Smore logo
remove_red_eye 784
page background
Logo

Tæknótíðindi

5. september 2025

Tæknótíðindi5. september 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 10. september - Nýnemaball
  • 17. september - Klúbbakvöld 17-21 á Skólavörðuholti
  • 19. september - Miðspannarmat
  • 22. september - Valvika hefst
SKÓLADAGATAL

Miðasala á nýnemaballið Miðasala á nýnemaballið

User uploaded image
zoom_out_map

Nýnemaball Tæknó, Borgó, FÁ, FB og FMOS – TROPICAL BALLIÐ – fer fram miðvikudaginn 10. september! Miðasla er hafin og fer vel af stað. Nemendur geta boðið einni manneskju úr öðrum framhaldsskóla. Gesturinn er á ábyrgð nemandans og þarf að skrá kennitölu viðkomandi við miðakaup.


Ballið verður í VÍKINNI – Víkingsheimilið, Traðarland 1, Fossvogi

Húsið opnar kl. 22:00, lokað verður fyrir inngöngu kl. 23:00 – balli lýkur kl. 01:00


Tengill á miðasölu má finna á vefsíðu NST!

Foreldrarölt fyrir ballið Foreldrarölt fyrir ballið

Tækniskólinn stendur fyrir foreldrarölti við nýnemaballið. Foreldraröltið fer fram kl. 22:00–23:00 og felst í því að vera sýnileg fyrir utan ballstaðinn og styðja við öruggt umhverfi fyrir unga fólkið okkar.

Við hvetjum foreldra og forsjáraðila eindregið til þátttöku. Þetta skiptir máli, nærvera fullorðinna getur haft fyrirbyggjandi áhrif og dregið úr áhættuhegðun.

📍 Mæting er við Víkina, Traðarland 1, rétt fyrir kl. 22:00.

👉 Skráning fer fram í gegnum þetta skjal:


Ef spurningar vakna má hafa samband við:

  • Lilju Ósk Magnúsdóttur – lom@tskoli.is


Takk fyrir að styðja við öruggt skólasamfélag!

Skráning í foreldrarölt

Klúbbakvöld ENIAC Klúbbakvöld ENIAC

User uploaded image
zoom_out_map
Miðviku­daginn 3. september var fyrsta nýnem­a­klúbba­kvöld skóla­ársins. Klúbbakvöldið var á 4. hæðinni á Skólavörðuholti og verða kvöldin þar í vetur.


Klúbbakvöldin eru frábært tækifæri fyrir nýnema til að kynnast félagslífinu. Nú þegar eru nokkrir klúbbar og nefndir komnir á fullt, meðal annars nördaklúbburinn, tónlistarnefnd og Leikfélagið MARS, sem býður öll velkomin á opnar æfingar á miðvikudögum kl. 19–21 í stofu 416. Tveir nýnemar kynntu einnig nýjan klúbb, Warhammer.

Næsta klúbbakvöld verður miðvikudaginn 17. september og er það seinna kynningarkvöld haustsins, öll velkomin, það er aldrei of seint að mæta og vera með!

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
Vefsíða NST

Gildi Tækniskólans Gildi Tækniskólans

User uploaded image
zoom_out_map

Í ljósi samfélagsumræðu síðustu daga viljum við minna á gildi Tækniskólans.


Það er okkur afar mik­il­vægt að starf innan skólans sé á grund­velli þessara gilda og að sífellt sé leitast við að mæta þeim kröfum sem sam­tíminn gerir til skóla­starfs.


Alúð

Við sýnum hvert öðru góða fram­komu, vin­semd og virðingu. Starfs­fólk og nem­endur sinna verk­efnum af natni og fag­mennsku. Nem­endur læra vinnu­brögð sem stuðla að öryggi, gæðum og skil­virkni.


Framsækni

Tækni­skólinn er fram­sækinn í kennslu­háttum og þróun náms­greina. Við fylgj­umst með nýj­ungum og temjum okkur lausnamiðuð vinnu­brögð. Nýsköpun og útsjón­ar­semi skal vera í fyr­ir­rúmi. Nem­endur til­einka sér skap­andi hugsun og fagleg vinnu­brögð.


Fjölbreytileiki

Tækni­skólinn er skóli marg­breyti­leika með fjöl­breyttum námsleiðum og grósku­sömu félags­lífi. Við berum virðingu fyrir mis­mun­andi menn­ingu og upp­runa, þvert á kyn og stöðu ein­stak­linga. Við sýnum skilning og leggjum okkur fram við að efla og þroska nem­endur sem best við getum.

Sálfræðiþjónusta Tækniskólans Sálfræðiþjónusta Tækniskólans

User uploaded image
zoom_out_map
Skólinn býður nem­endum upp á gjald­frjálsa sálfræðiþjón­ustu og tekur Bene­dikt Bragi Sigurðsson sálfræðingur á móti nem­endum og eftir atvikum aðstand­endum


Tímap­ant­anir fara fram í gegnum Innu og það er mjög ein­falt og þægi­legt að panta tíma. Nem­endur geta valið sér þann tíma sem hentar og bókað sig án þess að þurfa að bíða eftir svari frá sálfræðingnum.



Málmsuðumeistari og grafískur snillingur á leið til Danmerkur Málmsuðumeistari og grafískur snillingur á leið til Danmerkur

User uploaded image
zoom_out_map

Þriðji keppandinn sem við kynnum fyrir Euroskills 2025 er Sigfús Björgvin Hilmarsson. Sigfús keppir fyrir Íslands hönd í málmsuðu og er þessa dagana á fullu að undirbúa sig. Hann er uppalinn á Egilsstöðum og segist langa mjög til að flytja aftur austur.

Val hans á málmsuðu byggðist á tilraun og áhuga. Hann vissi ekki hvað hann vildi gera í upphafi en eftir að hafa fengið ráðleggingar frá stjúppabba sínum ákvað hann að prófa rennismíði og stálsmíði

Sá fjórði er svo Jakob Bjarni Ingason en hann keppir fyrir Íslands hönd í grafískri miðlun.

User uploaded image
zoom_out_map

Fjórði keppandinn sem við kynnum til leiks heitir Jakob Bjarni Ingason en hann keppir fyrir Íslands hönd í grafískri miðlun. Jakob er uppalinn í Grafarvoginum og lýsir sér sjálfum sem miklu borgarbarni. Hann hefur alltaf haft sterka listræna og skapandi hneigð og áhuginn fyrir hönnun kviknaði snemma.


Undirbúningur fyrir EuroSkills hefur að sögn Jakobs verið krefjandi en jafnframt skemmtilegur. Jakob segist spenntastur fyrir reynslunni sem fylgir keppninni og að hann upplifi smá pressu sem ýti honum áfram. Hann segir prentunarhlutann erfiðastan, einkum þegar kemur að skurði undir álagi og með áhorfendur allt í kring.

Við óskum Sigfúsi og Jakobi góðs gengis á EUROSKILLS 2025!


Ps: Það má lesa nánar um þá félaga og fleiri keppendur á facebook síðu skólans.

GÓÐA HELGI! GÓÐA HELGI!

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter