Tæknótíðindi
6. mars 2026
Dagsetningar framundan
- 9. mars - Starfsdagur, skóli lokaður
- 10. mars - Ný spönn hefst, ný stundartafla
- 11. mars - Klúbbakvöld NST
- 12. mars - Vöfflukaffi
- 12. mars - Leikfélagið Mars frumsýnir Þriðjudagsþristinn
- 18. mars - Útskriftarsýning hársnyrtinema
- 21. mars - Skrúfudagurinn
Miðasala hafin á Þriðjudagsþristinn
Leikfélag Tækniskólans, Mars, undirbýr um þessar mundir sýninguna Þriðjudagsþristinn í leikstjórn Snæfríðar Sólar Gunnarsdóttur. Verkið er frumsamið af Snæfríði og nemendum leikfélagsins, sem þróuðu handritið í sameiningu með svokallaðri samsköpunaraðferð sem byggir á spuna.
Að sögn Snæfríðar er um farsakennt verk að ræða þar sem allt sem getur klikkað klikkar.
Leikfélagið hefur sett saman skemmtilega stiklu úr sýningunni sem sjá má hér að neðan.
Þriðjudagsþristurinn verður frumsýndur 12. mars og verður sýndur í hátíðarsal Tækniskólans við Háteigsveg (Sjómannaskólahúsinu).
Miðasala er hafin
12.mars: https://item.salescloud.is/...
13.mars: https://item.salescloud.is/...
15.mars: https://item.salescloud.is/...
Skólahjúkrunafræðingur
Við minnum á að hægt er að bóka tíma hjá Fjólu Helgadóttur, skólahjúkrunarfræðingi Tækniskólans, á innu eða líta við hjá henni í spjall. Einnig er nemendum velkomið að senda póst á fjola.helga@tskoli.is
Fjóla er við á eftirfarandi tímum:
Skólavörðuholt: Mánudagar 13:00-16:00
Háteigsvegur: Miðvikudagar 13:00-16:00
Hafnarfjörður: Fimmtudagar 8:30-12:00
Velkomin í vöfflukaffi
Fimmtudaginn 12. mars fögnum við nýrri spönn með vöfflukaffi. Þá mæta stjórnendur skólans með vöfflujárn í vinnuna og baka ofan í öll sem kunna að meta góðar vöfflur.
Vöfflurnar verða í boði í frímínútunum kl. 14:25 í matsalnum á Skólavörðuholti, á Háteigsvegi og í Hafnarfirði og á kaffistofum í Árleyni og Skeljanesi.
Öll velkomin í vöfflukaffi!
Sjúk ást
Árlega fræðslu- og forvarnarverkefnið Sjúkást er hafið. Markmið átaksins er að ungmenni þekki lykilhugtök á borð við mörk og samþykki og geti greint muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum.
Yfirskrift átaksins í ár er Ertu í stuði? en hugmyndin er sú að fá ungt fólk til að huga að samskiptum þegar kemur að kynlífi og samböndum almennt. Þá er sérstök athygli vakin á suði og hvernig það getur birst og stuðlað að markaleysi og ofbeldi.
Við hvetjum nemendur og aðstandendur til að kynna sér átakið á vefsíðunni sjukast.is og á samfélagsmiðlum.