Smore logo
remove_red_eye 471
page background

Upplýsingar af ýmsum toga

Upplýsingar tengdar lífi, námi og kennslu í skólalokun

Upplýsingar afýmsum togaUpplýsingar tengdar lífi, námi og kennslu í skólalokun
zoom_out_map

Upplýsingaflæði í skólalokun

Meðan á skólalokun varir er mikilvægt að það sé virkt upplýsingaflæði til ykkar allra. Hluti af því eru stutt fréttabréf sem eru send út reglulega. Í þeim er að finna alls kyns mikilvægar upplýsingar og biðjum við ykkur því að lesa allt sem í þeim er.

Vinnustofur

Meðan á skólalokun varir falla vinnustofur niður. Nemendum er bent á að hafa samband við kennara sína ef þeir þurfa aðstoð við námið.
zoom_out_map

Snara

Á meðan á samkomubanninu fá nemendur gjaldfrjálsan aðgang að vefnum Snöru. Snara er verkfæri fyrir tugi orðabóka og uppflettirita. Nemendur VA hafa fengið sendan gestalykil í tölvupósti og geta með honum fengið aðganginn í gegnum hvaða tæki sem er.

zoom_out_map

Skilaboð frá Salóme íþróttakennara - hreyfing

Áfangar í hreyfingu (HREY áfangar) eru ekki kenndir gegnum Bláa hnöttinn.


Nemendur eiga þó að skila einum 40 - 50 mínútna hreyfingartíma á viku.


Salóme íþróttakennari hvetur nemendur til að hreyfa sig meira en það, skella sér út að hreyfa sig því það er svo mikilvægt að standa upp og fá sér ferskt loft og koma endurnærður aftur inn í ,,skólastofuna".


Möguleikar til að skila hreyfingatímum á Kennsluvefinn til Salóme svo þeir komi inn í námsmat áfanganna:

  • Hægt er að nýta heilsuapp og skila skjáskoti af hreyfingu sem appið sýnir
  • Hægt er að fara í ræktina og biðja starfsmann að kvitta fyrir mætingu - nóg er að starfsmaður skrifi nafn sitt og dagsetningu á blað og þið skilið síðan mynd af því.


Hafið í huga að gaman getur verið að hreyfa sig saman! Um að gera að finna sér ,,hreyfingarfélaga".


Salóme hefur breytt námsmati í hreyfingu í ljósi þeirra aðstæðna sem við stöndum nú frammi fyrir. Á meðan skólinn er lokaður verður virkni aðal námsmatsþátturinn - þ.e. að nemendur skili inn staðfestingu á hreyfingu í hverri viku.


Sendið Salóme línu ef eitthvað er óljóst - salome@va.is

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter