Smore logo
remove_red_eye 414
page background

Fréttamolar úr MS

25.04.2025

Fréttamolar úrMS25.04.2025

Gleðilegt sumar! 🌞 Gleðilegt sumar! 🌞

Gleðilegt sumar kæru nemendur og takk fyrir veturinn. Senn styttist í lok vorannar og mikilvægt að nýta tímann vel fram að því. Ýmsir viðburðir eru framundan í skólastarfinu og nóg um að vera í apríl og maí.

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

28.-30. apríl: Umhverfisvika

30. apríl: Úrslit í Morfís - MS mætir Versló á Hótel Hilton kl. 19:00

1. maí: Verkalýðsdagurinn - frídagur

2. maí: Matsdagur - dagskrá birtist á www.msund.is í næstu viku

5.-8. maí: Landóvika SMS - nánar auglýst í næstu viku

8. maí: Landóballið

20. maí: Síðasti kennsludagur vorannar

31. maí: Brautskráning útskriftarefna í Háskólabíó kl. 10:45

Umhverfisvika í næstu viku! 💚🪴 Umhverfisvika í næstu viku! 💚🪴

MS mætir Versló í úrslitum Morfís! 🎤🙌 MS mætir Versló í úrslitum Morfís! 🎤🙌

MORFÍs lið MS hefur staðið sig stórkostlega á þessu ári og er nú komið í úrslit keppninnar. MS keppir á móti Versló þann 30. apríl á Hótel Hilton og hefst keppnin kl. 19.


Nú þurfa allir MS-ingar að mæta og styðja okkar fólk til sigurs! Markmiðið er að fylla salinn af stuðningsliði MS. Almenn miðasala fer fram á tix.is og kostar miðinn 2500 kr. Þau sem eiga bleikan bol frá Gettu betur eða opnu húsi fá frítt inn en þurfa að skrá sig hér. ÁFRAM MS! 🤩🤩

Nánari upplýsingar á Instagram síðu málfó

Ný stjórn SMS Ný stjórn SMS

Fyrir páskafrí kusu nemendur nýja stjórn SMS fyrir skólaárið 2025-2026. Nýja stjórnin hefur tekið við stjórnartaumunum og er Landó-vikan og Landóballið 8. maí fyrstu stóru viðburðir nýrrar stjórnar. Við óskum nýkjörnum fulltrúum til hamingju og óskum þeim velfarnaðar í sínum embættum. Okkur langar jafnframt að hrósa öllum frambjóðendum fyrir góða og drengilega kosningabaráttu.

Brautskráning vorannar 31. maí 🎓 Brautskráning vorannar 31. maí 🎓

Brautskráning vorannar fer fram í Háskólabíó laugardaginn 31. maí næstkomandi. Athöfnin hefst kl. 10:45 og tekur um 1,5 klukkustund með myndatöku. Hvert útskriftarefni getur boðið 5-6 gestum á athöfnina í Háskólabíó. Upplýsingapóstur verður sendur útskriftarefnum á næstunni.

Draumur um jökla - Umhverfisnefnd MS tekur þátt í samvinnuverkefni Draumur um jökla - Umhverfisnefnd MS tekur þátt í samvinnuverkefni

Fulltrúar úr umhverfisnefnd MS, ásamt FÁ og félagi Sameinuðu þjóðanna, fóru í vikunni í Höfða og tóku á móti styrk til að vinna að verkefninu Draumur um jökla. Verkefnið fjallar um það hvernig loftslagsbreytingar hafa áhrif á jökla og er ætlunin að fara í ferð á jökul og vinna að myndbandi um málefnið sem á að höfða til ungs fólks. Heiða Björg Hilmisdóttir, Borgarstjóri Reykjavíkur, afhenti styrkinn.

Njótið helgarinnar 🥰 Njótið helgarinnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter