remove_red_eye 847
page background

Bundið áfangaval og valáfangar

VOR 2022

Bundið áfangavalog valáfangarVOR 2022

MUNIÐ AÐ HUGA AÐ UNDANFÖRUM!

TAKIÐ FLEIRI 3. ÞREPS ÁFANGA

Nemendur sem ætla sér í háskólanám eru hvattir til að taka fleiri 3. þrepsáfanga en lágmark á brautinni segir til um.
TIL AÐ VELJA Í INNU SMELLTU HÉR
ALLIR ÁFANGAR Í BOÐI Á VORÖNN 2022

AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ (AFRE1AF05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL Á AFREKSÍÞRÓTTASVIÐI

Undanfari: Nauðsynlegt að vera skráður á afreksíþróttasvið

Afreksíþróttasviðsáfangi - afrekshugsun.

EFNAFRÆÐI - EFNAJAFNVÆGI (EFNA3EJ05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI

Undanfari: EFNA2AE05

ÍÍ þessum framhaldsáfanga í efnafræði verður byggt ofan á grunnatriði almennrar efnafræði. Helstu efnisatriði eru orka í efnahvörfum, virkjunarorka og hvarfhraði, efnajafnvægi, oxun-afoxun, hálfhvörf, oxunartölur, sýrur, basar og pH-gildi.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

ENSKA - FAGORÐAFORÐI OG FERÐAMÁL (ENSK3FO05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI

Undanfari: ENSK3HO05

Nemendur þjálfast í að tileinka sér aukinn orðaforða vísinda og fræða, verða læsir á flóknari texta en áður, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða.

ER KEPPNI EITTHVAÐ FYRIR ÞIG? (RAUN2UK03)

VALÁFANGI

Undanfari: NÁTV1IF05 og STÆR2GS05

Í áfanganum er hugað að nokkrum keppnum s.s. í stærðfræði, líffræði og forritunog nemendur fara í gegnum undirbúning fyrir slíkar keppnir. Nemendur hafa nokkuð val um hvaða keppnir þeir vilja undirbúa sig fyrir.

MUNDU AÐ HUGA AÐ ÞREPASKIPTINGU Á 1., 2. OG 3. ÞREP

FAB LAB OG NÝSKÖPUN (NÝSK1FA05)

VALAÁFANGI/BUNDIÐ ÁFANGAVAL

Undanfari: Enginn

Farið er almennt yfir búnað í Fab Lab smiðjunni og þá möguleika sem felast í notkun hennar. Farið er yfir notkun á Inkscape tvívíddar vektor hugbúnaði. Kennt hvernig teikna á upp hluti, breyta og flytja á mismunandi skráarsnið. Kennt hvernig á að breyta raster myndum í vektor myndir. Farið er yfir grunnatriði í notkun á teikniforritinu Inkschape, þrívíddarforritinum Google sketchup og Blender og hvernig er hægt að nýta sér það til ýmissa verkefna. Farið er yfir grunnatriði í notkun á laserskurðartæki, vinylskera og tölvustýrðum fræsara. Unnið er með sköpunarkraft nemenda og samvinnu.

FÉLAGSFRÆÐI - FÉLAGSFRÆÐI ÞRÓUNARLANDA (FÉLA3ÞF05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI

Undanfari: FÉLA2KS05

Fjallað verður um þróunarhugtakið, kenningar um þróun, stöðu og einkenni þróunarlanda. Fjallað verður um þróunarhjálp og þróunarsamvinnu. Skoðuð verða ýmis málefni er varða þróun og þróunarlönd, s.s. menntamál, heilbrigðismál, umhverfismál, jafnréttisbaráttu, mannréttindabaráttu og stöðu flóttamanna. Fjallað verður um hnattvæðingu og áhrif hennar. Þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun verða skoðuð og unnið með þau. Nemendur fá þjálfun í að vinna með fræðilegan texta um þróunarmál. Þeir kynna sér ítarlega eina kenningu um þróun. Nemendur kynna sér þátttöku Íslendinga í þróunarsamvinnu.

VALTÍMABIL 7.-19. OKT.

FJÁRMÁLALÆSI DAGLEGS LÍFS (FJÁR2DL03)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Markmið áfangans er að opna augu nemenda fyrir mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur, þekkja réttindi og skyldur neytenda og kunna skil á helstu atriðum á almennum fjármálamarkaði. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði verða til umfjöllunar auk þess sem nemendur verða þjálfaðir í gerð ferilskrár og starfsumsókna. Markmið áfangans er að gera nemendur sjálfbjarga í raunverulegum fjármálaaðstæðum daglegs lífs.

FRANSKAR BÍÓMYNDIR OG BÓKMENNTIR (FRAN2BB05)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Þessi áfangi býður upp á að kynnast frönskum bíómyndum og bókmenntum.

GEÐHEILSA OG GEÐRASKANIR (SÁLF3AF05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: SÁLF2IS05

Í áfanganum verður gefið yfirlit yfir helstu geðraskanir og einkenni þeirra. Farið verður í helstu kenningar um orsakir geðraskana. Rætt verður um ýmsa þætti sem hafa áhrif á geðraskanir, t.d. þátt erfða og taugaboðefna sem og áhættuþætti tengda umhverfi. Nemendur kynnast flokkunarkerfi geðraskana, DSM-V, og fá þjálfun í að nota kerfið til að leita sér upplýsinga um geðraskanir. Nemendur fá kynningu á þeim aðferðum sem helst eru notaðar við rannsóknir á geðröskunum. Fjallað verður um mismunandi meðferðarleiðir og nemendur fá æfingu í að meta meðferðarleiðir og kenningar á gagnrýninn hátt.

HVAÐ ER POINTIÐ EIGINLEGA MEÐ AÐ VERA Í SKÓLA? (NÁMS2TN03)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Nám á sér stað allstaðar og á öllum tímum en í skólakerfinu er nám bútað niður í mismunandi áfanga og rammaður inn í töflu. Er þá skólinn þá endilega besti staðurinn til að læra? Í áfanganum verður farið yfir ólíkar hugmyndir um nám með það að markmiði að veita nemendum svigrúm til að verða virkir þátttakendur í eigin námi. Áfanginn er kenndur út frá aðferðum samræðuheimspeki þar sem nemendur og kennarar nálgast efnið saman með forvitni og gagnrýna hugsun að leiðarljósi.

ÍÞRÓTTIR - HREYFING OG HEILSURÆKT (ÍÞRÓ1HH01)

ALMENNUR KJARNI/VALÁFANGI

Undanfari: 4 einingar í íþróttum

Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.

ÍÞRÓTTIR - SÉRHÆFING Í ÍÞRÓTTAGREIN (ÍÞRÓ1SÉ01)

ALMENNUR KJARNI/VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Áfangi ætlaður nemendum sem leggja stund á íþróttagreinar en eru ekki nemendur á afreksíþróttasviði.

KYNFRÆÐSLA (KYNH1HE05)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Í áfanganum verður farið yfir vítt svið kynfræðslu sem fer inn á svið sjálfsmyndar, samfélags, kynlífs og kynverundar. Nemendur fá öruggt rými til að rækta sjálfsþekkingu og fræðast um kynverundina og kynferðisleg samskipti.

MUNDU AÐ HUGA AÐ UNDANFÖRUM

Leiklist - spuni (LEIK1SP05)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Í leiklist er lögð áhersla á að nemendur kynnist aðferðum listgreinarinnar og geti nýtt tæki hennar til að dýpka skilning á sjálfum sér og samfélaginu sem við búum í. Nemendur fá tækifæri til að vinna saman að sínum eigin hugarefnum, setja sig í spor annarra og prófa sig áfram með mismunandi tjáningarform, hegðun og lausnir í öruggu umhverfi skólans. Leiklist reynir auk þess stöðugt á samvinnu, samskipti, sköpun, tungumál, tjáningu, gagnrýna hugsun og líkams‐ og raddbeitingu. Áherslan í áfanganum er á spuna í víðum skilningi þess orðs.


LÍFFRÆÐI - INNGANGUR (LÍFF2LE05)

KJARNI/VALÁFANGI

Undanfari: NÁTV1IF05

Farið verður í grunnatriði líf- og lífeðlisfræði. Flokkar líffræðinnar og grunnkenningar ásamt tengslum við aðrar fræðigreinar eru kynntar og aðferðum vísindanna við öflun þekkingar lýst. Flokkun lífheimsins og fjölbreytileiki lífvera skýrður með dæmum. Rifjaðir eru upp helstu flokkar lífrænna efna ásamt byggingu og starfsemi fruma. Byggingu og starfsemi helstu vefja dýra og plantna er lýst ásamt líffærum og líffærakerfum mannsins. Einstök líffærakerfi eru borin saman hjá mismunandi lífverum. Fjallað er um næringarnám hjá frumbjarga og ófrumbjarga lífverum. Með áherslu á spendýr er gerð grein fyrir meltingu, öndun, efnaflutning, úrgangslosun, ónæmissvörun, boðflutning, stjórnstöðvum í heila, hreyfingu, stjórn efnaskipta, skynjun, æxlun og fósturþroska. Því næst verður farið yfir skipulag erfðaefnisins, grundvallaratriði erfða, arfgengi eingena- og fjölgenaeiginleika ásamt dæmum og yfirliti um notkun erfðatæknilegra aðferða. Um leið og fjallað er um heilbrigða starfsemi lífvera er munur á starfsemi í hvíld og undir álagi kannaður ásamt dæmum um algeng frávik á starfseminni.

MANNERFÐAFRÆÐI (LÍFF3ME05)

VALÁFANGI

Undanfari: LÍFF2LE05

Í áfanganum verður farið yfir byggingu og starfsemi erfðaefnisins, Central Dogma og táknmál erfðanna. Grunnaðferðir erfðatækninnar verða kynntar. Skoðaðar verða helstu gerðir stökkbreytinga frá punktbreytingum til litningabreytinga. Eingena og fjölgena erfðir útskýrðar og ættartré teiknuð. Kynntar verða fylgni- og tengslagreiningaraðferðir við leit að meingenum. Þekktum meingenum með íslenskan uppruna og stökkbreytingar þeirra verður lýst. Yfirlit verður yfir rannsóknir á erfðaefni manna á Íslandi. Kynntir verða helstu gagnagrunnar með erfðaefnisupplýsingar fyrir manninn og aðrar lífverur. Samantekt er sett fram á mögulegri nýtingu nútíma erfðaefnisþekkingar. Kynnt verða siðferðileg viðmið mannerfðafræðinnar. Áfanginn byggir á fjölda fjölbreyttra verkefna sem unnin eru í leiðsagnarnámi, tímaverkefni (ýmis styttri verkefni), verklegar æfingar og umræðutímar. Lögð er áhersla á að nemendur vinni saman að öflun nýrra upplýsinga sem tengjast námsefni áfangans.

MENNINGARSAGA (SAGA3MH05)

Bundið áfangaval/valáfangi

Undanfari: SAGA2FR05

Í áfanganum verður áhersla lögð á uppruna vestrænnar menningar. Sjónum beint að fornum menningarsamfélögum við Miðjarðarhaf, Forn – Grikkjum, Rómverjum og Egyptum og framlagi þeirra til nútímamenningar. Auk þess verða skoðuð áhrif gyðingdóms og kristni á vestræn menningarsamfélög í fortíð og nútíð. Fjallað verður um miðaldir, borgarmenningu, endurreisnina og einveldistímann og sjónum beint að þjóðfélagsbreytingum sem endurspeglast í menningu og listum. Upplýsingin og rómantíkin verða könnuð á svipaðan hátt með tilliti til samfélagsbreytinga og hvernig sjá má merki þessara stefna í nútímamenningu.

MERGJUÐ MISTÖK EÐA MEISTARALEG HEPPNI? (SAGA2MM05)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn


Í áfanganum skoða nemendur áhugaverð atvik, uppgötvanir og uppfinningar sem urðu til fyrir mistök eða heppni en höfðu mikil áhrif á samfélagið. Nemendur rannsaka efnið með forvitni að leiðarljósi og fá tækifæri til að miðla þekkingunni á ýmsa vegu og æfa þá einnig ólíkar miðlunarleiðir, eins og t.d. gerð hlaðvarps (pod-cast), myndbanda og fleira.

MYNDLIST - FORMFRÆÐI OG FJARVÍDD

VALÁFANGI

Undanfari: SJÓN1LF05

Áfanginn miðar að því að nemandinn efli næmi sitt fyrir fjarvídd og myndbyggingu á tvívíðum fleti og dýpki skilning á grundvallaratriðum myndbyggingar, formfræði og hönnunar. Í áfanganum er skynjun á formum í umhverfinu efld og þrívíð tilfinning skerpt. Nemandinn gerir tilraunir með form, línur, fleti og áferð til að rannsaka ólíka myndbyggingu og læra undurstöðuatriði í fjarvíddarteikningu þar sem umhverfið er skoðað og útfært í fjarvídd. Áhersla lögð á að nemandinn prófi og kynnist mismunandi miðlum í vinnslu myndverka.

NÆRINGAFRÆÐI (NÆRI2GR05)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Nemendur kynnast áhrifum næringar og mataræðis á líðan og heilsu einstaklinga og þekki samspil næringar og hreyfingar. Kynntar eru ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um mataræði og næringarefni. Skoðað er hvað liggur til grundvallar þeim ráðleggingum og hvaða ávinning hægt er að ná með því að fylgja þeim. Í áfanganum er farið í orkuþörf og næringarefnaþörf líkamans og ráðlagða dagskammta. Einnig er fjallað er um hreyfingu, holdafar og meltingu. Farið er í mataræði og fjallað um máltíðaskipan, skammtastærðir, fjölbreytni, fæðuflokka og mikilvægi hvers fæðuflokks. Næring er skoðuð m.a. orkuefnin, vítamín, steinefni og önnur efni.

SÁLFRÆÐI - INNGANGUR (SÁLF2IS05)

KJARNI/VALÁFANGI

Undanfari: FÉLV1IF05

Áfanginn er byrjunaráfangi í sálfræði. Fræðigreinin sálfræði er kynnt fyrir nemendum, upphaf hennar og þróun. Helstu kenningar og fræðimenn sálfræðinnar eru skoðaðar. Rannsóknaraðferðir sem notaðar eru í sálfræði eru kynntar fyrir nemendum og þeir vinna verkefni þar sem þeir spreyta sig á vísindalegum vinnubrögðum sálfræðinnar. Grunnhugtök og sálfræðistefnur eru kynntar og sérstaklega er komið inn á námssálarfræðina og nemendur læra um mismunandi tegundir náms og minnisaðferðir. Sérstaklega er fjallað um samspil á milli hugsunar, hegðunar og tilfinninga. Sjálfsmynd og mannleg samskipti eru skoðuð og aðferðir sálfræðinnar skoðaðar.

SKYNDIHJÁLP (SKYN1SK01)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

12 klukkustunda námskeið í skyndihjálp, kennt þrjá eftirmiðdaga.

STJÓRNMÁLAFRÆÐI (FÉLA2SF05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI

Undanfari: FÉLV1IF05

Áfanginn kynnir stjórnmálafræði sem fræðigrein. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist þekkingu á eðli og umfangi stjórnmála ásamt helstu stjórnmálastefnum. Kynnt verða helstu hugtök stjórnamálafræðinnar, fjallað um íslensk stjórnmál og alþjóðastjórnmál.

STUÐNINGUR Í NÁMI (STUÐ1UC02)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Vilt þú fá stuðning í námi? Áfangi fyrir nemendur sem eru með annað móðurmál en íslensku, sem hafa búið erlendis eða vilja fá stuðning í tengslum við tungumálið. Í stuðningsáfanganum koma nemendur með sín eigin verkefni og fá aðstoð kennara eftir þörfum.

Þú getur fengið aðstoð við valið!
Hægt er að fá aðstoð við valið hjá umsjónarkennurum, áfangastjóra og náms- og starfsráðgjafa.

STÆRÐFRÆÐI - FÖLL, MARKGILDI OG DEILDUN (STÆR3DF05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI

Undanfari: STÆR2VH05

Meginefni áfangans eru föll, markgildi, deildareikningur og kynning á deildun. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Föll: Veldisföll, vísisföll, lograföll, andhverf föll og samskeytt föll. Markgildi og deildun: Markgildishugtakið. Skilgreining á afleiðu falls. Deildun veldisfalla, vísisfalla, lografalla og hornafalla. Reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla. Samfeldni og deildanleiki falla. Aðfellur. Hagnýting deildunar við könnun falla, s.s. að finna staðbundin hágildi og lággildi, einhallabil, beygjuskil og jöfnu snertils. Gröf falla. Noktun deildareiknings við hagnýt viðfangsefni.

TÖLVUNARFRÆÐI - HLUTBUNDIN HUGBÚNAÐARGERÐ (TÖLF3HH05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI

Undanfari: TÖLF2TF05

Í áfanganum fá nemendur æfingu í hlutbundinni forritun og einfaldri leikjaforritun í Python og Pygame. Farið er yfir mismunandi ferli við hugbúnaðargerð. Unnið verður jöfnum höndum með textabundin og myndræn notendaskil. Helstu efnisatriði: klasar og hlutir, erfðir, hugrænn klasi, viðmót, fylki, röðun, aðferðir, eiginleikar, smiðir private – public, nafnasvæði, klasasöfn, frávik, skrár, sjálfkvaðning, myndir, gagnaskipan (staflar, listar, tré...), gagnasnið o.fl.

VATNAVERÖLD (NÁTV2VA05)

VALÁFANGI

Undanfari: NÁTV1IF05

Áfanginn er valáfangi fyrir alla nemendur sem hafa áhuga á að kynnast vatni í öllum sínum jarðlegu myndum til hugmynda um vatn í geimnum. Við lifum í vatnaveröld sem breytist stöðugt. Þekking og skilningur á eðlis-, efna- og líffræðilegu mikilvægi vatns og mismunandi aðgengi að því, er nauðsynlegur til að stuðla að sjálfbærni við nýtingu vatns á jörðinni. Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbærni vatns, verða lögð til grundavallar

Nemendur taka þátt í öflun þekkingar um vatn, m.a. í efnaferlum, mótun búsvæða og í lífverum. Þeir móta viðfangsefni kennslustundanna sem byggja á fræðsluþáttum um vatnið, umræðu og samantekt ályktana um efnið. Námið er leiðsagnarnám með áherslu á jafningjafræðslu. Nemendur munu halda rafræna dagbók um framvindu námsins og gera eigið myndaband sem lokaverkefni þar sem þeirra sýn á stöðu vatnamála verður birt.

VETTVANGSNÁM OG NÝSKÖPUN (NÝSK1VN05)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Nýsköpun á sér stað á öllum sviðum mannlífsins og í þessum áfanga fá nemendur að kynnast ferli hugmynda undir leiðsögn kennara á ólíkum sviðum innan skólans og á vettvangi með einstaklingum sem vinna í umhverfi nýsköpunar á svæðinu. Áfanginn er brú á milli náms og atvinnulífs og er gott tækifæri fyrir nemendur sem vilja fá tækifæri til skoða umhverfi nýsköpunar, koma eigin hugmyndum í framkvæmd og/eða skapa eigin starfsvettvang í framtíðinni.

YNDISLESTUR (ÍSLE2YL05)

BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI

Undanfari: ÍSLE2MG05

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur lesi sér til ánægju og þroska. Nemendur kynnast úrvali þekktra íslenskra ritverka. Lögð er mikið áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og að þeir vinni eftir eigin áætlun sem þeir bera að mestu ábyrgð á.

ÞJÁLFUN, HEILSA OG VELLÍÐAN (ÍÞRÓ1ÞH05)

VALÁFANGI

Undanfari: Enginn

Nemendur kynnist og læri undirstöðuatriði er varðar skipulagningu á hreyfingu og öðlist þekkingu á gildi útivistar. Markmið áfangans er að hafa uppbyggjandi áhrif á líkamlega heilsu, andlega og félagslega líðan.

MUNDU AÐ HUGA AÐ ÞREPASKIPTINGU Á 1., 2. OG 3. ÞREP
zoom_out_map

Menntaskólinn á Ísafirði

Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 450 4400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa/

Loading indicator

close
Powered by