Smore logo
remove_red_eye 395
page background

Fréttabréf Síðuskóla

2. bréf - september - skólaárið 2025-2026

FréttabréfSíðuskóla2. bréf - september - skólaárið 2025-2026
User uploaded image
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

Skólastarfið er komið í fullan gang og fer vel af stað. Í þessum mánuði verða haustfundir fyrir foreldra og senda umsjónarkennarar ykkur póst um tímasetningu þeirra. Á miðvikudaginn verður gönguferð og eru nánari upplýsingar um hana hér neðar í póstinum. Gönguferðin er upphaf átaksins Göngum í skólann en á meðan því stendur eru nemendur og starfsmenn hvattir sérstaklega til að koma gangandi eða hjólandi í skólann. Þetta verkefni er liður í Grænfánaverkefni skólans en nú haust munum við fá Grænfánann afhentan í 10. skipti.

Núna í haust bættust nokkrir við í starfsmannahópinn og þið komið væntanlega til með að kynnast þeim smám saman sem koma að ykkar börnum. Þar sem ritari skólans snýr að öllum nemendum og foreldrum viljum við nefna það að nú er kominn ritari í hlutastarf sem mun vinna á móti Svövu í vetur. Við þekkjum það öll sem hringjum í skólann að heyra ,,Síðuskóli Svava" og nú munið þið líka heyra Síðuskóli Hófý, þá er það Hólmfríður Högnadóttir sem svarar.


Við göngum inn í þetta skólaár full af bjartsýni þar sem leiðarljós okkar er að vinna saman, ná árangri og gleðjast!


Með góðri kveðju!

Ólöf, Helga og Anna María

User uploaded image
zoom_out_map

Gönguferð miðvikudaginn 3. september - upphaf átaksins Göngum í skólann

Miðvikudaginn 3. september verður farið í gönguferð þar sem nemendur og starfsfólk ganga frá bílastæði neðan við Fálkafell og yfir í Kjarnaskóg. Farið verður með rútum upp að bílastæðinu og við verðum sótt á bílastæðið neðan við leiksvæðið þar sem "gamla" grillhúsið er.

Gönguleiðin er 5,3 kílómetrar og búast má við að það sé einhver drulla á leiðinni þar sem einhver væta er í kortunum. Veðurspáin er mild og góð en auðvitað er mikilvægt að klæða sig eftir veðri og vera vel skóaður. Einnig þarf að vera með nesti og síðast en ekki síst góða skapið. Þegar við komum til baka er matur í skólanum og skóladegi lýkur kl. 13. Þeir sem eru skráðir í Frístund fara þangað. Mæting í skólann er á hefðbundnum tím kl. 8.10.

Gönguferðin er upphaf verkefnisins Göngum í skólann en markmiðið þess er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

1. bekkur fer beint með rútu í Kjarnaskóg og fer í gönguferð þar.


Það er smá væta í kortunum en hægviðri. Ef veður verður vont frestum við ferðinni. Verði það niðurstaðan setjum við frétt á heimasíðuna snemma á miðvikudagsmorgun. Nemendur í 8.-10. bekk eru með leyfi þennan dag í samskólavali, en vilji einhverjir mæta er það að sjálfsögðu í lagi. Innanskólaval fellur niður.

Frá skólasetningu Síðuskóla 2025 Frá skólasetningu Síðuskóla 2025

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Reiðhjól og hjálmar

Nemandi sem kemur hjólandi í skólann gerir það á ábyrgð foreldra/forráðamanna sem meta færni barnsins og aðstæður á hjólaleiðinni. Skv. 44. grein umferðarlaga mega börn yngri en níu ára ekki hjóla á akbraut án leiðsagnar og eftirlits aðila sem hefur náð 15 ára aldri. Þar af leiðandi getur skólinn ekki mælt með að þeir nemendur komi á hjóli í skólann nema í fylgd fullorðinna.
Samkvæmt umferðarlögum er börnum yngri en 16 ára skylt að nota reiðhjólahjálm.

Ákvörðun er foreldra og á ábyrgð þeirra.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter