Smore logo
remove_red_eye 421
page background

Fréttamolar

19. maí 2022

Mikilvægar dagsetningar framundan

24. maí - Síðasti kennsludagur vorannar.

24. maí - Kveðja á sal klukkan 11:15

24. maí - Baulan.

25. maí - Æfing fyrir útskriftarnema í Holti kl. 14:50

25. maí - Galakvöld útskriftarnema í Holti klukkan 19-21

25. og 27. maí - Matsdagar í lok vorannar.

26. maí - Uppstigningardagur.

4. júní - Brautskráning!

Síðustu dagar vorannar

Það fer ekki milli mála að vorönn er að líða sitt skeið, mikill erill í skólanum og nemendur að kynna lokaverkefni sín á göngunum. Það er alltaf gaman að sjá afurðir vetrarins birtast í lok vorannar og það er ekki að sjá annað en að nemendur hafi átt skapandi og atorkusama önn!

Brautskráning - æfing 25. maí

Nú líður að því að stóri dagurinn renni upp og brautskráning fari fram! Hópurinn stefnir í að vera óvenju stór og glæsilegur þetta vorið og minnum við á æfinguna þann 25. maí klukkan 14.30 í Hálogalandi - ALGJÖR SKYLDUMÆTING FYRIR ÚTSKRIFTAREFNI!!

zoom_out_map

Brautskráning í Háskólabíói

Stóri dagurinn er 4. júní 2022 kl. 10:45 og fer athöfnin fram í Háskólabíói.

Nemendur eiga að vera mættir í Háskólabíó á útskriftardegi kl. 9:45, þar sem farið yfir síðustu atriði varðandi skipulag á hátíðinni.
  • Húsið opnar fyrir gesti kl. 10:15.
  • Upplýsið foreldra og forráðamenn um skipulagið.

Matsdagar 25. og 27. maí!

Minnum á að mjög mikilvægt er að nemendur gæti þess að síðustu dagar vorannar eru skóladagar þó svo að kennslu ljúki þann 24. maí. Matsdagar í annarlokin eru mjög annasamir og síðasta tækifæri fyrir marga nemendur til að styrkja stöðu sína í námsmatinu!

Menntaskólinn við Sund - msund@msund.is
www.msund.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter