Smore logo
remove_red_eye 139
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

4. tbl. 4. árg. - apríl 2023

FréttabréfGrenivíkurskóla4. tbl. 4. árg. - apríl 2023
zoom_out_map

Kæra skólasamfélag

Þá er páskafrí hafið hjá nemendum og starfsfólki, eftir skemmtilega lotu sem einkenndist - sér í lagi síðustu vikurnar - af undirbúningi og framkvæmd Vorskemmtunar. Ávaxtakarfan var sett upp og tókst að okkar mati ákaflega vel. Við þökkum fyrir komuna á sýningarnar og vonum að þið hafið skemmt ykkur vel.


Eftir mikla kuldatíð lengi vel í mars er heldur betur farið að vora, og vonandi að veðrið verði okkur hagstætt það sem eftir lifir skólaárinu. Með betri tíð fara nemendur að hjóla í skólann, sem er hið besta mál, en við viljum minna á að ávallt þarf að nota hjálm þegar hjólað er, og á það við jafnt um hefðbundin hjól sem hlaupahjól og rafhjól.


Skóli hefst aftur hjá nemendum að loknu páskafríi þann 12. apríl. Ég vona að þið eigið góðar samverustundir yfir páskana og hlakka til að fá nemendur aftur í skólann, endurnærða að loknu fríinu og tilbúna í síðustu lotu þessa skólaárs. Gleðilega páska!


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

zoom_out_map

Vorskemmtun

Vorskemmtun Grenivíkurskóla var haldin með pompi og prakt nú rétt fyrir páskafrí. Að þessu sinni var það Ávaxtakarfan sem var sett upp og stóðu nemendur og starfsfólk sig með stakri prýði og settu upp glæsilega sýningu. Það er sannarlega í mörg horn að líta við uppsetningu sem þessa og mikill lærdómur sem felst í því fyrir nemendur.


Við viljum þakka öllum sem komu á sýningrnar kærlega fyrir og einnig öllum þeim sem lögðu hönd á plóg og aðstoðuðu okkur á ýmsan hátt í undirbúningi og við framkvæmd sýninganna. Við vonum að þið hafið öll skemmt ykkur vel og einnig notið góðra veitinga að skemmtun lokinni.

zoom_out_map

Páskagetraun

Árleg páskagetraun Grenivíkurskóla fór fram síðustu daga fyrir páskafrí, en þá fengu nemendur á unglingastigi að spreyta sig á ýmsum þrautum, t.d. að þekkja fugla, fossa, byggingar, vörumerki og ýmislegt fleira.


Eftir harða keppni voru úrslitin á þá leið að í þriðja sæti var Hilmar Mikael Þorsteinsson með 123 stig, en þeir Jóhann Kári Birgisson og Birgir Húni Haraldsson deildu efsta sætinu með jafnmörg stig - 126 af 150 mögulegum. Þeir sem enduðu í efstu þremur sætunum fengu páskaegg að launum, og við óskum þeim til hamingju með góðan árangur!


Hér getið þið skoðað og spreytt ykkur á gátunum sem lagðar voru fyrir.

zoom_out_map

Lesið saman

Flesta morgna byrjar skólastarf í Grenivíkurskóla á lestri og hreyfistund, en þá lesa nemendur í 15-20 mínútur og fara svo í 15-20 mínútna hreyfingu, t.d. göngutúr, æfingar í salnum, Just Dance og ýmislegt fleira.


Í upphafi mánaðar breyttum við aðeins út af vananum og fengum nemendur á unglingastigi til þess að setjast niður með nemendum af yngsta stigi og hlusta á þau og aðstoða við lesturinn. Yngstu nemendunum fannst þetta spennandi og stóðu sig vel í lestrinum, og unglingarnir voru að sama skapi til fyrirmyndar við að aðstoða þau sem yngri eru. Notaleg stund og aldrei að vita nema við endurtökum leikinn.

open_in_new zoom_out_map

Heilsueflandi skóli

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "Aktíf í apríl". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

zoom_out_map

Grænfáninn

Grænfánaverkefnið teygir anga sína víða, og hægt að finna umhverfistengingu við flest af þeim málefnum sem eru til umfjöllunar hverju sinni. Til dæmis er gaman að skoða hvernig tengja má heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna við Grænfánaverkefnið - eða umhverfismál almennt - með fjölbreyttum hætti.


Hér má lesa um þessar tengingar, en í vetur höfum við einmitt kynnt nemendum okkar heimsmarkmiðin og hvað við getum gert til þess að stuðla að því að þau raungerist.

Myndir úr skólastarfinu - mars

  • 9.-10. bekkur á Starfamessu - 3. mars 2023
  • Unglingastig og yngsta stig lesa saman - 3. mars 2023
  • Samskóladagur - 7. mars 2023
  • Skíðadagur - 8. mars 2023
  • Páskagetraun 2023 - verðlaunaafhending
  • Vorskemmtun 2023
  • Félagsvist - 5.-10. bekkur - 31. mars 2023

Á döfinni í apríl

  • 2. apríl: Pálmasunnudagur
  • 6. apríl: Skírdagur
  • 7. apríl: Föstudagurinn langi
  • 9. apríl: Páskadagur
  • 10. apríl: Annar í páskum
  • 11. apríl: Starfsdagur - frí hjá nemendum
  • 12. apríl: Skóli hefst á ný að loknu páskafríi
  • 18. apríl: Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk- undankeppni í Grenivíkurskóla
  • 20. apríl: Sumardagurinn fyrsti - frí í skólanum
  • 27. apríl: Samskóladagur fyrir 5.-7. bekk í Stórutjarnaskóla
  • 27. apríl: Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk - lokahátíð
open_in_new zoom_out_map
zoom_out_map

Grenivíkurskóli

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Email: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Website: http://www.grenivikurskoli.is
Location: Grenivík
Phone: 414-5413
Facebook: https://www.facebook.com/search/top?q=greniv%C3%ADkursk%C3%B3li

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter