Smore logo
remove_red_eye 188
page background

Fréttabréf Flóaskóla

ágúst 2025

FréttabréfFlóaskólaágúst 2025

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Vonandi hafið þið átt yndislegt sumar, veðurblíðan hefur sannarlega verið með okkur í liði þetta sumarið. Starfsmenn skólans eru allir mættir til vinnu og undirbúningur skólastarfs gengur vel. Við erum full tilhlökkunar að hitta nemendur og foreldra í næstu viku.

bestu kveðjur úr Flóaskóla

Þórunn Jónasdóttir skólastjóri

Skólasetning og skólabyrjun

Skólasetning Flóaskóla verður mánudaginn 25. ágúst næstkomandi í Þjórsárveri kl 10:00, gert er ráð fyrir að allir nemendur mæti með sínum forráðamönnum.

Að loknu stuttu ávarpi skólastjóra fylgja nemendur umsjónarkennurum í heimastofu. Kennarar kynna skipulag skólastarfs komandi vetrar, fyrirkomulag náms og aðra mikilvæga þætti í skólastarfinu.

Skólahald og skólaakstur hefst síðan samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 26. ágúst.

Fjölskyldudagur og Flóamót föstudaginn 5. september - möguleiki að mæta á hestum í skólann

Föstudaginn 5. september ætlum við að vera með fjölskyldudag í skólanum og á sama tíma verðum við með hið árlega Flóamót í samstarfi við Ungmennafélagið Þjótanda.


Allir sem vilja og geta, nemendur, foreldrar og starfsmenn, mega koma á hesti í skólann. Girðing er í Villingaholti fyrir hestana. Aðrir nemendur koma með skólabílum sem koma i skólann uppúr kl 9:00 þennan dag. Fyrir þá sem verða á hestum er gott að vita að stefnt er að því að safnast saman í Lyngholti og koma í hópreið síðasta spölinn. Gert er ráð fyrir að ríða af stað þaðan kl 8:30. Þeir sem vilja vera með í þeim hópi koma sér sjálfir, með sína hesta, þangað fyrir þann tíma. En svo má auðvitað líka ríða beint að heiman upp í skóla ef það hentar betur.


Fjölskyldur nemenda eru velkomnar í heimsókn til okkar hvenær sem er yfir daginn til að taka þátt í deginum með okkur. Klukkan 9:30 hefst dagskrá og áætlað er að henni ljúki um kl 12:30. Eftir það geta þeir sem eru á hestum farið að tygja sig af stað heim og skólabílar fara á sama tíma.


Athugið að á upphaflegu skóladagatali var fjölskyldudagurinn auglýstur á miðvikudegi 3.9. en því þurfti að breyta vegna annars skipulags. Nánari upplýsingar um skipulag dagsins koma í september fréttabréfinu 1.9.

Framkvæmdir og íþróttaaðstaða

Í sumar var unnið að endurnýjun á salernum í Þjórsárveri. Á haustmánuðum verður farið í stækkun á salnum í Þingborg með því að taka niður sviðið og gera um leið breytingar innanhúss til að bæta aðgengi fatlaðra að húsinu. Meðan á þessum framkvæmdum stendur verður aðstaða fyrir innanhússíþróttir sett upp í Félagslundi.

Starfsfólk Flóaskóla skólaárið 2025-2026

Sigríður Oddný Stefánsdóttir sem kennt hefur við Flóaskóla frá haustinu 2007 lét af störfum í vor og ætlar nú að fara að njóta efri áranna. Oddný starfaði lengst af sem myndmenntakennari en sinnti auk þess annarri kennsl og ýmsum verkefnum. Ber þar helst að nefna öflugt framlag hennar til lífsleiknikennslu og innleiðingar á uppeldisstefnu skólans Uppeldi til ábyrgðar. Ragnheiður aðstoðarmatráður og skólabílstjóri fór til annarra starfa. Við þökkum þeim báðum kærlega fyrir gott og gefandi samstarf og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Þau Hjálmar og Kristín Lilja kennarar eru í fæðingarorlofi.

Þrír nýir starfsmenn hafa bæst í hópinn. Það eru þær Anna Linda Gunnarsdóttir aðstoðarmatráður, Eva Björg Sigurðardóttir íslenskukennari og Hulda Dís Þrastardóttir umsjónarkennari. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar til starfa við skólann.


Umsjónarkennarar á komandi skólaári eru:

1.-4. bekkur, Ólöf Kristín, Hafdís Gígja, Íris og Snædís Mjöll

5.-7. bekkur, Unnur, Hulda Dís og Iðunn Ýr

8. bekkur Erla Vigdís

9. bekkur Elmar

10. bekkur Pálína


Fullskipað er í allar stöður við skólann.

Leikir málaðir á skólalóðina og útbúin snjóþotubrekka

Í vor var skólaþing nemenda í 1.-5. bekk og þar var m.a. rætt um hvernig leiki nemendur vildu sjá á skólalóðinni. Búið er að mála á lóðina fjóra leiki sem nemendur völdu.

Allnokkuð hafði fallið til af mold við framkvæmdir á lóðinni í vor og sumar. Búið er að jafna hana út og 10. bekkur ásamt forráðamönnum tók að sér að þökuleggja svæðið og úr varð ekta snjóþotubrekka.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Frístund í Flóaskóla

Líkt og undanfarin ár er lengd viðvera eftir skóla – frístund - í boði fyrir nemendur í 1. - 4. bekk. Mánudaga til fimmtudaga er opið frá 14:00-16:30 og föstudaga til 16:00.

Starfsmenn í frístund á komandi skólaári eru Kolbrún Júlíusdóttir, Freyja Kristín Guðjónsdóttir og Kolbrún Arnarsdóttir.

pdf
insert_drive_file
reglur-um-fristundaheimili-floaskola.pdf
Download
454.7 KB
pdf
insert_drive_file
gjaldskra-fristundaheimili-floaskola-januar-2025.pdf
Download
137.9 KB
pdf
insert_drive_file
skóladagatal 2025-2026.pdf
Download
377.3 KB
Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter