eða ná þokkalegum árangri í áfanganum.
- Ó Ófullnægjandi (frammistaða á bilinu 1 - 4) merkir að nemandi stendur sig illa og mun með sama áframhaldi að öllum líkindum falla í áfanganum.
Eftir miðannarmat eru tækifæri til að bæta stöðuna og því mikilvægt að nemendur taki því alvarlega.
Baulan - Söngvakeppni SMS
Baulan - söngvakeppni SMS fer fram þann 15. janúar næstkomandi. Söngfuglar geta því nýtt jólafríið til að æfa raddböndin! Sigurvegari Baulunnar keppir fyrir hönd skólans í Söngvakeppni framhaldsskólanna.
Fundur um útvarpsviku SMS
Í síðustu viku funduðu stjórnendur skólans með þeim nemendum sem tóku þátt í útvarpsviku SMS í 85-vikunni. Í kjölfar útvarpsins hafa komið nokkrar tilkynningar til stjórnenda vegna þess að gert var lítið úr samnemendum, slúðrað um ýmis málefni og fordómafull og klámfengin orðræða ríkti.
Á fundinum var rætt um þá ábyrgð sem fylgir því að vera með þátt í útvarpi og áhrif ærumeiðinga eða niðrandi athugasemda, hatursorðræðu og fleira. Tvær samfélagslöggur voru með á fundinum til að taka þátt í samtalinu við nemendur. Rætt var um framtíðarsýn og hvernig mætti gera betra útvarp í framtíðinni.