Smore logo
remove_red_eye 421
page background

Fréttamolar

24. mars 2022

Dagsetningar framundan launch

26. mars - Morfís lið MS mætir Versló!

30. mars - Kosningar SMS. Rafræn kosning hefst.

01. apríl - Kosningum lýkur kl. 17:00.

04. apríl - Frumsýning Thalíu

05. apríl - Opið hús í MS! Kynning fyrir grunnskólanema.

11. apríl - Páskafrí hefst.

20. apríl - Fyrsti kennsludagur eftir páskafrí.

Vorverkin nálgast!

Það er alltaf gaman að sjá fréttir þess efnis að sést hafi til lóunnar, það jafngildir vottun frá traustum ytri matsaðila að veturinn sé senn á enda. Í skólastarfinu má einnig sjá þess merki að vorið sé á næsta leiti, kosningar í SMS, skólakynningar og páskafríið langþráða. Það er margt spennandi framundan og verður til dæmis mjög gaman að sjá uppfærslu Thalíu á ,,Mean Girls". Mikill áhugi er á skólakynningum og erum við þegar byrjuð að fá fyrirspurnir um opna húsið okkar. Við minnum á að nemendur eru í lykilhlutverki í skólakynningum og viljum við endilega fá sem flest ykkar til liðs við okkur í því verkefni (áhugasöm endilega sendið póst: leifuriv@msund.is)

Láttu rödd þína heyrast!

Þjónustukönnun í Innu er enn opin – fyrir nemendur og forráðaðila / aðstandendur.

Könnunin er liður í sjálfsmati skólans og svör ykkar mikilvæg. Athugið að ekki er hægt að rekja svör til einstakra þátttakenda.

Hér fyrir neðan er mynd sem sýnir hvar í Innu kannanir er að finna.

Frábær árshátíð!

Loksins kom að því að nemendur skólans fengu tækifæri til að hittast öll saman grímulaus og gleðjast í góðra vina hópi. Hitað var upp í hádeginu með eldheitu ClubDub zumba sem er orðið að sannkölluðum þjóðdansi MS-inga! Stuðið hélt svo áfram fram á kvöld og það var gaman að sjá stemminguna í Víkinni ná hámarki þegar Frikki Dór steig á svið og byrjaði að kyrja sína margrómuðu slagara.

Forráðafólk á ballvakt

Það veitir nemendum mikið öryggi að hafa fulltrúa forráðafólks á vakt fyrir utan dansleiki á vegum skólans. Skólinn þakkar þeim sérstaklega sem stóðu vaktina að þessu sinni.

Nemendur af Hofi

Nemendur MS tóku einstaklega vel á móti fróðleiksfúsum leikskólanemendum af Hofi í Laugarnesi.

í heimsókn í MS

Börnin skoðuðu skólann, heimsóttu kennslustundir og veltu fyrir sér hvort MSingar þyrftu að fara út að leika í frímínútum!

Morfís - æsispennandi viðureign við Versló

Á laugardaginn fer fram viðureign í Mofrís þar sem lið MS etur kappi við lið Versló. Umræðuefnið er ,,boðskapur Jesú Krists" og er MS á móti!

Menntaskólinn við Sund - msund@msund.is
www.msund.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter