Smore logo
remove_red_eye 632
page background

Fréttamolar úr MS

5. nóvember 2025

Fréttamolarúr MS5. nóvember 2025

Haustönn að ljúka! Haustönn að ljúka!

Nú er fyrstu önn skólaársins að ljúka, síðasti kennsludagur er föstudagurinn 7. nóvember. Í næstu viku verður því engin kennsla en þá eru engu að síður mikilvægir dagar sem skipta nemendur máli eins og matsdagar, einkunnaskil og námsmatssýning, sjá nánar á myndinni hér að neðan.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Kennsla á vetrarönn hefst þriðjudaginn 18. nóvember og þá verða allir nemendur búnir að fá nýjar stundatöflur en nánari upplýsingar um þær og töflubreytingar berast þegar nær dregur.

Kennslukönnun í Innu Kennslukönnun í Innu

User uploaded image
zoom_out_map

Kennslukönnun haustannar er opin í Innu fram á síðasta kennsludag. Á þessari önn eru kennslukannanir lagðar fyrir í áföngum í dönsku, þýsku, frönsku, íslensku, hagfræði og viðskiptagreinum. Kennslukönnun er tækifæri nemenda til að láta rödd sína heyrast og við hvetjum nemendur til að taka þátt.

Gettu betur prufur 6. nóv. Gettu betur prufur 6. nóv.

User uploaded image
zoom_out_map
Gettu betur prufur fara fram í hádeginu á morgun, fimmtudaginn 6. nóvember kl. 12:10-12:40 í AÐA21. Þetta er seinni prufan af tveimur og í kjölfarið munu þjálfarar velja í lið. Endilega mætið og takið þátt! Þau sem komast í liðið geta fengið einingar fyrir þátttökuna.

Oxbridge sumarnámskeið - kynning 7. nóv. Oxbridge sumarnámskeið - kynning 7. nóv.

Nemendur og foreldrar fengu póst í gær um kynningu á sumarnámskeiði á vegum Oxford og Cambridge fyrir MS-inga. Skráningarhlekkur í þeim pósti virkaði ekki og hér er því réttur hlekkur: Skráning á kynningu á sumarnámskeiði í Cambridge/Oxford í ágúst 2026


Kynningin fer fram í skólanum föstudaginn 7. nóvember kl. 10:30 í Bjarmalandi. Nemendur þurfa að skrá sig svo við vitum fjölda þátttakenda og getum haldið utan um mætingarskráningu.


Foreldrar velkomnir með á kynninguna!

Skráning á kynninguna 7. nóv.

Nafnasamkeppni fyrir nýju kennslustofurnar Nafnasamkeppni fyrir nýju kennslustofurnar

User uploaded image
zoom_out_map

Nýju gulu kennslustofurnar okkar eru alveg að verða tilbúnar og nú vantar nafn á þessa nýju byggingu. Reglan í MS er sú að byggingar og rými eiga sín eigin nöfn. Flest rými hafa nöfn sem tengjast örnefnum í nágrenninu eða eldri heitum í skólanum. Það er þó ekki algilt! Fyrstu þrír stafirnir í heitinu tákna hluta af stofunúmerinu. Dæmi: Aðalsteinn - AÐA. Nemendur og starfsfólk eru hvött til þess að taka þátt í nafnasamkeppni um nöfn á nýju skólastofurnar okkar! Allir þátttakendur fara í pott og geta unnið til verðlauna!

Taktu þátt í nafnasamkeppninni!

Fréttir úr félagslífi nemenda Fréttir úr félagslífi nemenda

  • 3. – 7. nóvember: Góðgerðarvika SMS, sem Hagsmunaráð stendur fyrir. Markmið vikunnar í ár er að safna fé til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru. Nemendur taka þátt í allskonar áskorunum í fjáröflunarskyni. Sjá meira á Instagramsíðu Hagsmunaráðs.
  • 24. – 28. nóvember: 85’vika SMS, dansleikur þann 27. nóvember í Gamla bíó.
  • 1. – 5. desember: Málfóvika sem málfundarfélagið stendur fyrir.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Skráning og nánari upplýsingar um stöðupróf

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter