Fréttabréf VA
Mars 2020. 1. tölublað.
#vaskólinnokkar
Fordæmalausir tímar
Mars hefur heldur betur verið tíðindamikill. Fyrri hluta mánaðar var skólastarfið með hefðbundnum hætti og voru afar vel heppnaðir Kærleiksdagar sem enduðu með árshátíð NIVA. Einnig var miðannarmat birt og nemendur lýstu skoðunum sínum á skólastarfinu í gegnum áfangamat. Skólinn varð einnig fimmti framhaldsskóli landsins til að hjóta jafnlaunavottun.
Eins og flestir ættu að vita varð síðan alger umpólun um miðjan mánuðinn þegar samkomubann var sett á. Það þýddi að framhaldsskólar á landinu skelltu í lás og kennslan færðist alfarið í netheima. Starfsfólk og nemendur höfðu sinnt undirbúningi í vikunni á undan og þegar samkomubannið skall á voru allir tilbúnir í breytinguna sem hefur gengið frábærlega og eiga allir mikið hrós skilið. Þetta hefur einnig vakið mikla og verðskuldaða athygli á okkar frábæra skólastarfi. Meira um það hér fyrir neðan.
Vegna samkomubannsins hefur þurft að færa ýmislegt til hliðar eða í annað form. Forvarnarmálþingi var frestað til haustsins og leikstarfi Djúpsins og erlendu samstarfi sömuleiðis. Skólakynning fyrir foreldra var haldin í gegnum fjarfundarbúnað og heppnaðist vel.
Nú er komið páskafrí og því tilvalinn tími til að hlaða batteríin, ferðast innandyra og njóta samvista við fjölskylduna!
Kærleiksdagar
Hér fyrir neðan má sjá ýmislegt frá kærleiksdögum.
Snakkskotið
Asparbingó
Óvissuferð Kærleiksdaga
Meðal viðburða kærleiksdaga var afar vel heppnað Klinktorg
Árshátíð VA
Árshátíð VA, Stjörnubjört nótt, var haldin í Egilsbúð í lok kærleiksdaga. Mikið var um dýrðir, salurinn eins og stjörnuhiminn og er óhætt að segja að nemendaráðið hafi unnið frábært starf við undirbúning árshátíðarinnar.
Karen aðstoðarskólameistari og Petra Lind sálfræðikennari fóru á kostum sem veislustjórar og tónlistarmennirnir Auður og Bríet og héldu uppi fjörinu ásamt DJ Snorra Ástráðs.
Yfir borðhaldinu var söngkeppni VA haldin. Söngatriðin voru af ýmsum toga; Ísabella Danía flutti lagið Talking to the Moon eftir Bruno Mars, Snædís Erla og Maddý Ósk fluttu lag Haley Reinhart, Can´t Help Falling in Love, Aron Víðir og Sigurjón fluttu Valla Reynis og Birna Marín flutti lagið Still Loving You úr smiðju Scorpions. Bar Ísabella Danía sigur úr býtum.
Auður treður upp
Sigurvegari í söngkeppni
NIVA
Meðal atriða á árshátíðinni er atriði starfsfólks. Það má sjá hér fyrir neðan.
Annar fastur liður er árshátíðarmyndband nemenda.
Jafnlaunavottun
Verkmenntaskóli Austurlands hefur hlotið jafnlaunavottun og er þar með fimmti framhaldsskólinn á landinu að hljóta vottunina.
Undirbúningur og innleiðing á jafnlaunastaðlinum hefur staðið yfir síðan í haust. Vinnan við undirbúning og innleiðingu, sem og vottunarferlið, var leitt af Birgi Jónssyni, gæðastjóra skólans. Faggilti vottunaraðilinn iCert var ráðinn til að meta hvort skilyrði staðalsins væru uppfyllt og voru úttektir gerðar í desember 2019 og febrúar s.l. með þeim ánægjulega árangri að vottun var veitt um miðjan mánuð.
Verknámsblaðið 20/20
Fyrr í vetur stóðu fjórtán iðn- og starfsnámsskólar á Íslandi sameiginlega að útgáfu blaðsins 2020, þar sem gerð er grein fyrir starfsnámi frá ýmsum hliðum en í þessum fjórtán skólum eru hátt í sextíu námsbrautir. Í haus blaðsins segir eftirfarandi: Nafn blaðsins vísar í sameiginlegt markmið skólanna, skýrt og mælanlegt markmið, að 20% grunnskólanemenda skrái sig í iðn- og verknám frá og með árinu 2020.
2020 var dreift til foreldra og forráðamanna allra nemenda í 8., 9. og 10. bekk á landinu, í samtals um 12.000 eintökum.
Í blaðinu var m.a. viðtal við þá Adam, Fannar, Guðjón, Stein og Þór sem eru nemar í vélstjórn og Hlyn sem hefur fléttað á skemmtilegan hátt saman nám í rafvirkjun og nám til stúdentsprófs.
Blaðið má nálgast hér fyrir neðan.
"Ég er með gæsahúð yfir hversu vel þetta hefur gengið og montin af starfsfólki og nemendum"
Blái hnötturinn
Kerfið sem varð fyrir valinu heitir Big Blue Button eða Blái hnötturinn. Nemendur skrá sig inn í kerfið úr tölvunni heima hjá sér og þá opnast fyrir þeim kennslustofan. Þar eru allir í mynd, einnig kennarinn, sem getur sýnt glærur og dæmi á snertiskjá. Nemendur geta síðan haft samskipti sín á milli og kennarinn talað við einstaka nemendur ef þarf, eða skipt þeim upp í hópa.
Markmiðið með þessu var að halda nemendum í takti, virkni og félagslegum samskiptum.
Síðan hafa liðið þrjár vikur og óhætt er að segja að nemendur og kennarar hafi farið á kostum á Bláa hnettinum. Hér fyrir neðan má sjá dæmi um útfærslur sem gripið hefur verið til:
Nemendur í íslensku í gegnum Bláa hnöttinn
Allir taka þátt í fjarkennslunni
Heimilisfræðin færð heim í eldhús
#kaffistofan
Eitt af verkefnunum í skólalokuninni er að halda uppi andanum meðal starfsfólks. Starfsmannahópurinn er gríðarlega samheldinn og til þess að halda því áfram hefur kaffistofan verið færð í netheima.
Starfsfólk hittist í kaffi tvisvar á dag, á morgnana og eftir hádegismat. Þar er allt milli himins og jarðar rætt og alltaf mikil og góð stemning.
Meðal þess sem hefur verið gert var að hafa sparifatadag eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.
Utanumhald með nemendum
Nemendur hafa einnig getað sótt viðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa og haft samband eftir þeim leiðum sem þeim þykir hentugastar.
Skólinn vekur verðskuldaða athygli
Viðtölin má nálgast í hlekkjunum hérna fyrir neðan:
VA-spjall
Vel heppnuð kynning fyrir forsjáraðila
Fyrir þá sem komust ekki á kynninguna má finna kynningu á skólanum í hlekk hér fyrir neðan. Ef það eru einhverjar frekari spurningar þá er hægt að skoða allt sem skólanum tengist á heimasíðunni, va.is. Þar eru einnig netföng starfsfólk og þá hægt að hafa samband í gegnum þau.
Leikfélagið Djúpið
Erasmus+ fréttir
Stefnt var að því að taka á móti 20 kennurum frá samstarfslöndum okkar 20.-24. apríl en því hefur nú verið frestað til haustsins.
Sama gildir um skiptinám nemenda sem hefur einnig verið frestað til haustsins.
Umsóknir um fleiri Erasmus verkefni hafa verið sendar inn auk þess að umsókn um áframhaldandi samstarfsverkefni er í burðarliðnum.
Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um erlent samstarf innan skólans.
Tæknihornið: ExplainEverything
Hægt er að nálgast það í vefútgáfu og sem smáforrit.
Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar!
#vaskólinnokkar
Á döfinni
Páskafrí: 4.-14. apríl






