Smore logo
remove_red_eye 188
page background

Fréttabréf Engidalsskóla okt. 2026

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

FréttabréfEngidalsskóla okt. 2026Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
User uploaded image
zoom_out_map

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Í þessu mánaðarlega fréttabréfi skólans birtum við allt það sem miklu máli skiptir að fylgjast með en meira léttmeti og styttri fréttir eru í vikupóstum umsjónarkennara, facebook og Instagram. Það má svo ekki gleyma að minnast á heimasíðu skólans þar sem allar upplýsingar um skólann eiga að vera nokkuð aðgengilegar.

Ýmislegt hefur gerst í september og það sem af er október. Við hlupum Ólympíuhlaup ÍSÍ 18. september og var met slegið! Nemendur hlupu samtals 1353 km sem jafngildir rúmum 8 kílómetrum hjá hverjum nemanda. Við erum virkilega stolt af þeim!


Í lok september tóku nemendur í 2.-7. bekk Lesfimipróf og voru allir árgangar á eða yfir landsmeðaltali nema einn, sjá nánar hér fyrir neðan. Við þreytumst seint á að minna á mikilvægi lesturs og erum við þakklát fyrir það góða samstarf sem við eigum við heimilin um þjálfunina. Við erum í þessu saman og trúum að samstarf sé lykilinn að árangrinum. Við skiljum að stundum er erfitt að koma þessu fyrir á annasömum dögum en minnum á að þetta er eina heimanámið í Engidalsskóla. Vonum við að allir geti fundið stund fimm sinnum í viku til þess að sinna þessu.


Hér fyrir neðan er frétt og slóð á nýjan vef sem heldur utan um allar kennsluáætlanir skólans. Við erum afskaplega stolt af þessu og vonum að þetta veiti foreldrum enn meiri innsýn í það sem nemendur eru að læra. Það væri gaman að heyra hvað ykkur finnst.


Við erum stolt af því hversu vel við höfum unnið með niðurstöður úr mælingum og mati. Þessar niðurstöður og umbótaáætlanir eru að finna í starfsáætlunum hvers skólaárs og nú höfum við einnig bætt þeim sérstaklega inn á heimasíðuna undir Skólinn -> Mat á skólastarfi.


Í nokkur ár höfum við verið með reglulegt innlit í kennslustundir þar sem kennsla kennara er tekin út og þeir fá endurgjöf á hana. Síðasta ár skilgreindum við saman hvað gæða kennslustund væri og erum við að vinna að innleiðingu í allar kennslustundir. Í framhaldi breyttum við aðeins matsrammanum sem við notum í innlit og nýtum nú Kennsla sem leiðir til náms (e. Skillful Teaching). Þessir matsrammar eru hluti af BravoLesson sem við höfum nýtt síðustu ár og er kynnt vel í nýútkominn bók Bravo leiðin, Markviss skólaþróun.


Líðanfundir eru að verða að hefð hjá okkur í skólanum en þar hittast foreldrar og ræða um líðan barna sinna og hvernig foreldrar sem heild geta tekið utan um hópinn þannig að allir upplifi sig tilheyra honum og líði þar vel. Í framhaldi verður tækifæri til að gera farsældarsáttmála meðal foreldra.


Við erum búin að tímasetja Líðanfundina, sjá hér fyrir neðan. Við byrjum í 10-15 mín á sal þar sem skólastjóri verður með stutt erindi. Síðan er farið í bekkjarstofur með umsjónarkennurum og einum stjórnanda. Umsjónarkennarar eða stjórnandi munu stýra umræðunni.


  • Miðstigið (5. - 7. bekkur): Þriðjudagurinn 13. október kl. 17:30.
  • Yngsta stigið (1. - 4. bekkur): fimmtudagurinn 15. október
    • 1. og 2. bekkur kl. 17:00
    • 3. og 4. bekkur kl. 18:00.


Engidalsskóli hefur verið símalaus skóli töluvert lengi og hafa nemendur virt þær reglur mjög vel. Nú hefur verið sett reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskól og á frístundaheimilum sem okkur ber öllum að fara eftir.


Við vekjum athygli foreldra/forsjáraðila á glærum, sem fengnar eru frá Heimili og skóla, um miðlanotkun og er að finna hér neðar í fréttabréfinu. Þær eru bæði fróðlegar og geta verið leiðbeinandi, hvetjum ykkur til að skoða þær.


Undanfarnar vikur hafa nemendur í Engidalsskóla fengið fræðslu um stafræna velferð frá Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð. Markmið fræðslunnar er að efla vitund nemenda um áhrif skjánotkunar og stafræns umhverfis á daglegt líf, samskipti og vellíðan, auk þess að stuðla að heilbrigðum stafrænum venjum. Hér fyrir neðan eru skjöl sem Anna Laufey Stefánsdóttir tók saman fyrir foreldra.


Með bestu kveðju,

Skólastjórnendur Engidalsskóla.

pdf
insert_drive_file
Samantekt fyrir foreldra - yngsta stig.pdf
Download
316.0 KB
pdf
insert_drive_file
Samantekt fyrir foreldra - miðstig.pdf
Download
717.4 KB
pdf
insert_drive_file
Heimilisreglur.pdf
Download
633.9 KB

Jákvæð miðlanotkun Jákvæð miðlanotkun

pdf
insert_drive_file
jákvæð miðlanotkun-bæklingur (3).pdf
Download
1.8 MB
User uploaded image
zoom_out_map

Niðurstöður úr lesfimiprófi

Í september tóku nemendur í 2.–7. bekk fyrsta lesfimipróf skólaársins.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd erum við yfir landsmeðaltali í fjórum árgöngum, aðeins undir í einum árgangi og á meðaltalinu í einum árgangi.

Niðurstöður hvers nemanda fyrir sig eiga að vera aðgengilegar á ísland.is og eru komnar í námsmöppu nemenda í Mentor. Við hvetjum foreldra/forsjáraðila til að skoða niðurstöðurnar vel og vera í sambandi við okkur ef einhverjar spurningar vakna.

Niðurstöður úr hraðstefnumót við foreldra

Nú hefur verið unnið úr niðurstöðum hraðstefnumótsins sem var í byrjun september. Það sem foreldrar vilja helst leggja áherslu á eru þau markmið sem hér birtast.

  • Að byggja upp seiglu hjá nemendum
  • Að efla félagsfærni og stuðla að góðri vináttu
  • Að auka námstækni og læsi


Hér fyrir neðan er svo búið að setja þetta betur upp þar sem hlutverk hvers og eins eru skilgreind. Við höfum svo áhuga á að eiga aftur samtal við foreldra þar sem við tækjum einn þátt fyrir einu og skilgreindum betur, en meira um það síðar.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
open_in_new zoom_out_map Show in original size

Eitt af umbótaverkefnum skólans á þessu skólaári er að efla samskipti við foreldra og veita enn betri upplýsingar um það sem fram fer í skólastarfinu. Markmið okkar er að auka gagnsæi og gera foreldrum auðveldara að fylgjast með námi og framförum barna sinna.

Nú eru allar kennsluáætlanir aðgengilegar á heimasíðu skólans undir hnappnum Nám og kennsla. Þar geta foreldrar og nemendur kynnt sér efni einstakra námsgreina og fengið góða yfirsýn yfir það sem unnið er að hverju sinni.

Í vetur höfum við einnig skipt skólaárinu upp í fjórar námslotur. Í kennsluáætlunum hverrar lotu má finna:

  • Hæfniviðmið – lýsa þeirri hæfni sem nemendur eiga að hafa tileinkað sér.
  • Námsmarkmið – sýna hvað nemendur eiga að læra og geta gert í lok lotunnar.
  • Lykilhugtök – mikilvæg hugtök sem unnið er með á tímabilinu.

Jafnframt verður námsmat birt með markvissari hætti yfir skólaárið. Fyrstu námslotunni lýkur 23. október næstkomandi, og í kjölfarið verða niðurstöður námsmats aðgengilegar í íþróttum og öllum bóklegum greinum.

Í list- og verkgreinum er kennslan skipulögð í hringekjur og því mun námsmat birtast jafnóðum og nemendur ljúka viðkomandi smiðjum.


Við hvetjum foreldra til að kynna sér kennsluáætlanirnar og fylgjast reglulega með námsmati barna sinna. Með auknu upplýsingaflæði og góðu samstarfi heimilis og skóla styðjum við sem best við nám og velferð nemenda.

Skólasókn grunnskólanemenda.

Í sumar sendi ráðuneytið út landsviðmið um skólasókn grunnskólanema. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu. Veturinn í vetur verður notaður til að skoða hvort sníða þurfi einhverja annmarka af þeim en þetta verður svo gefið út sem reglugerð. Það eru töluverðar breytingar í þessum landsviðmiðum en gefin verða fjarvistastig fyrir veikindi og heimiluð leyfi ólíkt því sem verið hefur. Við hvetjum foreldra til að kynna sér þetta vel en farið verður að vinna eftir þessu í skólanum frá og með 1. október 2026.


Samræmdir viðverukóðar

Mæting 0 fjarverustig

Seinkoma 0-5 mín 0 fjarverustig

Seinkoma 5-20 mín 1 fjarverustig

Fjarvera úr kennslustund (óheimil) 2 fjarverustig

Fjarvera heill dagur (óheimil) 10 fjarverustig (föst tala)

Heilir dagar

Fjarvera (heimiluð, veikindi) 1 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, persónulegrar ástæðna) 1 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, keppnis- eða sýningaferða) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, sjúkrakennsla, langtímaveikindi) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, skert stundaskrá) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, félagsstarf í skóla) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, farandvinna foreldris) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, trúarleg iðkun) 0 fjarverustig

Fjarvera (heimiluð, tímabundin brottvísun) 0 fjarverustig

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Fréttir úr Álfakoti

Kæru foreldrar og forsjáraðilar,

Haustið heldur áfram að vera líflegt og skemmtilegt hjá okkur í Álfakoti! Börnin eru komin vel inn í starfið og gaman er að sjá hvað þau taka þátt í verkefnum af miklum áhuga og gleði.

Við höldum áfram með Bókaorminn okkar í 1 og 2.bekk og er ormurinn heldur betur farinn að lengjast! 📚 Börnin hafa verið dugleg að lesa og hlusta á sögur og við höldum áfram að skapa notalegar stundir í kringum lestur, spjall og skapandi verkefni tengd bókunum. Við stefnum á að innleiða bókaorminn í 3-4.bekk í næstu viku.

Við stefnum á að hafa október föndurmánuð og verður mikið um hrekkjavökuföndur. Krakkarnir í öðrum bekk hafa tekið forskot á sæluna og eru núþegar byrjuð að föndra, setjum myndir með að neðan.

Við höfum einnig bætt heilsulæsi inn í starfið okkar og erum með Útileik vikunnar. Þá kynnum við fyrir börnunum fjölbreytta leiki sem hvetja til hreyfingar og útiveru. Það hefur verið gaman að sjá hvað börnin eru fljót að taka leikina upp og taka þátt með miklum krafti og gleði. 🍂🏃‍♀️

Við erum líka komin með förustafi í Álfakot og hafa þeir svo sannarlega slegið í gegn! Börnin hafa verið mjög áhugasöm um þá og virðast hafa gaman að þeim.

Það er því nóg um að vera hjá okkur og við erum mjög ánægð með hvað börnin eru dugleg að taka þátt. Við hlökkum til að halda áfram að eiga skemmtilegan vetur saman! 💛

Kær kveðja,

Arnheiður, Júlía og starfsfólk Álfakots

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Fréttir úr Dalnum

Kæru foreldrar og forsjáraðilar,

Nú er október genginn í garð og við erum með skemmtilega dagskrá framundan í Dalnum! 🍂🎃

Í október ætlum við að bjóða upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem eitthvað verður fyrir alla. Við byrjuðum á Varúlfi, og höldum svo áfram með ping pong keppni og Kahoot-spurningaleik. Við ætlum svo að enda mánuðinn á alvöru halloween-stemningu þar sem verður meðal annars halloween-kökukeppni og bíó. 👻🎃

Við reynum að hafa dagskránna fjölbreytta og gefa börnunum tækifæri til að koma með hugmyndir og hafa áhrif á það sem við gerum í Dalnum. Það verður því nóg um að vera og vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi!

Hér fyrir neðan má sjá dagskrá októbermánaðar eftir bekkjum. Athugið að dagskrá getur breyst án fyrirvara.

Við hlökkum til að eiga skemmtilegan og svolítið hrollvekjandi október með börnunum í Dalnum! 🎃😊

Kær kveðja,


Arnheiður, Júlía og starfsfólk Dalsins

Samvinna um læsi
Gagnlegar upplýsingar um læsi.

Lestrarþjálfun í skóla og heima Lestrarþjálfun í skóla og heima

User uploaded image
zoom_out_map

Það er samstarfsverkefni heimilis og skóla að tryggja börnum farsælt lestrarnám og góða lestrarfærni.

Lestur er undirstaða alls náms og því mikilvægt að þjálfun hans fari jafnt fram í skóla og heima. Heimaþjálfunin eykur líkur á árangri. Hér til hliðar eru tillögur að heimaþjálfun sem FLÍS félag læsisfræðinga á Íslandi tók saman

pdf
insert_drive_file
ForeldrabreÌ_f_Lesferill.pdf
Mikilvægar upplýsingar til foreldra/forsjáraðila um lesfimiprófin og nýjungar í túlkun og leiðbeiningum
Download
2.0 MB
Sáttarborð Engidalsskóla
zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar - Skýr mörk Engidalsskóla

Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is


Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Hollt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka Hollt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Bæklingur - Ráðleggingar um matarræði

Útivistarreglur barna Útivistarreglur barna

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Engidalsskóli Hafnarfirði
Engidalsskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter