Smore logo
remove_red_eye 144
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

8. tbl. 4. árg. - október 2023

FréttabréfGrenivíkurskóla8. tbl. 4. árg. - október 2023
zoom_out_map

Kæra skólasamfélag

Skólastarfið er komið í fullan gang og nemendur önnum kafnir í fjölbreyttum verkefnum í hinum ýmsu námsgreinum. Þá eru reglulega á dagskrá ýmsar ferðir og viðburðir sem brjóta upp hefðbundið skólastarf, líkt og komið er inn á hér að neðan.


Ánægjulegt er að segja frá því að nýr matráður hefur hafið störf í Grenivíkurskóla í afleysingum. Sá heitir Óli Rúnar Ólafsson og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til starfa!


Í október er svo heilmargt á döfinni. Nemendur í 7.-10. bekk fara á grunnskólamót á Laugum, 7. og 8. bekkur fer í skólabúðir á Reykjum í Hrútafirði, og um miðjan mánuð ætlum við svo að hafa þemaviku í skólanum þar sem áherslan verður á lestur og fjölbreytta vinnu í tengslum við bók eftir vel valinn höfund.


Að lokum er vert að minnast á að nú fer skammdegið að hellast yfir með dimmum morgnum og því um að gera að foreldrar og forráðamenn skoði fatnað og skólatöskur tímanlega með tilliti til endurskinsmerkja - það eykur öryggi barnanna mikið ef þau sjást vel á leið sinni í skólann.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

zoom_out_map

Skólalóðin - staðan

Fyrsta áfanga í framkvæmdum við skólalóðina er nokkurn veginn lokið, og einungis eftir lokafrágangur, tiltekt, og malbikun á stígum og fleiru. Stefnt er að því að taka svæðið í notkun í næstu viku og má með sanni segja að það sé gleðiefni! Nemendur eiga hrós skilið fyrir að hafa verið afar þolinmóðir og staðist vel þá freistingu að laumast á svæðið á meðan framkvæmdum stendur.


Við erum afar ánægð með niðurstöðuna og hlökkum til að nýta þetta svæði á næstu árum.

zoom_out_map

List fyrir alla - Sæskrímslasmiðja

Í mánuðinum sem leið fengum við heimsókn frá þeim Eyrúnu, sirkuslistakonu og Dagrúnu, þjóðfræðingi, en þau buðu upp á svokalla Sæskrímslasmiðju fyrir nemendur í 3.-7. bekk. Verkefnið er hluti af List fyrir alla, sem gengur út á að bjóða nemendum allra grunnskóla landsins upp á fjölbreytta listviðburði.


Sæskrímslasmiðjan er hluti af sköpunarferli fyrir stórt götuleikhúsverk sem mun ferðast um landið næsta sumar - m.a. á Norðurlandi, en samtöl við krakkana og útkoman úr smiðjunni munu hafa bein áhrif á útlit og eiginleika skrímslanna sem munu birtast í verkinu.


Við þökkum þeim Eyrúnu og Dagrúnu kærlega fyrir góða heimsókn og hlökkum til að sjá afraksturinn.

open_in_new zoom_out_map

Heilsueflandi skóli

Þann 11. september tóku nemendur skólans þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Að vanda mátti velja um að fara 2,5 km, 5 km eða 10 km, og stóðu nemendur sig prýðilega í hlaupinu. Þennan sama dag var svo hinu árlega átaki Göngum í skólann hrundið af stað. Þá eru nemendur og starfsfólk hvött til þess að nýta virkan ferðamáta á leið í og úr skóla, og er vonandi að átak sem þetta hvetji sem flesta til að tileinka sér virkan ferðamáta allt árið um kring!


Í sameiginlegum hreyfistundum í upphafi september tóku nemendur stjórnina og stýrðu hinum ýmsu leikjum úti í blíðskaparveðrinu sem lék við okkur þá.


Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "Bjartsýni október". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

zoom_out_map

Grænfáninn

Í næstu fréttabréfum ætlum við að vekja athygli á fræðslupökkum sem Landvernd gefur út og nálgast má á vefsíðunni Menntun til sjálfbærni. Í þessum mánuði er sjónum beint að birkinu, en áður en land byggðist var stór hluti landsins vaxinn birkiskógi. Í dag þekja slíkir skógar einungis 1,5% landsins, en meginástæða þess er ósjálfbær landnýting í gegnum aldirnar.


Frekari upplýsingar og hugmyndir að ýmsum verkefnum má finna á hér.

Myndir úr skólastarfinu - september

  • 5. og 6. bekkur á siglingu með Húna II - 4. september
  • Valgreinar - haust 2023
  • Ólympíuhlaup ÍSÍ
  • Ýmsar myndir - september 2023

Á döfinni í október

  • 4. október: Samskóladagur hjá 8.-10. bekk í Stjórutjarnaskóla.
  • 6. október: Grunnskólamót á Laugum fyrir 7.-10. bekk.
  • 9.-11. október: 7. og 8. bekkur í skólabúðum UMFÍ á Reykjum.
  • 16.-20. október: Þemavika - lestrarátak.
  • 18. október: Deiglan - skapandi smiðjur í Hrafnagilsskóla fyrir 8.-10. bekk.
  • 20. október: Tónleikar TE í Græna salnum.
  • 20 október: Síðasti danstími og danssýning kl. 13:00.
zoom_out_map

Grenivíkurskóli

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Email: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Website: http://www.grenivikurskoli.is
Location: Grenivík
Phone: 414-5413
Facebook: https://www.facebook.com/search/top?q=greniv%C3%ADkursk%C3%B3li

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter