Fréttabréf Grenivíkurskóla
9. tbl. 7. árg. - nóvember 2026
Kæra skólasamfélag
Þegar þessi orð eru skrifuð og litið er út um gluggann minnir haustið hressilega á sig með grenjandi rigningu, roki og rökkri. En handan veggjarins er allt annað upp á teningnum, glaðlegar barnaraddir berast inn á skrifstofuna frá göngum skólans, lífleg verkefni skreyta skólastofur og ganga og spenningur liggur í loftinu. Hin ægilega hrekkjavaka er framundan. ,,Í hvaða búning ætlar þú að vera?" spurði nemandi mig í gær og ég kom svolítið af fjöllum. Hafði ekki leitt hugann að því, en býst við að ég eigi enga undankomuleið. Auðvitað tek ég þátt, þó að þessi hátíð eigi ekki beinlínis upp á pallborðið hjá mér, þetta er ekki hátíð fyrir myrkfælna eða þá sem auðvelt er að bregða.
En ég tek þátt, því að þátttaka er lykilatriði í skólasamfélaginu. Það skiptir máli að taka þátt og leggja sitt lóð á vogarskálarnar hvort sem það er í allskyns uppákomum innan og utan skóla, námi barnanna, virku samtali um líðan, framvindu í náminu og hegðun í skólanum. Fullorðnir eru mikilvægar fyrirmyndir fyrir börn og unglinga og bera ábyrgð á að vera góðar fyrirmyndir. Það felur t.d. í sér að sýna virðingu í samskiptum, leita lausna þegar upp koma erfiðleikar, setja sig í spor annarra og hafa opinn huga.
Verum virkir þátttakendur í lífi barnanna í okkar skólasamfélagi, leggjum okkar af mörkum til skólasamfélagsins og þar með samfélagsins í heild. Byggjum upp jákvætt og lausnamiðað samstarf og munum að hvert og eitt okkar skiptir máli sem góðar fyrirmyndir.
Góð kveðja úr skólanum,
Aníta Jónsdóttir,
skólastjóri Grenivíkurskóla
Grenivíkurskóli 45 ára
Í tilefni dagsins fengum við góðan gest í heimsókn, Björn Ingólfsson, sem starfaði sem skólastjóri skólans í 36 ár. Hann rifjaði upp sögu skólans og sagði frá skemmtilegum minningum sínum um skólahaldið á árum áður. Einnig skoðuðum við gamlar myndir og fengum góða leiðsögn um fólk og viðburði á myndunum.
Skuggaleg ferð í Skuggabjargarskóg
Það var vaskur hópur hjólreiðafólks sem lagði af stað í leiðangur í Skuggabjargarskóg einn fagran dag í október. Um var að ræða nemendur í útivistarvali, ásamt Ingu Rakel kennara sínum. Ferðin gekk ágætlega til að byrja með, veður var gott og allir virkilega vel útbúnir í ferðina. En þegar á leið, fór gamanið heldur að kárna. Öllum að óvörum reyndist hluti leiðarinnar eitt drullusvað sem hafði þau áhrif að sum hjólin hættu að virka og við tók verulegt basl. Ferðin lengdist úr hófi fram, kallað var eftir aðstoð og dugði ekkert minna en björgunarsveitarbíllinn til verksins. Allir komust þó heilir á höldnu heim eftir sannkallaða ævintýraferð sem sennilega mun seint gleymast.
Ópera og útikennsla
Yngsta stig fékk rausnarlegt boð frá Óperunni að koma í Hof og kynnast starfi óperusöngvara og hlýða á þá syngja vel valin óperulög úr barnaóperum. Að sjálfsögðu þáðum við boðið. Það voru áhugasamir nemendur og kennarar sem mættu í Hof og hlýddu á fallegan söng. Að því loknu var ferðin nýtt til útikennslu í Kjarnaskógi. Frábær dagur í alla staði og gott ef það kviknaði ekki áhugi hjá sumum um að gerast óperusöngvarar.
Rithöfundur í heimsókn á yngsta stigi
Myndir úr skólastarfinu
Á döfinni í nóvember
- 8. nóvember - Baráttudagur gegn einelti
- 10. nóvember - Starfsdagur
- 11. nóvember - Viðtalsdagur
- 16. nóvember - Dagur íslenskrar tungu
- 18. nóvember - Valgreinar - 2. lota
- 20. nóvember - Dagur mannréttinda barna
- 30. nóvember - Hurðarskreytingardagur
Matseðill
Útgefandi: Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is
Sími: 414-5413
Facebook: Grenivíkurskóli